Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 15

Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 15
islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4000 Lækkaðu yfirdráttinnAð greiða niður yfirdráttinn með samningi við Íslandsbanka er einhver besti sparnaður sem völ er á því þú lækkar vaxtakostnaðinn svo um munar. Dæmi* Yfirdráttur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 360.000 kr. Mánaðarlækkun yfirdráttar . . . . . . 15.000 kr. Fjöldi mánaða . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24 Vaxtakostnaður lækkar vegna þess að yfir dráttur inn minnkar og vegna þess að vaxtaprósentan lækkar. Lægri vaxtaprósenta . . . . . . . . . . . . 12.188 kr. Lækkandi yfirdráttur. . . . . . . . . . . . 43.125 kr. Sparnaður á tímabili . . . . . . . . . . . 55 .313 kr . Þú færð nánari upplýsingar á islandsbanki .is og hjá ráðgjafa í þínu útibúi . * Í dæminu er miðað við að yfirdráttarvextir lækki úr 12,50% í 9,25%. Þegar þú greiðir niður yfirdráttinn þá lækkum við vextina hjá þér Michael Jenkins varð ástfanginn af Íslandi í fyrsta sinn sem hann kom hingað sumarið 2008. Það væri auðvitað hálfgalið að ef gaur á skrifstofu í New York, sem talar hvorki né skilur íslensku væri með puttana í efninu. Heillaðist algjörlega af Íslandi E igandi Fréttatímans er Miðopna ehf. sem er í eigu nokkurra lykilstarfs- manna. Félagið er fjármagnað með láni frá bandaríska fjárfest- inum Michael Jenkins. Fréttatím- inn ræddi við Jenkins til að fræð- ast um áhuga hans á Íslandi og þá ákvörðun hans að fjármagna þennan fjölmiðil. Jenkins er tæplega fimmtugur og rekur fjárfestingarsjóð á Wall Street. Hann vill þó taka það fram að það er hann persónulega sem lánar Miðopnu þá peninga sem félagið hefur úr að spila. „Ég kom fyrst til Íslands sum- arið 2008 og heillaðist algjörlega af landinu. Fólkið er mjög vel menntað og áhugi á menningar- arfinum höfðaði mjög vel til mín. Þetta land er einstakt og ég full- yrði að það er ekkert annað land eins í heiminum, hvorki hvað varðar fegurð né aðgang að nátt- úruauðlindum. Þrátt fyrir hrunið fannst mér borðleggjandi að hér lægju mikil tækifæri í langtíma- fjárfestingum. Ég kynntist nokkr- um Íslendingum og í kjölfarið settum við gang í fasteignaþró- unarverkefni í gegnum félag sem heitir Þórsgarður. Það hefur gengið vel,“ segir Jenkins. Aðspurður um áhuga sinn á fjöl- miðlum vill hann taka það skýrt fram að hann sé einungis lán- veitandi, ekki eigandi, og muni aldrei nokkurn tíma skipta sér af ritstjórn eða efnistökum. „Það væri auðvitað hálfgalið ef einhver gaur á skrifstofu í New York, sem talar hvorki né skilur ís- lensku, væri með puttana í efninu. Ég treysti því fólki sem vinnur á blaðinu fullkomlega til að vinna sína vinnu og vonandi gengur verkefnið það vel að fjölmiðillinn verður sjálfbær,“ segir Jenkins. Hann hefur sterkar skoðanir á því hvernig fjölmiðlar hafa staðið vaktina, bæði fyrir og eftir hrun. „Fjölmiðlar voru slappir fyrir hrun, bæði í Bandaríkjunum og annars staðar, og höfðu ekki hugmynd um hvað var að gerast. Það hefur ekkert batnað eftir hrun og ég held að margir blaðamenn, sem spiluðu með æðstu ráðamönnum og við- skiptajöfrum fyrir hrun, séu hluti af vandamálinu. Ég talaði við íslenska vini mína og þeir sögðu að það væri lítill hópur manna á Íslandi sem stýrði öllu, viðskiptalífinu, stjór- nmálunum og fjölmiðlum. Innan þessa hóps eru víst allir meira og minna tengdir og því er lítill mögu- leiki á að fjölmiðlar í eigu slíkra manna geri nokkurt gagn. Það eru auðvitað ekki margir sem hafa áhuga á að fjárfesta í fjölmiðlum en ég lít svo á að það sé vel þess virði að reyna þetta á Íslandi. Markaður- inn er hæfilega stór og áhættan ekki mikil. Ég myndi ekki vilja gera þetta í New York. Það væri alltof dýr tilraun,“ segir Jenkins. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Michael Jenkins Bandarískur fjárfestir sem elskar Ísland og vill taka þátt í auka fjölbreytnina á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Hann er eini lánveitandi Miðopnu ehf sem er útgáfufélag Fréttatímans. við erum 15 Helgin 1.-3. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.