Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 23

Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 23
Hafðu samband sími 444 7000 • arionbanki.is Skammtímabinding er óverðtryggður innlánsreikningur og spennandi nýjung fyrir þá sem vilja fasta vesti út binditímann. Kynntu þér kosti Skammtímabindingar á arionbanki.is, hringdu í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi okkar og kynntu þér fjölbreytt úrval innlánsreikninga. Fastir vextir út binditímann • Binditími er ákveðinn við stofnun reiknings: 3, 6, 9 eða 12 mánuðir. • Lágmarksinnlegg er 500 þúsund krónur og innstæðan er bundin út binditímann. • Nýjung: Vextir eru fastir allan binditímann. • Að loknum binditímanum greiðist höfuð- stóllinn út ásamt vöxtum. ÍS LE N S K A S IA .IS A R I 5 1 8 0 2 1 0 /1 0 tíma sem þú hefur setið í borgarstjórastólnum? Já, það hefur komið nokkrum sinnum fyrir. Til að byrja með átti ég það til að loka mig inni á klósetti, horfa í spegilinn og hugsa: Hvern andskotann ertu búinn að koma þér út í? En ég er búinn að taka ákvörðun um að klára þennan tíma og reyna að gera það vel. Varðandi leiðindin; ég veit að pólitískir andstæðingar – aðrir flokkar – eru engir vinir mínir og munu reyna að skapa mér eins dapurlegan vinnudag og þeir mögulega geta. Ég veit það alveg. Og ég veit að fjölmiðlar munu ekk- ert endilega kóa með mér. Ég er undir það búinn. En ef stemningin í þjóðfélaginu yrði á þann veg að ég ætti að segja af mér þá myndi ég gera það því ég lít svo á að ég sé að gera þetta fyrir fólkið í borginni. En utanaðkomandi leiðindi hafa ekki þessi áhrif. Ég hef viljað passa að einangrast ekki, því það er svo ljótt þegar stjórnmálamenn eru kosnir af fólki og svo sjást þeir ekki meir. Hvenær sér maður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra? Aldrei, hún er hvergi. Og því verður til tortryggni, ótti og einangrun. Það er ekki gott og leiðir til misskilnings. Tökum annað dæmi: Um síðustu helgi var mjög merkilegt viðtal við Stein- grím J. Sigfússon á fréttavefnum vísi.is – held ég – þar sem hann talaði um Icesave. Hann var alltaf að tala um mennina. Menn eru að tala saman og það er álit manna að þetta muni leysast. Alltaf eitthvað mennirnir. Það er skrýtið orðaval því Steingrímur er fullorðinn maður í ábyrgðarstöðu. Tilfinn- ingin var svona eins og – farðu að sofa. Pabbi ætlar að tala við menn. Hvern andskotann eru mennirnir að gera? Þetta er svona svipað og að tala alltaf um sjálfan sig í þriðju persónu. Gætir þú gengið burt frá borg- inni í hvaða ástandi sem væri þegar tíma þínum lýkur eða ertu með markmið sem þú vilt ná? Markmiðið er að klára þessi fjögur ár eins fallega og ég get og hægt er. Síðan kannski hætti ég og skrifa sjónvarpsþætti með Ragnari Bragasyni sem gerast á vettvangi stjórnvalda á Íslandi. Ég held að það gæti orðið gargandi snilld. Ég er bara búinn að vera hundrað daga og ég er kominn með efni í eina seríu. Ég gæti gert létta, íslenska útgáfu af The Wire. Eftir fjögur ár verð ég kannski kominn með meiri metnað og langar að halda áfram. Ég bara veit það ekki. En það væri ógeðslega gaman, ef svo fer sem horfir, að við næðum okkur út úr þessu þunglyndi á einu til tveimur árum. Þá væri mjög gaman að fylgja því eftir þegar fer að ganga vel. Til að byrja með átti ég það til að loka mig inni á klósetti, horfa í spegilinn og hugsa: Hvern andskotann ertu búinn að koma þér út í? Lj ós m yn d/ H ar i á bekknum 23 Helgin 1.-3. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.