Læknablaðið - 15.09.1992, Síða 23
LÆKNABLAÐIÐ
283
Table II. Number of patients referred once, twice and
more than twice during the survey period.
Number of visits to the laboratory
one two more
N (%) N (%) N (%)
From general practitioners N = 10588.. 7934 (74.2) 1711 (16.2) 942 ( 8.9)
From cardiologists N = 3526 .. 2495 (70.8) 539 (15.3) 492 (13.9)
þar stóran sess. Læknar tileinka sér nýjar
rannsóknir yfirleitt fijótt og fylgjast vel með
í framförum í meðferð sjúklinga, en auknu
aðhaldi í fjárútlátum heilbrigðiskerfisins víða
um lönd hefur fylgt krafa unt sparnað og
hnitmiðaðri notkun lækna á starfstækjum
sínum (11). Læknar verða nú í auknum mæli
að taka tillit til krafna um beinskeytta notkun
þeirra meðala sem þeir beita í starfi, meðal
annars rannsókna. Skort hefur upplýsingar
um starfsvenjur lækna, þar með talið notkun
þeirra á rannsóknum, en með þessari rannsókn
er leitast við að kanna helstu þætti í notkun
tveggja hópa íslenskra lækna á rannsóknum í
efna- og blóðmeinafræði utan spítala.
Sjúklingahópar frá heimilislæknum
og hjartalæknum eru gerólíkir. Frá
heimilislæknum koma sjúklingar á öllum
aldri og konur eru þar fleiri en karlar.
Könnun á heilsugæsluþjónustu árið 1981
(12), sem náði aðeins til heilsugæslustöðva
utan höfuðborgarsvæðisins sýndi að fleiri
samskipti voru vegna kvenna en karla, þó
munurinn væri minni en hér kom fram.
Sú rannsókn sýndi að konur voru frekar
sendar í rannsókn en karlar. Obirt rannsókn
landlæknisembættisins á heilsugæsluþjónustu
1988 tók einnig til tveggja heilsugæslustöðva
í Reykjavfk og benda niðurstöður til
þess að rannsóknanotkun heimilislækna í
Reykjavík kunni að vera eitthvað öðruvísi en
starfsbræðra þeirra úti á landi (13), en ítarlegri
könnunar er þörf.
Bresk rannsókn á rannsóknastofunotkun
heimilislækna sýndi að fleiri rannsóknir
voru gerðar á konum en körlum. Þótti
þetta skýrast af fleiri sjúkdómsgreiningum
meðal kvenna en karla (14). Kynjamunur á
rannsóknum heimilislækna í danskri rannsókn
var svipaður og hér kemur fram (2). I dönsku
rannsókninni var 20% sjúklinga sem komu á
stofu vísað í rannsóknir, og voru þá meðtaldar
þvagrannsóknir á sjálfum læknastofunum og
hjartarafrit.
Aldurs- og kynskipting sjúklingahópsins frá
hjartalæknunum kemur vel heim við þekkta
tíðnidreifingu hjarta- og æðasjúkdóma hér
á landi (15). Flestir sjúklinganna eru yfir
fimmtugu og karlar fleiri en konur, nema í
elstu hópunum þar sem kynjamismunurinn
jafnast og snýst síðan við með fleiri konum
en körlum meðal sjúklinga 80 ára og eldri,
en hjartasjúkdómar gera vart við sig seinna á
ævinni meðal kvenna en karla. Einnig verður
að hafa í huga að meðallífslíkur kvenna eru
4,7 árum lengri en karla (16), en niðurstöður
rannsóknar okkar eru ekki aldursstaðlaðar.
Greinilegur munur var á vali rannsókna
hjá heimilislæknum og hjartalæknum.
Eins og búast mátti við biðja báðir
hópamir oftast um blóðhag og sökk, en
heimilislæknar velja rannsóknir á breiðara
sviði en hjartalæknar. Þá flokka rannsókna
sem hjartalæknar nota mest er auðvelt
að tengja hjarta- og æðasjúkdómum. Mat
á áhættuþáttum æðakölkunar felur í sér
mælingar á blóðfitum og blóðsykri, fylgjast
þarf með nýrnaprófum og elektrólýtum
margra sjúklinga með hjartasjúkdóma og
háþrýsting. Mælingar skjaldkirtilsprófa,
sem eru ámóta tíðar hjá hjartalæknum og
heimilislæknum, má eflaust skýra með
tengslum skjaldkirtilssjúkdóma og einkenna
frá hjarta. Heimilislæknar nota fleiri tegundir
rannsókna en hjartalæknar, eins og eðlilegt
var að ætla. Könnun með sjiurningalista
meðal 85 heimilislækna í Oðinsvéum
í Danmörku á rannsóknastofunotkun
(2) sýndi að helstu ástæður rannsókna
voru þessar: Vegna sjúkdómsgreiningar
40,6%, vegna eftirlits 44,3% og vegna
fyrirbyggjandi aðgerða og vottorðaskrifa
13,2%. Þessi danska rannsókn tók til beiðna
um þvagrannsóknir og hjartarafrit auk
meinefna- og blóðmeinarannsókna. Þar eð val
rannsókna var svipað og hér kemur fram hjá
heimilislæknum, má telja líklegt að ástæður
rannsókna séu svipaðar hjá íslenskum og
dönskum heimilislæknum og þeir meti þær
svipað. Meðalfjöldi rannsókna á hverri beiðni
frá heimilislæknum eykst með hækkandi aldri
og nær hámarki meðal sjúklinga 60-69 ára
með 7,7 rannsóknir á beiðni, en meðaltal allra