Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1991, Síða 50

Læknablaðið - 15.03.1991, Síða 50
126 LÆKNABLAÐIÐ heilbrigðismál skrifar hann árið 1900 grein um augnveiki, kirtlaveiki og augnbólgu nýfæddra barna. Mun þetta hafa verið upphaf greinaflokks um augnsjúkdóma, en því nriður gaf blaðið upp öndina um þær mundir og greinar Bjöms urðu ekki fleiri. Segir í greininni að megnið af augnveiki barna eigi rót sína að rekja til kirtlaveiki. Telur Björn berklabakteríuna vera orsök hennar, »lungnatœriní> og kirtlaveiki eru náskyldir sjúkdómar, þar efl sama bakteríutegund er orsök beggja. Ekki er þó allt, sem almennt er kallafl kirtlaveiki, af þessari rót runnifl.« Hafa nú verið raktir helstu þættir í starh Björns Olafssonar og árdögum vísindalegra augnlækninga á Islandi. Björn lést 19. október 1909, á miðjum starfsaldri, aðeins 47 ára gamall. Minningargreinar að honum látnurn birtust í flestum blöðum landsins við hið sviplega fráfall hans. Ber þeim öllum saman um mannkosti hans og dugnað. Björn kvæntist Sigrúnu Isleifsdóttur (f. 17. júní 1875), prests Gíslasonar, er síðast var í Arnarbæli og Karitasar Markúsdóttur, 19. maí 1904. Bjuggu þau síðast í Tjarnargötu 18, sem þau byggðu 1906 og þar hafði Bjöm lækningastofu sína. Tvær dætur áttu þau bama: Karitas Sigurlaugu (f. 1906, d. 1988) er átti Jens Andersen kaupmann í Nyköbing á Falstri og Ingibjörgu er lést aðeins 11 ára gömul árið 1918. Ekkja Björns giftist síðar Þorleifi H. Bjarnasyni, yfirkennara og rektor Menntaskólans. Hún andaðist árið 1959. Birni Ólafssyni auðnaðist að verða farsæll frumherji í augnlækningum hér á landi og verður hans lengi minnst sem fyrsta augnlæknis á íslandi. Hann er í hópi þeirra lækna, er urðu brautryðjendur á sviði nútímalæknisfræði hér á landi, um síðustu aldamót. Við frumstæðar aðstæður haslar hann sér völl sem sérfræðingur og er fyrsti íslenski læknirinn, sem það gerir og stundar sérgrein eingöngu. Hann er einn af fjórunr læknum, sem leggja grundvöllinn að nútímalækningum hér á landi og af þeim er hann fyrstur til að setjast að hér heima og hefur þegar gert margar stóraðgerðir áður en Guðmundamir þrír komu heim. Að vísu voru það ekki samskonar aðgerðir og þeir urðu frægir af, en sambærilegar. Hann lét fslenskar aðstæður ekki hneppa sig í fjötra framtaksleysis og sljóleika, heldur bar hann merki sérgreinar sinnar hátt og lét aldrei bugast þrátt fyrir langvarandi vanheilsu og erfið vinnuskilyrði. Það leið rúmt misseri frá andláti Björns uns nýr maður tók við störfum hans, Andrés Fjeldsted frá Hvítárvöllum, þá nýbakaður augnlæknir. Hann kembdi ekki hærumar fremur en Björn, fyrirrennari hans. Hann dó aðeins 47 ára gamall árið 1923. Hann var mjög farsæll augnlæknir. Er Andrés lést var annar augnlæknir fyrir í Reykjavík, Helgi Skúlason, er hafði sest þar að og stundað augnlækningar frá 20. september 1921.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.