Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1991, Side 21

Læknablaðið - 15.03.1991, Side 21
LÆKNABLAÐIÐ 105 Stutt er síðan farið var að lýsa æðamisvexti í efri hluta meltingarvegar sem orsök blæðingar (17). I rannsókn okkar er hann orsök blæðingar hjá 3.4% sjúklinganna og hefur sumum þeirrra verið lýst áður (18). Þessi orsök var aðeins greind á seinni helmingi tímabilsins og var þá völd að 5.7% blæðingaratvika. Að æðamisvöxtur var ekki greindur á fyrra tímabilinu skýrist helst þannig, að hann hafi ranglega verið talinn áverki eftir magaslöngu eða speglunaráhald (12,19). Það er skoðun okkar að æðamisvöxtur sé mikilvæg orsök blæðingar frá efri hluta meltingarvegar og hefur sennilega verið valdur að mörgum þeim blæðingum sem áður fannst ekki skýring á. Enda þótt blæðingarorsök fyndist í 82.9% af þeim 299 sem voru speglaðir, gátum við ekki sýnt fram á að dánartala væri lægri hjá þeim sjúklingum sem orsök greindist strax hjá, en því hafa sumir höfundar haldið fram (20,21). Aðrir höfundar hafa heldur ekki sýnt fram á bættar lífslíkur með því að beita bráðri magaspeglun (6,11). Því hefur verið haldið fram (22,23), þó ekki hafi verið staðfest af öllunt (24), að ekki minna en helmingi þeirra sjúklinga, sem hafa sjáanlega æð í sári, muni blæða aftur og 40% þarfnist skurðaðgerðar. Niðurstöður okkar rannsóknar eru í samræmi við þetta. Peterson bar saman afdrif 100 sjúklinga sem gerð var á bráð magaspeglun og 106 sem magaspeglun var gerð á aðeins ef blæðing tók sig upp aftur eða ef aðrar ástæður þóttu gefa tilefni til (25). Ekki reyndist vera munur milli þessara tveggja hópa hvað snertir dánartíðni, þörf fyrir skurðaðgerð eða fylgikvilla sára. A það hefur samt sem áður verið bent (26) að til þess að sýna fram á marktækan mun á niðurstöðum þurfi mun stærri hópa sjúklinga og einnig hitt, að ályktanir dregnar af afdrifum hópsins í heild þurfi ekki að eiga við um vissa hluta sjúklingahópsins sem geti þurft sérstakrar meðferðar við (27). Á síðustu árum hefur meðferð við magablæðingum, sem beitt er í gegnum magaspeglunartækið, fleygt fram með notkun leysigeisla, rafvefjahleypingu (eiectrocoagulation) og herðimeðferð (sclerotherapiu). Líklegt má telja að með þessum aðferðum (28-29) verði bráð magaspeglun mikilvægari í meðferð sjúklinga með magablæðingu og muni bæta árangur. Niðurstöður þessarar rannsóknar okkar eru á flestan hátt í samræmi við það sem aðrir hafa áður lýst. Greinilegur munur er þó milli okkar og nágrannalanda hvað snertir tíðni æðagúls í vélinda og einnig höfum við fleiri sár í maga en aðrir. Ennfremur má benda á tíðari greiningu æðamisvaxtar eftir að menn gerðu sér grein fyrir mikilvægi hans sem orsök blæðingar. Þættir sem hafa áhrif á dánartölu eru svipaðir og hjá öðrum. Niðurstöður af þessari rannsókn hafa ekki fært sönnur á að bráð magaspeglun lækki dánartíðni, en við leggjum áherslu á að skýringin getur verið sú að um eldri og veikari sjúklinga er að ræða. Við teljum skjóta greiningu á blæðingarorsök mikilvæga, bæði vegna meðferðar gegnum speglunartæki og þegar þörf er á tafarlausri skurðaðgerð. HEIMILDIR 1. Cutler JA, Mendeloff AI. Upper gastrointestinal bleeding. Nature and magnitude of the problem in the U.S. Dig Dis Sci (Suppl) 1981: 26: 905-65. 2. Schiller KFR, Truelove SC, Gwyn Williams D. Hematemesis and melaena, with special reference to factors influencing the outcome. Br Med J 1970; 2: 7-14. 3. Foster DN, Miloszewski KJA. Losowsky MS. Stigmata of recent haemorrhage in diagnosis and prognosis of upper gastrointestinal bleeding. Br Med J 1978; 1: 1173-7. 4. Palmer ED. The vigorous diagnostic approach to upper gastrointestinal tract hentorrhage. JAMA 1969; 207: 1477-80. 5. Morris DW, Levine GM, Soloway RD. Miller WT, Marin GA. Prospective, randomized study of diagnosis and outcome in acute upper gastrointestinal bleeding: endoscopy versus conventional radiography. Am J Dig Dis 1975; 20: 1103-9. 6. Katon RM. Smith FW. Panendoscopy in the early diagnosis of acute upper gastrointestinal bleeding. Gastroenterology 1973; 65: 728-34. 7. Leinicke JA, Shaffer RD, Hogan WJ, Geenen JE. Emergency endoscopy in acute upper GI bleeding (UGB): Does timing affect the significance of diagnostic yield? Gastrointest Endosc 1976; 22: 228- 9. 8. Silverstein FE, Gilbert DA, Tedesco FJ, Buenger NK, Persing J. The national ASGE survey on upper gastrointestinal bleeding. II. Clinical prognostic factors. Gastrointest Endosc 1981; 27: 80-93. 9. Cotton PB, Rosenberg MT, Waldram RPL, Axon ATR. Early endoscopy of oesophagus, stomach and duodenal bulb in patienls with haematemesis and melaena. Br Med J 1973; 2: 505-9.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.