Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 66
66 dægurmál dægurmál 67 Helgin 1.-3. október 2010 Helgin 1.-3. október 2010 F í t o n / S Í A 4 X 0 2 1 0 2 0 1 0 GRÍPTU GÆSINA Fjórfaldur Lottópottur stefnir í 24 milljónir. Leyfðu þér smá Lottó! 02/10 20 10 | WW W.LOTTO .IS MILLJÓNIR Skráðu þig sem aðdáanda Lottó á facebook.com/lotto.is Jón Ragnar Jónsson sendir frá sér nýtt lag í dag sem hann samdi með Kristjáni Sturlu Bjarnasyni píanólei- kara. LjóSm./Hari Þ egar Jón er spurður út í það hvort hann ætli að hasla sér völl í Ameríku vill hann gera sem minnst úr því. „Ég var auðvitað í námi þarna í Bandaríkjunum og þetta er kannski bara ein leið fyrir mig til að hitta vini mína þarna úti. Þeir hafa verið duglegir að koma upp giggum fyrir mig þannig ég hef getað farið út að spila. Eins og staðan er í dag virðist þetta ætla að ganga vel hér á Íslandi og látum það bara duga í bili. Það er samt þannig að landið er lítið og það verður að velja og hafna hvar maður vill vera hverju sinni. Ef maður er alls staðar fær fólk fljótt leið á manni og það er ekki gott.“ Í gegnum vin sinn komst Jón í kynni við konu í New York sem rekur almannatengslafyrirtæki og hélt nokkra tónleika þar ytra síðastliðið haust. „Þessi kona er ágætlega tengd í þessum bransa og kom upp nokkrum tónleikum sem heppnuðust vel hjá okkur. Það er óneitanlega skemmtileg lífreynsla að koma fram í New York.“ Hvernig er síðan hjúskaparstaðan hjá þessum unga manni, er hann á lausu eða frátekinn? „Ég er frátekinn og á alveg yndislega kærustu. Við höfum verið saman frá því að við vorum 16 og 17 ára og ýmislegt hefur reynt á okkar samband. Það stóð til dæmis af sér fjarbúð í þrjú ár á meðan ég var erlendis í námi þannig að það heldur eflaust allt,“ segir Jón og fer nett hjá sér en er alveg viss um hvar hjarta hans á heima. Nýtt lag frá Jóni fer í spilun í dag, föstudag. Það heitir „When you´re around“ eða „Þegar þú ert nálægt“! „Þetta er svona „main stream“ metnaðarfullt popplag eins og við höfum verið að gera, ég og Kristján Sturla Bjarnason sem spilar undir á píanó.“ Spurður hvort plata sé í vændum svarar Jón að þeir félagar hafi vissulega rætt þann mögu- leika. „Við eigum nóg af lögum og það hefur gengið mjög vel hjá okkur að undanförnu, en við teljum það of mikið stress að ætla að henda í plötu fyrir jólin. Við stefnum því að útgáfu á plötu með vorinu.“ Rísandi stjarna Jón Ragnar Jónsson er skærasta stjarnan í íslensku tónlistarlífi um þessar mundir. Það sem margir vita þó ekki um þennan unga mann er að hann er menntaður hag- fræðingur frá Boston University, lauk þar námi á skólastyrk, spilandi fótbolta og hefur haldið þó nokkra tónleika þar vestanhafs. FjölhæFur jónsson Er mEð marga bolta á loFti Auður Eva Auðunsdóttir audur@frettatiminn.is M ér finnst hún alveg sjúklega falleg,“ segir söngvarinn sam- kynhneigði, Daníel Óliver, um dálæti sitt á þokkadísinni Ásdísi rán. Daníel Óliver setti færslu á Facebook-síðu Ásdísar þar sem hann bað hana að hætta að setja inn myndir af sér sem fengju hann til að langa til að hætta að vera hommi. „Ef einhver gæti afhommað mig þá væri það hún,“ segir Daníel Óliver og hlær. „Hún er falleg og sterkur karakter. Svona kona sem kemur sér áfram sjálf. Ég ber mikla virðingu fyrir henni ,“ segir Daníel Óliver. Hann skilur ekki þá gagnrýni sem Ás- dís Rán hefur fengið á sig. „Fólk fattar hreinlega ekki hvað hún hefur gert. Hún hefur búið til fyrirtæki úr sjálfri sér. Geri aðrir betur.“ Hann er þó ekki á leiðinni yfir í hitt liðið eins og það er orðað. „Nei, ekki enn sem komið er.“ -óhþ „Ef einhver gæti afhommað mig þá væri það Ásdís Rán“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.