Læknablaðið - 15.09.1992, Page 22
282
LÆKNABLAÐIÐ
eru algengustu rannsóknirnar hjá báðum
hópum lækna, en að öðru leyti er mikill
munur á. Mælingar á blóðfitu, blóðsykri,
nýmaprófum og elektrólýtum voru mun tíðari
hjá hjartalæknum. Beiðnir heimilislækna
dreifðust á fleiri fiokka, en beiðnir um
mælingar á lifrarprófum, sermisprótínum og
jámbúskap voru mun algengari hjá þeim en
hjartalæknum.
Fjöldi rannsókna á hverri beiðni reyndist
nokkuð breytilegur eftir aldri, einkum hjá
heimilislæknum, eins og sjá má á mynd
4. Meðalfjöldi umbeðinna rannsókna á
beiðni eykst að marktækum mun með aldri
hjá báðum hópum lækna fram að 30-39
aldri og nær hámarki hjá aldurshópi 50-
59 ára hjá hjartalæknum en 60-69 ára hjá
heimilislæknum. Mestur munur milli hópanna
sést hjá sjúklingum yfir sextugu, en hjá
þeim biðja heimilislæknar um rúmlega eina
rannsókn umfram hjartalækna.
Reiknaður var út kostnaður við rannsóknimar
samkvæmt gjaldskrá Læknafélags
Reykjavíkur. Meðalkostnaður á hverja komu
voru 44,9 einingar hjá heimilislæknum en
38,7 einingar hjá hjartalæknum. Hlutfall
kostnaðar vegna algengustu rannsóknanna,
blóðhags og sökks, var svipaður hjá báðum
hópum lækna, tæp 25%. Hjá heimilislæknum
skar flokkurinn lifrarpróf/ensím sig nokkuð
úr með 22% kostnaðar og hjá hjartalæknum
blóðfitumælingar með 30% kostnaðar.
Kostnaður við aðra rannsóknaflokka skar sig
ekki áberandi úr.
Endurteknar rannsóknir: Langflestir
sjúklinganna voru aðeins sendir einu sinni
til rannsóknastofunnar á könnunartímabilinu
(tafla II). Frá hjartalæknum, sem sendu
sjúklinga sína ívið oftar til endurtekinna
rannsókna en heimilislæknar, komu liðlega
70% einu sinni og 14% oftar en tvisvar. Frá
heimilislæknum komu 74% sjúklinga einu
sinni en 9% oftar en tvisvar.
A mynd 5 sést hversu langur tími leið
að jafnaði milli fyrstu og annarrar komu
sjúklings, hjá þeim sem komu oftar en
einu sinni. Heimilislæknar endursendu
fleiri af sínum sjúklingum en hjartalæknar
innan mánaðar. Aftur á móti endursendu
hjartalæknar fleiri af sínum sjúklingum
eftir 6-12 mánuði og var mjög marktækur
munur (p<0,001) milli læknahópanna tveggja
Number of tests per request
9 . ----
H General practitioners
8 “ S Cardiologists *
7 •
6
5
4
3 |
2 7
1 ji
\V/.
0
rh *
íiliS
0-9
20-29
10-19 30-39
ÍÍÍÍ,
1111
V/J^ Ip ip tp Ipl
40-49 60-69 80+
50-59 70-79
Age groups (years)
Fig 4. Average number of tests requested on each referral
for eacli age group of patients by general practitioners
and cardiologists. The vertical bars denote the 95%
confdence limits. The asterisks show a significantly
(p<0.05 or less) higher average number of tests per
request for that age group than for the next younger one.
General practitioners Cardiologists
<1 month Hl-6 months □ 6-12 months §>12 months
Fig 5. The patients who visited the lab two times or more
during the survey period have been grouped according to
tlie time interval (montlis) between their first and second
visits. Data are sliown in actual numbers of second visits
and as percentage of total númber of second visits for
eacli group. The time periods studied, were less tlian a
month, 1-6 montlis, 6-12 montlis and more tlian a year
after the first visit. There was a significant difference
between general practitioners and cardiologists in this
respect for the first and third period.
á þessum tveimur tímabilum. Ekki var
marktækur munur milli endurtekninga á
öðrum tímabilum.
UMRÆÐA
Læknum bjóðast stöðugt fleiri og betri
rannsóknir til að styðjast við og skipa
rannsóknir í efna- og blóðmeinafræði