Læknablaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 46
304
LÆKNABLAÐIÐ
sagður hafa kallað sjúkdóminn ischias (e.
sciatica) fyrstur manna en lengi vel var
sjúkdómurinn þekktur sem Malum Cotugnii
(4).
Um og eftir miðja síðustu öld urðu miklar
framfarir í læknisfræði beggja vegna
Atlantsála, meðal annars á þessu sviði.
Fram á sjónarsviðið komu læknar sem lýstu
einkennum þessa sjúkdóms nákvæmlega.
Líffærafræði liðþófans varð kunn í smáatriðum
og stundum var lýst útbungun á liðþófa. Var
þá yfirleitt talið að þetta væru einhverskonar
æxli og dettur mér í hug að þarna hafi verið
um að ræða stórar útbunganir þar sem
liðþófinn hafi brostið og hluti liðþófakjarnans
legið utan hans (extrusion, hemiation).
Stundum voru þau kölluð sarcoma en oftast
enchondroma, chondroma, achondrosis eða
íibrochondroma (5). Eiginlegt brjósklos í baki
var að flestra áliti aðeins sjaldgæf afieiðing
alvarlegra bakáverka. Yfirleitt var þó ekkert af
þessu talið orsaka settaugarbólgu heldur væri
þar fyrst og fremst uin taugabólgu (neuritis)
að ræða.
í erindi sem flutt var á fundi The New
England Surgical Society í september 1933
og birtist í grein næsta ár á eftir leiddu þeir
Mixter og Barr menn loks í allan sannleika
um að orsök settaugarbólgu væri í raun
útbungun á liðbrjóskinu (protrusion, extrusion,
herniation), og að stórar útbuiiganir eða lausir
bitar af liðþófa í mænugangi væru ekki æxli
heldur brjósklos (6).
AÐ SKERA EÐA EKKI SKERA!
Nærri má geta að menn hafi haft árhundraða
ef ekki árþúsunda reynslu í að meðhöndla
áverka á hrygg en talið er að Paul frá
Aegina eigi heiðurinn af fyrsta þynnunámi
(laminectomy) sem gert hefur verið en hann
var Grikki, uppi á sjöundu öld. Hann mælti
með því að skera inn að broti ef beinið þrýsti
á mænuna og fjarlægja það síðan. Hryggtinda
skyldi fjarlægja ef þeir orsökuðu verki. Eftir
þetta er oft talað um í fræðibókum fyrri tíma
að gera aðgerðir á hrygg eftir slys en þess
munu þó fá ef nokkur dæmi.
A sextándu öld tóku bæði Ambroise Paré,
fyrsti nútímalegi skurðlæknirinn, og Fabricius
frá Hilden, faðir þýskra skurðlækninga, upp
aðferð Pauls, án þess þó að aðgerðin yrði neitt
almennari. Arið 1762 er þó að finna eitt dæmi
þar sem byssukúla var fjarlægð úr hrygg.
í Englandi urðu í byrjun nítjándu aldar
miklar deilur um hvort gera skyldi þynnunám
(eftir slys). Kom það meðal annars til af
því að Henry nokkur Cline hafði gert fyrsta
raunverulega þynnunámið (á síðari tímum) í
London árið 1814. Sjúklingurinn dó en eigi
að síður vakti þessi aðgerð mikla athygli og
varð til þess að fleiri fóru að gera hana þrátt
fyrir mikla andstöðu og lélegan árangur. í
Þýskalandi og Frakklandi var þetta varla á
dagskrá ennþá.
í byrjun þessarar aldar var því meðferð
við bakveiki og einkennum settaugarbólgu
enn mest almenns eðlis. Þó kom fyrir að
sjúklingar væru settir í gifsbol eða jafnvel
spengdir. Frá því um og eftir aldamót fóru
aðgerðir þó smám saman að vinna á, oftast
á þeim forsendum að um æxli væri að ræða
en stundum eftir slys. Birtust um þetta
margar greinar þekktra skurðlækna í virtum
fræðiritum.
NÚ MÁ SKERA!
Niðurstöður þeirra Mixter og Barr settu
skriðuna af stað. Aðgerðum vegna brjóskloss í
baki fór ört fjölgandi og samtímis voru þær
endurbættar, gerðar minni og markvissari.
Skurðir voru upphaflega langir, enda lítið um
rannsóknir og varð að treysta á »exploration«
á að minnsta kosti tveimur liðbilum hverju
sinni. Skurðir voru beinir, bogalaga eða
jafnvel H- og U-laga, í eða við miðlínu.
Beininu var ekki hlíft. Hryggtindar og
liðbogaþynnur (laminur) beggja vegna voru
fjarlægðar og opnað inn á mænusekkinn og
síðan farið í gegnum hann. Menn töldu það
samt mundu veikja hrygginn að taka svo
mikið bein og eftir því sent fleiri sjúklingar
lifðu aðgerðina af varð þeim hugleiknara að
varðveita beinið og gerðu sumir þá svokallaða
»osteoplastiska laminectomy«. Að taka aðeins
aðra liðbogaþynnuna var þó lýst þegar árið
1902 af ítalanum Lorenzo Bonomo og vann
sú aðgerð smám saman á.
Á síðari árum hefur oftast verið látið nægja
að kringja aðeins úr liðbogaþynnum fyrir ofan
og neðan liðþófann en þegar árið 1939 greindi
þó J.G. Love frá því að brjósklos væri jafnvel
hægt að fjarlægja án þess að taka nokkurt bein
(7).
Smásjáraðgerðir við brjósklosi í baki urðu
vinsælar upp úr 1974. Yasargil, Williams