Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.1992, Page 19

Læknablaðið - 15.09.1992, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 279-85 279 Hans Jakob Beck, Jóhann Matthías Kjeld NOTKUN HEIMILIS- OG HJARTALÆKNA Á RANNSÓKNUM í EFNA- OG BLÓÐMEINAFRÆÐI ÁGRIP Könnuð var notkun heimilis- og hjartalækna utan sjúkrahúsa á rannsóknum í efna- og blóðmeinafræði. Augljós og marktækur munur var á sjúklingahópum og rannsóknanotkun læknanna úr þessum tveimur greinum. Könnunin bendir til þess, að læknar sérhæfi sig í störfum og vinni mikið forvamarstarf á stofum sínum. Notkun á rannsóknum virðist mjög í hófi og svipuð og meðal starfsbræðra á Norðurlöndum. INNGANGUR Besta (optimal) notkun lækna á rannsóknum er ekki þekkt. Ástæður fyrir rannsóknum eru oft flóknar og margþættar og breytast í tímans rás vegna tækniframfara. Á síðustu tveimur áratugum hafa framfarir í mælitækni á rannsóknastofum læknisfræðinnar í efna- og blóðmeinafræði orðið slrkar að kalla mætti hljóðláta byltingu. Tvennt má einkum til nefna: 1. Sjálfvirk, tölvustýrð mælitæki og 2. mælingar efna með geisla- og ónæmisefnum, svokölluð »radioimmunoassays« eða RIA- mælingar. Sjálfvirknin og tölvuvæðingin hefur gert rannsóknastofum mögulegt að gera fleiri mælingar og halda samt utan um niðurstöðurnar með minni kostnaði en áður, enda hafa rannsóknir orðið ódýrari og fjöldi þeirra margfaldast. RIA mælingamar og afkvæmi þeirra (ELISA, IRMA, EIA og fleiri) hafa hins vegar orðið til að fjölga tegundum rannsókna og aukið greiningargetu mælinga úr mikrógrömmum efnis í sýni niður í píkógrömm, eða með öðrum orðum milljónfaldað næmi mælinga. Sem dæmi um þetta mætti nefna mælingar á TSH og aldosteróni sem nú eru framkvæmdar næstum daglega, en var byrjað að gera hérlendis fyrir aðeins 13 til 14 árum. Einstofna (monoclonal), tveggja mótefna mæliaðferð fyrir TSH, mun Frá Rannsóknastofunni í Domus Medica, rannsókn 6, rannsóknastofu Landspítalans í efnameinafraeöi. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Jóhann Matthías Kjeld. næmari en fyrri aðferðir, var sett upp fyrir sex árum. Ennþá næmari mæliaðferðir fyrir TSH og önnur prótín hormón eru væntanlegar innan eins til tveggja ára. Fjöldi rannsókna í efna- og blóðmeinafræði er mismunandi meðal þjóða. Talið er að mest sé gert af þeim í Bandaríkjum Norður- Ameríku, enda hvetja læknasamtök og heilbrigðisyfirvöld þar stundum til þess. I því sambandi má nefna U.S. National Cholesterol Education Program (NCEP) sem gefið hefur út leiðbeiningar (clinical guidelines) þar sem mælt er með ákveðnum kólesteról styrk (<240 mg/L = <6,21mmól/L) í blóði fólks og ýtir þannig undir að leitað sé að vísum um byrjandi sjúkdóma ellegar kannaðir áhættuþættir (1). Aðrar þjóðir hafa farið sér hægar í þessum efnum, meðal annars vegna mikils kostnaðar. Af framansögðu má vera ljóst að þáttur efna- og blóðmeinafræðirannsókna í sjúkdómspreiningu, leit og eftirliti vex stöðugt. Á læknastofum eru nú gerðar margvíslegar rannsóknir á fólki sem áður hefði þótt gefa ástæðu til innlagnar á sjúkrahús. Greining sjúkdóma og meðferð með öflugum rannsóknum hefur þannig færst nær grasrótinni. Rannsóknastofur gegna mikilvægu hlutverki í heilbrigðiskerfinu, en rannsóknastofunotkun lækna utan sjúkrahúsa hefur lítt verið könnuð hingað til og engin sundurliðuð könnun er til um þetta á sjúkrahúsum hérlendis. Slíkar kannanir gefa upplýsingar um vinnubrögð lækna, viðfangsefni þeirra og sjúklingahópa, auk þess sem unnt er að afla upplýsinga um rekstrar- og kostnaðarliði við þennan hluta heilbrigðisþjónustunnar. Þá hjálpa slíkar athuganir sérfræðingum rannsóknastofanna við ráðgjöf til lækna um notkun rannsókna og leggja grunn (viðmiðun) að frekari könnun á örri þróun rannsóknastarfseminnar. Erlendis hefur hlutur rannsóknastofa í

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.