Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 01.10.2010, Blaðsíða 24
H vað er merkilegt við sýninguna ykkar og því ætti hún að heilla áhorfendur? „Merkilegt? Það er allt og ekkert,“ segir Erna og skellir upp úr, „þessi samvinna á milli mín og Damien Jalet og svo Gabríelu er eitthvað sem okkur finnst mjög merkilegt. Við Damien sjáum um dansinn og Gabríela og Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir um búningana og útlitið,“ segir hún. En hvað kom til að þessar ólíku listakonur hófu að vinna saman? „Okkar samstarf er löngu hafið, það byrjaði í rauninni árið 2005. Erna og Damien settu upp verkið „Ófætt“ en þá hófst þróunarsaga að okkar sam- starfi. Við höfum skapað okkur eigin heim sem byrjaði þar og má eigin- lega segja að það sé fyrsta fræið,“ segir Gabríela. Skilningur ekki nauðsynlegur Talið berst að hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum „So you think you can dance“. Er verkið eitthvað sem höfðar til þeirra sem horfa á þá þætti? „Algjörlega, ef það eru líkamar, ef það er eitthvað ljóðrænt og ef það er ein- hver kraftur í sköpuninni sem heillar þá er þetta eitthvað fyrir fólk sem hef- ur áhuga á þessum þáttum. Þetta er verk fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað ævintýralegt. Ég hef séð þennan þátt og það koma fyrir atriði sem eru ekk- ert ólík því sem við erum að gera,“ segir Gabríela. Erna tekur undir það. „Það er kannski bara það að fólk mæti með opin huga þegar það kemur og án þess að það þurfi að skilja eitt- hvað,“ segir Erna. „Ég er einmitt samála því! Fólk á ekki að mæta með eitthvað fyrir- fram ákveðið í huga. Þetta er kannski svolítið eins og ferðlag. Einfalt og skemmtilegt en svo er hægt að lenda í einhverju veseni á leiðinni,“ segir Gabríela. „Hugmyndafræðin á bak við verkið, þessi söguþráður og heimur er í rauninni það sem við gerum sam- eiginlega,“ segir Gabríela. „Að skapa einhvern heim sem er kannski ekki til og þegar við komum saman gerist eitthvað annað en ef ég væri bara að koma fram ein. Það er eitthvað sem okkur finnst mjög gaman og ég held að það gerist eitthvað nýtt í hvert skipti sem við komum saman,“ skýtur Erna inn í hress í bragði. Sýning er miklu meira en dansverk Þegar þær stöllur eru spurðar út í verkið og hvaða lýsing myndi hæfa því best eru þær einróma á þeirri skoðun að sýningin sé svo miklu meira en dansverk. „Ég myndi segja að þetta væri eins og lifandi skúlptúr, málverk og tónverk,“ segir Gabríela og Erna tekur undir það. „Tónlistin gerir líka svo mikið og það er reynt að vinna með öll þessi element saman,“ bætir Erna við. „Þetta er svolítið eins og við höfum verið að búa til lifandi heim úr skúlp- túrum, kannski eins og teiknimynd nema hún er raunveruleg. Við erum að gera myndrænt ævintýraverk en ekki einhvern spegil samfélagsins. Upplifunin er heldur meiri teikning en vaninn er að sjá í dansinum af því að myndlistin blandast þarna við,“ segir Gabríela. Þegar talið berst að fólkinu sem tekur þátt í verkinu hafa Erna og Gabríela ekkert nema gott að segja. „Það er búið að vera mjög gaman að vinna með dansflokknum. Þau eru öll að gefa afskaplega mikið af sér og samvinnan við allt fólkið hér hefur verið ánægjuleg. Það hefur auðvitað ekki bara verið dans á rósum, en í aðalatriðum lærir maður rosalega mikið af þessu,“ segir Erna og brosir. Hver er svo tilgangurinn með sköp- un þessa verks hjá Ernu og Gabríelu. „Við erum að reyna að skapa eitthvað sem okkur finnst vera undur eða töfrar, en á þann hátt að þeir verði ekki fyrirfram stimplaðir auglýsinga- töfrar. Ekki „Barbie“ eða „Disney“- töfrar. Þetta eru töfrar sem koma frá listrænu hliðinni. Við erum kannski að blása lífi í eitthvert ákveðið tímabil, það er kannski hægt að tengja þetta við einhverja framtíð en einnig for- tíð,“ segir Gabríela. ·     · Saltfiskurinn frá Ekta fiski er unninn með gömlu íslensku handbragði og er án allra aukefna. Sérútvatnaði saltfiskurinn er sérstaklega hentugur í seiðandi saltfiskrétti og fæst í verslunum um allt land. Hafðu samband! Þessi gamli góði 466 1016 www.ektafiskur.is PÖNTUNARSÍMI: 10 18 9A B LE K - w w w .b le kh on nu n. is Frumsýning Heimur sem ekki er til Þetta er svolítið eins og við höfum verið að búa til lifandi heim úr skúlptúrum Ljósmyndir/Teitur Ævintýraverk Erna Ómarsdóttir dansari og Gabríela Friðriksdóttir myndlistarkona eru kon- urnar á bak við Transaquania – Into thin air dansverk sem Íslenski dansflokkurinn frum- sýnir í næstu viku. Auður Eva Auðunsdóttir hitti þær í Borgarleikhúsinu og spurði meðal annars hvort verkið höfðaði til þeirra sem aldrei missa af hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum „So you think you can dance“. en ekki spegill samfélagsins 24 dans Helgin 1.-3. október 2010 Auður Eva Auðunsdóttir audur@frettatiminn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.