Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 48
Franskbrauð með gleraugu Var það endilega gott fyrir Björgvin G. Sigurðsson að sleppa við Lands- dóm? Er eðlilegt að maðurinn, sem bar ábyrgð á bönkunum sem bankamálaráðherra, sleppi við ákæru? Svarið er já ef þú heitir Björgvin G. Sigurðsson. Alþingis- menn líta á hann sem franskbrauð, gaurinn sem fær alltaf að vera með og má ekki klukka. Síðan er hann líka gaurinn með gleraugun, þessi sem mamma þín bannaði þér að lemja í æsku. Og hann er aftur kominn inn á þing, bara til að vera með. Borgarstjóri nýtur samúðar Það vakti athygli á dögunum þegar forsprakkar Frjálslynda flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson og Sigurjón Þórðarson, kvörtuðu yfir því að erfiðara væri að fá fund með Jóni Gnarr borgarstjóra en Osama Bin Laden. Myndi einhver heilvita maður rýma til í dagskránni hjá sér til að hitta þessa heiðursmenn og ræða um hvað Ólafur F. Magnússon gerði við styrk til flokksins frá borginni? Var Páll Vilhjálms ekki laus? Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms- málaráðherra, skrifar mikla grein um ris og fall fjölmiðla í eigu Jón Ásgeirs Jóhannessonar, í tímaritið Þjóðmál. Jakob F. Ásgeirsson, rit- stjóri tímaritsins, hefur greinilega leitað dyrum og dyngjum að manni með yfirburða hlutlausa þekkingu á þessum fjölmiðlum og komist að þeirri niðurstöðu að fyrst Páll Vilhjálmsson var ekki laus þá var Björn Bjarnason rétti maðurinn í verkið. Í greininni fjallar Björn á hlutlausan og yfirvegaðan hátt um fjölmiðlana í texta sem er algjörlega laus við gildishlaðin orð eins og til að mynda Baugsmiðlar. Eru allir að misskilja þetta Hreiðar? Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, sendi ráðamönnum harðort bréf í síðustu viku þar sem hann kvartaði yfir skort á fagmennsku hjá íslenskum stofnunum og tiltók sérstaklega Fjármálaeftirlitið. Var helst á honum að skilja að starfs- menn þar hefðu misskilið gögnin um Kaupþing svo hrapalega að þeir hefðu komist að þeirri niðurstöðu að stjórnendur bankans hefðu mögulega gerst sekir um afbrot. Sem er auðvitað fjarstæða að mati Hreiðars. Starfsmönnum FME er þó vorkunn því kollegar þeirra hjá bresku efnahagsbrotadeildinni (SFO) og Europol virðast líka hafa misskilið gögnin og rannsaka nú Kaupþing hátt og lágt. Sannleikurinn mun gera yður frjálsa Eiríkur Jónsson, hinn brottrekni ritstjóri Séð og heyrt, vann á sínum tíma á DV undir ritstjórn Jónasar Kristjánssonar. Jónas hrósar Eiríki í bloggi sínu, segir hann hafa verið fæddan Séð og heyrt ritstjóra og raunar einn af bestu blaðamönnum sem hafi kynnst. Örsjaldan hafi hann hins vegar haft ama af Eiríki þar sem hann hafi haft það sem betur hljómaði. Eiríkur reyndi þanþol fleiri ritstjóra en Jónasar og í því ljósi er fróðlegt að lesa kveðju Eiríks sem segir helsta afrek sitt hafa verið að innleiða almennar og viðurkenndar verkreglur sóma- kærra fjölmiðla sem vilja hafa það sem sannara reynist. „Maður er alltaf að reyna að segja satt,“ segir Eiríkur og það virðist hafa tekist því hann segist hafa komist upp með „þessi ósköp“ án málaferla. Lok, lok og læs Dýru góðæris- mannvirkin eru nú tekin í notkun hvert af öðru, Landeyjahöfn á liðnu sumri, Bolungarvíkurgöng um síð- ustu helgi og Héðinsfjarðargöngin á morgun. Öll voru mannvirkin dýr og umdeild en ofurríkir Íslendingar þess tíma tóku slaginn. Látum það vera. Verra er ef fíniríð virkar ekki. Alkunna er að Landeyjahöfn hefur verið lokuð dögum saman vegna sandburðar. Herjólfur strandar ef hann hættir sér inn fyrir hafnar- kjaftinn. Reiknað var með að sand- mokstur úr höfninni kostaði 30 milljónir á ári en nú hefur komið í ljós að moksturinn kostar 30 milljónir á mánuði. Sama er uppi á teningnum fyrir vestan. Bolungar- víkurgöngin lokuðust a.m.k. í tvígang í vikunni þegar kviknaði á lokunarljósum og slár fóru niður. Rafmagnsbúnaður ganganna er til skoðunar. Spurningin er bara hversu lengi opið verður í Héðins- fjörðinn eftir að Ögmundur og Möller klippa á borðann? Evrópubandalagssíða á musteri tónlistarinnar Á spjallþráðum á Eyjunni vakti, Arnþór Jónsson selló- leikari, fyrrum stjórnarmaður í Sin- fóníunni athygli á Evrópubandalags slagsíðu á dagskrá Hörpu fyrstu vikurnar: Óðurinn til gleðinnar, hinn formlegi þjóðsöngur Evrópu- ríkja, væri fyrsta verk sem hljómaði í Hörpunni og í sumar yrði söng- leikurinn eftir júrókratana í Abba á verkefnaskránni. Það verður Askenasí sem stjórnar Óðnum en Óskar Einarsson sem kunnastur er af stjórn Gospelkórsins mun fyrstur sveifla sprotanum í gryfju Hörpu. 48 viðhorf Helgin 1.-3. október 2010 Um daginn birtist skoðanakönnun á fylgi stjórnmálaflokkanna, hverrar niðurstaða þarf ekki að koma neinum á óvart sem fylgist með þjóðmálaumræðunni, nema ef vera skyldi sú staðreynd hversu margir taka ekki afstöðu. Þetta er þróun sem sést hefur í öllum könnunum frá hruni. Sú vantrú og það vantraust sem stjórnmálamenn búa við virðist alls ekki vera að minnka, heldur aukast ef eitthvað er. Þegar ég flutti mína síðustu ræðu á Alþingi 31. maí síðastliðinn gerði ég einmitt þetta vantraust að umtalsefni. Þar ræddi ég mikilvægi þess að stjórnmálaflokkar og stjórnmálastarf tæki breytingum á næstunni en til að breyta vinnubrögðum og endurvekja traust þyrftu margir að líta í eigin barm. Nú eru kosningar til stjórnlagaþings fram undan en kjördagur hefur verið ákveðinn 27. nóvember og þingið á að koma saman eigi síðar en 15. febrúar 2011 og ljúka störfum fyrir vorið. Framboðsfrestur þeirra sem hyggjast bjóða sig fram rennur út hinn 18. október, eftir tæpar þrjár vikur. Enn hefur afar lítil umræða farið fram um þessar kosningar en ég tel mjög mikilvægt að vel takist til með þær. Vegna þess hvernig stjórnarskráin er getur stjórnlagaþing einungis verið ráðgefandi þannig að á endanum mun alltaf koma til kasta Alþingis að afgreiða þær tillögur sem koma frá stjórnlagaþingi. Á þingið munu veljast minnst 25 og mest 31 einstaklingar og skulu þeir kosnir persónukosningu eins og segir á vefnum kosning.is þar sem hægt er að kynna sér verkefni stjórnlagaþings og fræðast um praktísk mál varðandi framboðsfresti, það hvernig fólk ber sig að við að tilkynna um framboð o.s.frv. Allt er þetta hið besta mál. Þar kemur jafnframt fram að landskjörstjórn mun útbúa kynningarefni þar sem hver frambjóðandi fær tækifæri til að kynna sig með mynd og í rituðu máli. Ég verð því að segja að eftirfarandi setning vakti athygli mína: “Kostnaður hvers frambjóðanda vegna kosningabaráttu má að hámarki nema 2 millj. kr.”. Við virðumst enn vera föst í gamla prófkjörsfyrirkomulagi flokkanna sem ég tel algerlega úrelt fyrirbæri. Ef allir eiga að sitja við sama borð á einfaldlega að láta nægja þetta sameiginlega kynningarefni. Frambjóðendur geta skrifað í blöð og svo er það einfaldlega þannig að sumir eru þekktari andlit en aðrir og munu líklega njóta þess. En í guðanna bænum, hættum að tala bara um lærdóm af hruninu, lærum af slæmri reynslu peningaprófkjara og förum að breyta vinnubrögðum og endurvekja traust. Aðeins þannig komumst við upp úr hugsunarhætti þeim sem setti okkur á hausinn. Steinunn Valdís Óskarsdóttir er sagnfræðingur Ef allir eiga að sitja við sama borð á einfaldlega að láta nægja þetta sameiginlega kynningarefni. Kosningar eftir tvo mánuði Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040 w w w . h i r z l a n . i s Tilboð 49.900,- Fullt verð 66.900,- hlynur, beyki og hvitt Tilboð 79.900,- Fullt verð 108.600,- kirsuber og coffee Ti lbo ð Ti lbo ð Tilboð 75.700,- Fullt verð 126.200,- Tilboð 39.300,- Fullt verð 78.600,- -5 0% Hæðarstillanleg (handsnúin) skrifborð í hnotu Rýmingarsala rýmum fyrir nýjum vörum Tilboð 15.500,- Fullt verð 20.300,- beyki og hvitt -4 0% af V ii wa v eg gs am st æð um í hl yn o g hv ít u Tilboð 47.300,- Fullt verð 78.800,- 30 %-4 0% af ö ll um F le x f at as ká pu m Ti lbo ð Fært til bókar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.