Læknablaðið - 15.05.1992, Page 22
178
LÆKNABLAÐIÐ
að það sé sjálfstæður áhættuþáttur fyrir
kransæðasjúkdómi (21). Ferilrannsókn
Hjartavemdar hefur bent til þess að meðal
karla sé apo (a) sjálfstæður áhættuþáttur,
að styrkleika svipaður og þríglýseríðar
og háþrýstingur, en talsvert veikari en
heildarkólesteról eða HDL-C (11). Þéttni
Lp (a) er að talsverðu leyti ákvörðuð af
erfðum (um 40%) (36) og því hefur verið
haldið fram að Lp (a) skýri hluta af arfgengi
kransæðasjúkdóms (37). Ahrif annarra
þátta á þéttni Lp (a) hefur hins vegar lítt
verið könnuð ennþá. Það er athyglisvert að
kólesteróllækkandi lyf af flokknum HMG-
CoA reductasa hemjarar lækka ekki Lp (a)
sem virðist því ekki vera tekið upp af LDL-
viðtakanum í sama mæli eins og venjulegt
LDL (38). Dreifing Lp (a) gilda í þessari
rannsókn voru svipuð og meðal annarra
Evrópuþjóða en talsvert lægra en lýst er meðal
svertingja (36).
Sem áður segir er apo (a) talsvert skylt
plasminogeni að samsetningu og apo (a)
genið er staðsett mjög nálægt plasminogeninu
á litningi nr. 6 (38). Hins vegar hefur ekki
tekist að staðfesta að apo (a) hafi verkun
á blóðstorkuna beint en kunni að hafa það
óbeint með því að koma í veg fyrir að
plasminogen bindist viðtaka sínunt á yfirborði
æðaþelsfrumna (39). Verkun Lp (a) kann
þó að vera önnur og sumar rannsóknir hafa
bent til að Lp (a) bindist sykrungum og geti
þar með stuðlað að útfellingu kólesteróls í
æðavegginn (40).
Það er einnig athyglisvert að þéttni Lp (a) er
mjög svipuð meðal karla og kvenna (mynd
3) og á því varla þátt í þekktum kynjamuni
á tíðni kransæðasjúkdóms eins og apo AI
gerir. Einnig er athyglisvert að þéttni apo
(a) er óháð aldri og gæti því verið vert að
mæla það í ungu fólki þar sem kólesteról
og þríglýseríðar eiga hins vegar eftir að
taka verulegum breytingum, einkum á
aldursskeiðinu 20-50 ára.
ÞAKKIR
Starfsmönnum Rannsóknarstofu Hjartavemdar
er þökkuð aðstoð og stuðningur. Vilmundur
Guðnason þakkar Hjartavemd veittan
rannsóknarstyrk og Gunnar Sigurðsson
þakkar styrk úr Rannsóknarsjóði Háskóla
Islands. Dr. Laufeyju Steingrímsdóttur er
þökkuð samvinna í tengslum við úrtak úr
neyslukönnun Manneldisráðs.
HEIMILDIR
1. Bjömsson OJ, Davidsson D, Olafsson O, Sigfusson
N, Thorsteinsson Th. Survey of serum lipid levels in
Icelandic men aged 34-61 years. An epidemiological
and statistical evaluation. Heart Preventive Clinic of
the Icelandic Heart Association, Reykjavik, Iceland.
Acta Med Scand 1977; Suppl. 616.
2. Bjömsson OJ, Davidsson D, Filippusson H,
Sigfusson N, Thorsteinsson Th. Semm Total
cholesterol and triglycerides in Icelandic males aged
41-68 years. Health survey in the Reykjavik area.
Reykjavik: Heart Preventive Clinic of the Icelandic
Heart Association, Reykjavik, Iceland, 1987.
3. Bjömsson OJ, Davidsson D, Kristjansson BTh,
Sigfusson N, Thorsteinsson Th. Serum Total
cholesterol and triglycerides in Icelandic females
aged 34-61 years. Health survey in the Reykjavik
area. Reykjavik: Heart Preventive Clinic of the
Icelandic Heart Association, 1988.
4. Thorgeirsson G, Davidsson D, Sigvaldason H,
Sigfusson N. Major risk factors for coronary heart
disease mortality in Icelandic women. Eur Heart J
1990; 11/Suppl.: 326.
5. Nikulás Sigfússon, Helgi Sigvaldason, Inga Ingibjörg
Guðmundsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Laufey
Steingrímsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Gunnar
Sigurðsson. Breytingar á tíðni kransæðastíflu og
kransæðadauðsfalla á Islandi. Tengsl við áhættuþætti
og mataræði. Læknablaðið 1991; 77: 49-58.
6. Sigfusson N, Sigvaldason H, Steingrimsdottir L,
Gudmundsdottir II, Stefansdottir I, Thorsteinsson Th,
Sigurdsson G. Decline in ischaemic heart disease in
Iceland and change in risk factor levels. Br Med J
1991; 302: 1371-5.
7. Sniderman A, Shapiro S, Marpole D, Skinner B,
Teng B, Kwiterovich PO, Jr. Association of coronary
atherosclerosis with hyperapobetalipoproteinemia
[increased protein but normal cholesterol levels in
human plasma low density (/3) lipoproteins]. Proc
Natl Acad Sci USA 1980; 77: 604-8.
8. Durrington PN, Hunt L, Ishola M, Kane J,
Stephens WP. Serum apolipoproteins AI and B and
lipoproteins in middle aged men with and without
previous myocardial infarction. Br Heart J 1986; 56:
206-12.
9. Reinhart RA, Gani K, Amdt MR, Broste SK.
Apolipoproteins A-I and B as predictors of
angiographically defined coronary artery disease.
Arch Intem Med 1990; 150: 1629-33.
10. Kottke BA, Zinsmeister AR, Holmes DR jr„ Kneller
RW, Hallaway BJ, Mao SJ. Apolipoproteins and
coronary artery disease. Mayo Clin Proc 1986; 61:
313-20.
11. Sigurdsson G, Baldursdottir A, Sigvaldason H,
Agnarsson U, Thorgeirsson G, Sigfusson N.
Predictive value of apolipoproteins in a prospective
survey for coronary artery disease in men. Am J
Cardiol (bíður birtingar).
12. Sniderman A, Vu H, Cianflone K. Effect of moderate
hypertriglyceridemia on the relation of plasma total
and LDL apo B levels. Atherosclerosis 1991; 89:
109-16.
13. Albers JJ, Marcovina SM. Standardization of
apolipoprotein B and A-I measurements. Clin Chem
1989; 35: 1357-61.