Læknablaðið - 15.05.1992, Síða 31
LÆKNABLAÐIÐ
187
Table I. Tuberculin reactivity.
Tuberculin reaction
Number <8mm >7mm Positive (%)
Total ................. 215 152 63 (29.3)
Men..................... 46 35 11 (23.9)
Women.................. 169 117 52 (30.8)
Nursing dependency:
Light.......... 114 79 35 (30.7)
Severe......... 101 73 28 (27.7)
MSQ >5 .............. 129 97 32 (24.8)
MSQ <6 .............. 86 55 31 (36.0)
Table II. Tuberculin reactivity by age (RT-23 PPD 5
TU).
Age group Induration 0-7 mm (No) Induration 7-27 mm (No) (%) 7-27 mm
67-79 36 20 (35.7)
80-89 86 35 (28.9)
90-101 30 8 (21.0)
Chi-square test NS
Table III. Tuberculin reactivity (longitudinal results).
Previously Previously
positive negative Total
Positive now........... 13 4 17
Negative now........... 16 17 33
Total______________________29________________21____________50_
p = 0.05, T-test
Table IV. Three year survival and tuberculin response.
Response Surviving Diseased All
Positive ............ 30 33 63
Negative ............ 67 85 152
Total 97 118 215
p>0.05
Table V. Three year memory. survival in relation to tuberculin
Longterm memory Survived Died Total
Memory lost . 10 6 16
Memory retained .. 9 4 13
All 19 10 29
Jákvæðum prófum fækkaði mjög með
hækkandi aldri (tafla II). Fækkunin var þó
ekki staðtölulega marktæk. Af þeim, sem
höfðu verið jákvæðir við berklaprófun fyrr á
árum, var aðeins einn þriðji enn jákvæður við
nýja prófun (tafla III). Þessi dvínun í svörun
var staðtölulega marktæk.
Af þeim sex sem höfðu verið berklaveikir
áður voru fjórir jákvæðir. Af þeim 37 þar
sem kalk hafði sést á lungnamynd, voru
12 (32,4%) jákvæðir. Aðeins einn hafði
verið bólusettur við berklum og var hann
neikvæður.
Eftir fyrstu prófun voru 62 af þeim 152, sem
reyndust neikvæðir, prófaðir aftur með 10 TU
og reyndust þá fimm jákvæðir (meðalþroti 13
mm). Svarar þetta til 12 einstaklinga (8%), ef
allir 152 hefðu verið endurprófaðir.
Alls voru 97 (45%) hópsins á lífi eftir þrjú ár
(tafla IV) og var ekki tölfræðilega marktækur
munur eftir niðurstöðum berklaprófs. Af þeim
29 sem voru með útkomu á berklaprófi áður
höfðu 16 (55%) glatað henni. Þar af voru 10
(62%) á lífi enn. Af hópnum sem hafði haldið
sínu fyrra jákvæða svari voru níu (69%) á
lífi enn. Ekki var heldur marktækur munur á
þessum tölum eftir dánartölu (tafla V).
Enginn sjúklingur í þessari könnun reyndist
hafa virka berkla.
UMRÆÐA
Meðal aldraðs fólks er jákvætt berklapróf
venjulega merki um fyrri sýkingu með
mannamýkóbakteríum - Mycobacterium
tuberculosis humanorum. Aðrar mýkóbakteríur
geta þó einnig valdið útkomu. Niðurstöðumar
benda til að eftir 60-70 ára aldur verði útkoma
á berklaprófi (RT-23, 5-TU) minna og minna
algeng. Fyrirbærið er vel þekkt, en meðal
vistmanna á hjúkrunarheimilum er svörunin
mjög breytileg (12,13).
Einnig er þekkt, að með því að nota sterkara
og sterkara túberkúlín, má auka fjölda þeirra,
sem svara. Þegar komið er upp í 250 TU,
svara helmingi fleiri en við 5-TU (14). í
rannsókn okkar var tíðni endurómunar metin
með 10-TU á 62 einstaklingum með neikvæða
svömn. Fékkst þá fram jákvætt svar hjá
fimm þeirra. Svarar það til 8% endurómunar
(booster effect). Væri það reiknað yfir á allan
hópinn, jafngilti það að 12 einstaklingar til
p>0.05