Læknablaðið - 15.03.1991, Side 30
110
LÆKNABLAÐIÐ
þess vegna viðkvæmt fyrir öllum breytingum
á innri gerð. A það við um hlust, hljóðhimnu
og miðeyra. Smávægilegar breytingar svo sem
eymamergur, hlustarþrengsl, kokhlustarþroti
og ístaðskölkun geta því raskað viðkvæmu
jafnvægi eyrans þannig að eymasuð hljótist af.
Gould (2) setti fyrstur fram mótaðar tilgátur
um úthljómun eyrans21 og virka mögnun
í innra eyranu. Réttum þrjátíu árum síðar
birti Kemp (3) grein um mælingar sínar á
fyrirbærinu og ruddi þar með braut nýrri
vitneskju um starfsemi innra eyrans. Gerður er
greinarmunur á eiginlegri úthljómun eyrans og
vakinni úthljómun. Með eiginlegri úthljómun
er átt við stöðuga úthljómun frá innra eyra.
Styrkur hljómsins er mjög veikur og vart
mælanlegur, hvað þá heyranlegur. Vakin
úthljómun byggir á örvun innra eyrans,
með smelli eða hljóðskvettu31. Fáeinum
millisekúndum eftir áreitið má skrá svörun
innra eyrans, sem úthljómun - margfalt
veikari en upphaflega áreitið.
Úthljómun eyrans dvínar með aldrinum og
má raunar greina ákveðið samband milli
heymar einstaklingsins, eins og hún mælist
við heymarpróf, og úthljómunar eyrans.
Niðurstöður rannsókna hafa leitt í ljós að
þeir þættir, sem hafa bein áhrif á heym, hafi
sömuleiðis áhrif á vakta úthljómun eyrans.
Má þar nefna skammtíma möskunaráhrif (4,5),
tímabundna heymaskerðingu (4), vefildisskort
(6) og áhrif lyfja, svo sem etakrýnsýru (7) og
salisýlata (8). Svipað má segja um eiginlega
úthljómun eyrans. Sýnt hefur verið fram á að
tímabundin heymarskerðing hefur þar áhrif
(4), svo og vefildisskortur (6).
Sú spuming hlýtur því að vakna hvort
orsakatengsl séu á milli eymasuðs og
eiginlegrar úthljómunar eyrans. Rannsóknir
varðandi mögulegt samband þar á milli hafa
gefið misvísandi niðurstöður. í athugunum
Wilsons (9) á 40 eyrum mældist eiginleg
úthljómun í 10 og þar af heyrðu sjö aðspurðra
hljóminn sem eymasuð. í annarri rannsókn
kom fram að hjá 32 einstaklingum með
eðlileg heymarmörk mældist eiginleg
úthljómun í 22 eyrum 16 einstaklinga. Enginn
þeirra hafði fundið fyrir eymasuði. Hins vegar
mældist engin eiginleg úthljómun í eyrum
þeirra sex einstaklinga, sem kvörtuðu um
eymasuð (10). I nýlegri grein færir Penner rök
fyrir beinu orsakasambandi á milli eiginlegrar
úthljómunar og eymasuðs (11).
Þrátt fyrir að niðurstöður virðist ósamhljóða
er sennilegt að eðlislægur skyldleiki sé
með eymasuði og úthljómun eyrans. Hvort
tveggja byggist á virkri vélrænni endurómun
kuðungsins. Uppgötvun eggjahvítuefna
með samdráttareiginleika, aktín og mýósín,
í frumum líffæris Cortis (12,13) rennir
frekari stoðum undir þá skoðun. Það er hinn
virki vélræni þáttur, sem veldur eiginlegri
úthljómun eyrans og stendur að baki mögnun
og tíðnigreiningu innra eyrans, einkum við
lágan tónstyrk.
Sú staðreynd að utanaðkomandi hávaði
hamlar eymasuði var vel þekkt meðal fom-
Grikkja. Hazell er sömu skoðunar og í
bók sinni um eymasuð (14) notar hann
ofangreindar rannsóknaniðurstöður til að
skýra notagildi möskunar við meðferð
eymasuðs. I þeint tilvikum nýtist hljóðorkan
til suðhömlunar með því að endurvekja
hreyfingu hárfrumusnauða hluta kuðungsins
og draga þannig úr ofvirkni aðlægra ytri
hárfrumna. Fráfærandi taugabrautir, sem
stýra starfsemi ytri hárfrumnanna eru hluti
sjálfstæða taugakerfisins (15) og því ekki
fráleitt að innri og ytri streituþættir, samfara
áhrifum skreyjutaugar og adrenalíns í blóði
geti haft bein eða óbein áhrif á starfsemi
ytri hárfrumnanna. Raunar er vel þekkt að
óþægindi sjúklings af völdum eymasuðs eru
nátengd streitu, áhyggjum og geðbrigðum.
AÐFERÐ
Um miðjan áttunda áratuginn var farið að
beita möskun við meðferð sjúklinga með
eymasuð á skipulagðan hátt (16). í litlu tæki,
áþekku heymartæki á úteyra, var komið fyrir
suðara með tíðni ofan talsviðs. Kom í ljós
að suð tækisins veitti sjúklingunum fró frá
eymasuðinu og létti jafnvel eymasuðinu í
smátíma eftir að sjúklingurinn hafði tekið
niður suðarann.
Þessar jákvæðu niðurstöður urðu til þess
að við heymardeild Háskólasjúkrahússins í
Malmö í Svíþjóð var þróað tæki, WATIC™
TA3, til nákvæmrar greiningar á eymasuði
sjúklinga og einnig annað tæki meðfærilegt
- suðari, TM3 (17). Haustið 1988 voru
þessi tæki keypt með fylgihlutum til HTÍ
með aðstoð Framkvæmdasjóðs fatlaðra.