Læknablaðið - 15.09.1992, Page 17
277
NABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL
Ueknafclag íslands og
Læknafclag Rcykjavikur
M
78. ARG. - SEPTEMBER 1992
Skilyrði til náms
í læknadeild
Flestir, ef ekki allir, læknaskólar takmarka
fjölda nemenda og læknadeild Háskóla Islands
er hér engin undantekning. Um nokkurra ára
skeið hefur læknadeild takmarkað aðgang
við tiltekinn fjölda læknanema og lagt þar
til grundvallar árangur á skriflegum prófum úr
námsefni haustmisseris fyrsta árs.
Líta má svo á, að deildin ætli sér að velja
þá til læknanáms sem geta tileinkað sér best
þriggja mánaða námsefni og komið því til
skila á skriflegu prófi. Reynslan er þó sú, að
nýnemar eru einungis um helmingur þeirra
sem sleppa undir fjöldatakmörkin á hverju ári.
Hinn helmingurinn eru nemendur sem eru að
reyna í annað eða þriðja sinn. Nýnemar þurfa
því að tileinka sér þriggja mánaða námsefni
betur en keppinautar sem hafa haft 15 eða
27 mánuði til að íhuga efnið. Samkvæmt
upplýsingum frá Brynhildi Brynjólfsdóttur,
deildarstjóra nemendaskrár Háskóla Islands,
hafa á síðustu sex árum 136 læknanemar
sloppið framhjá fjöldatakmörkunum í fyrstu
tilraun, 90 í annarri tilraun og 16 eftir þrjár
tilraunir. Tvisvar á síðustu þremur árum
hafa nýnemar verið í minnihluta þeirra sem
fá að halda áfram námi (sjá mynd). í þeim
árgöngum sem nú eru á fjórða, fimmta og
sjötta ári voru nýnemar 65% þeirra sem fengu
að halda áfram námi, en síðustu þrjú árin
hefur hlutfall nýnema einungis verið 48%.
Ekki fer milli mála, að hæfi til bóklegs
náms skiptir miklu um hverjir eru hæfir til
læknisnáms og læknisstarfa. Aðrir mannkostir
eiga þó ekki síðri þátt í því að ákvarða
hverjir verða farsælir læknar. Læknadeild
lítur algerlega framhjá öllu öðru en hæfni til
bóklegs náms og notar lélega aðferð til að
mæla þennan eina þátt. Læknadeild þarf
Fjöldi læknanema, sem náöi
fjöldatakmörkunarprófum
Fjöldi lœknanema sem fékk að lialda áfram námi eftir
fjöldatakmörkunarpróf á fyrsta ári (numerus clausus).
Tölurnar sýna þróun á árunum 1986 til 1991. Svartir
kassar tákna þá sem náöu í fyrstu tilraun, hvítir hringir
þá sem náöu eftir aöra tilraun og þríhyrningar þá sem
náöu í þriðju tilraun.
að endurskoða þá aðferð sem beitt er við
val á læknum framtíðarinnar. Æskilegt er að
taka tillit til námsárangurs fyrri ára, og þá
ekki eingöngu í þeim greinum sem nýtast
beinlínis í læknisnámi. Læknar eiga að hafa
góða almenna menntun og það eru ekki síður
mannkostir að vera vel að sér í tungumálum,
stærðfræði eða listum, en að geta lært utanað
byrjunamámsefni í grunngreinum læknisfræði.
Þá getur starfsreynsla skipt máli. Vissulega
er vandasamt að meta stúdenta á breiðum
grundvelli, meðal annars vegna misjafnra
mennta- og fjölbrautaskóla, en líklega verra
að taka ekkert tillit til almennra mannkosta
og menntunar. Ef nota á byrjunamámsefni í
læknadeild sem hluta mælikvarðans, þarf að
tryggja að allir sitji við sama borð og bera
ekki nýnema saman við fólk sem hefur numið
þetta takmarkaða efni í eitt eða fleiri ár.
Einar Stefánsson