Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 2

Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 2
R étt áður en litla stúlkan mín fæddist sagði ljós-móðirin í gríni að gaman væri að hún fengi kennitöluna 101010-2010,“ segir Helga Helena Sturlaugsdóttir framhaldsskólakennari. „Hún lá svo í fanginu á mér þegar ljósmóðirin kom til okkar og sagði: Vitiði hver kennitalan er? Hún fékk þá flottu.“ Litla stúlkan, sem fæddist á sunnudaginn var, er annað barn þeirra Helgu og Eiríks Rúnars Eiríks- sonar í Úlfarsárdal í Reykjavík. Fyrir eiga þau Guð- rúnu Evu sem verður fimm ára í nóvember. „Já, hún er ægilega spennt yfir litlu systur, en þetta er mikil breyting. Hún var búin að bíða lengi eftir því að sú stutta kæmi í heiminn, eða í sex mánuði, sem er langur tími fyrir ungu dömuna.“ Litla stúlkan átti að koma í heiminn 15. október, en þar sem lítið var að gera á fæðingardeild- inni á laugardaginn síðasta var hringt í Helgu Helenu og henni boðið að koma fyrr. „Já, ég var sett af stað og bjóst við að hún myndi fæðast á laugardeginum, en ég var lengi í gang. Fæðingin gekk þó eins og til var ætlast og nú sefur litla stúlkan vært og drekkur vel og gerir ekkert annað.“ Stúlkan fæddist tæplega fimmtán merkur og 53 sentimetrar. „Hún var akk- úrat eins og hún átti að vera. Hún er fullkomin,“ segir Helga Helena. Þorvarður Kári Ólafsson hjá Þjóðskrá lítur yfir lista talnanna sem úthlutað var þennan dag: „Þetta er flottasta kennitalan,“ segir hann. „Nei, enginn fékk 101010-1010 því hún stenst ekki vartölupróf. Ljóst er að þessi litla stúlka hefur verið fyrsta barnið fætt þennan dag,“ segir hann enda tölunum raðað eftir reikniformúlu svo hægt sé að ganga úr skugga um að kennitalan sé rétt og ekki sé hægt að velja sér tölu. En hvað les Hermundur Rós- inkranz talnaspekingur út úr kennitölunni? „Litla stúlkan er ákveðin og hefur sterkt innsæi; gæti til að mynda orðið góður mannþekkjari,“ segir hann. „Hún á eftir að ferðast mikið. Hefur gaman af náttúrunni og rannsókn- arstörfum. Hún verður ofsalega góð í tungumálum og á eftir að búa erlendis. Þannig að það er mikil hreyfing í þessari stúlku, fyrst og fremst frelsi.“ Hermundur segir litlu stúlkuna eiga eftir að kjósa að vera sinn eigin herra sem þoli illa stimpilklukkur eða biðraðir. Hún sé mikill grallari og uppistandari en líka víðsýn og komi með óvenjulegar lausnir. „Já, mjög sterkur karakter.“ En fljótfærni sé í tölu hennar, örlagatölunni fimm, sem geri það til að mynda að verkum að hún eigi það til að vaða úr einu í annað. „Það er því gott að foreldrarnir veiti henni aga og láti hana hafa verkefni þar sem hún þarf að einbeita sér. Já, og velji henni gott nafn sem hún getur vaxið upp í.“ Og hvað á stúlkan að heita? „Við höfum ákveðið nafnið en það verður ekki gefið upp. Ég reikna með að hún verði skírð um jólin en þá kemur systir mín heim í frí frá Danmörku.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Systur í Úlfarsárdal. Guðrún Eva heldur hér á systur sinni, óskírðri, sem fæddist á sunnudaginn, 10. október. Ljósmynd/ Hari  ÚlfaRsáRdaluR – GuðRÚn Eva EiGnast systuR Fékk kennitöluna 101010-2010 Litla dóttir Helgu Helenu Sturlaugsdóttur og Eiríks Rúnars Eiríkssonar var heppin. Stúlkan fékk að koma fyrr í heiminn en áætlað var þar sem lítið var að gera á Landspítalanum og hreppti því eina flottustu kennitölu landsins, 101010-2010. Flottasta kennitalan, segir fulltrúi Þjóðskrár, og ævintýrin bíða hennar, segir talnaspekingur. Hún á eftir að ferðast mikið. Hefur gaman af náttúrunni og rannsóknarstörfum. Hún verður ofsalega góð í tungu- málum og á eftir að búa erlendis. 914 lAndSmenn eiGA Afmæli 10. október  BankamEnn BÚfERlaflutninGaR Fimm af fimmtíu launa- hæstu fluttir úr landi Íslenskir bankamenn hafa haldið tryggð við Ísland þrátt fyrir að algjört kerfishrun hafi orðið í íslenska bankakerfinu í október 2008. Aðeins fimm af fimmtíu launahæstu bankamönnunum árið 2008, samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar, hafa flutt úr landi eftir hrun, eða tíu pró- sent. Kaupþingsmennirnir Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur Helga- son og Steingrímur Kárason fluttu til Lúxemborgar þar sem þeir eiga og reka ráðgjafarfyrirtækið Consolium. Halldór Jón Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, flutti til Kanada og Örvar Kærnested, fyrrverandi starfsmaður Straums og FL Group, flutti til Bretlands. Bankamenn á Íslandi hafa fundið sér farveg á mismunandi stöðum. Nokkrir vinna enn í bönkunum, líkt og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Sumir, eins og Kaupþingsmennirnir Hannes Frímann Hrólfsson og Frosti Reyr Reynisson, hafa stofnað verð- bréfafyrirtæki en flestir hafa stofnað ráðgjafarfyrirtæki. Þeirra á meðal er Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans. -óhþ Baugur og banki tapa 15,5 milljörðum Ljóst er að Baugur Group og Glitnir tapa 15,5 milljörðum króna á gjald- þroti félagsins Sólin skín, sem var í eigu Baugs, Glitnis, Fons og kevins Stanford. Tap Baugs nemur um fjórum milljörðum en Glitnis 11,5. Félagið var stofnað í kringum kaup á hlutabréfum í bresku verslunar- keðjunni Marks & Spencer. Páll kristjánsson, skiptastjóri þrotabúsins, segir í samtali við Fréttatímann að uppgjör búsins liggi fyrir á næstu dögum. Ekkert sé af eignum í búinu og kröfuhafar fái því ekki neitt upp í sínar kröfur. Ríkissaksóknari í máli vegna raðhúsagafls Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari og fleiri íbúar í raðhúsalengjunni Búlandi 9 til 19 í Fossvoginum standa nú í dóms- máli vegna raðhúsagafls. Valtýr og fjórir aðrir eigendur húsa í lengjunni hafa stefnt einum vegna þess að sá vill ekki greiða fyrir viðgerðina á gaflinum sem er á endaraðhúsi Valtýs. Deilan snýst um það hvort raðhúsalengjan sé sameign, líkt og Valtýr og hans fólk heldur fram, eða hvort hvert hús sé séreign líkt og hinn stefndi heldur fram. „Við viljum ekkert umburðarlyndi gagnvart fullu fólki sem abbast upp á aðra í miðbæ borgarinnar,“ segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokks- ins, um bókun sem flokkurinn lagði fram á fundi borg- arráðs á miðvikudag. Í henni segir að mikil ánægja ríki með bann við reykingum á vínveitingastöðum og liggi „því við að næsta rökrétta skref verði að banna áfengi inni á þessum stöðum, þar sem áfengisneysla hefur margar og alvarlegar afleiðingar í för með sér.“ Ungliðahreyfing Besta flokksins, UngBest, fordæmir bókunina og krefst þess að hún verði dregin til baka. Hún sé yfirgengileg. Einar Örn segir að borgarráðsfulltrúar flokksins vilji með bókuninni vekja umræðu um fullt fólk í mið- bænum sem sé öðrum til ama en hún boði hvorki höft né bönn. „Miðborgin er eins og vígvöllur um helgar og því viljum við opna á umræðu um hvað hægt sé að gera til að fá þarna þokkalegra ástand. Er kannski ráð að hafa hverfispöbba svo fólk geti gubbað í garðinum heima sjá sér? Ef því líkar ekki að fólk gubbi í garðinum heima, þá er spurning hvort ásættanlegt sé að það sé gert niðri í miðbæ.“ Þá sé spurt um ábyrgðina: „Er í lagi að drekka sig fullan og eigum við að þola fulla mann- inn? Þegar ég fer í miðborgina er stærsta kvíðakastið yfir því að þurfa að eiga við fullt fólk.“ Það gangi ekki. Dagur Kári G. Jónsson, formaður UngBest, segir kynslóðabil og mismunandi viðhorf speglast í bókun- inni. Þarna tjái borgarfulltrúar sig án þess að ráðfæra sig við unga fólkið í flokknum. Það sé misskilningur að ástandið sé slæmt í miðbænum. Bókunin kom í kjölfar þess að samþykkt var að stytta á afgreiðslutíma þeirra skemmtistaða í borg- inni sem hafa verið opnir til hálf sex á morgnana um klukkustund í tveimur áföngum frá og með áramótum. Fyrst um hálftíma og svo aðrar þrjátíu mínútur sex mánuðum síðar. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Biðla til fólks að hemja drykkjuna Ungliðar Besta flokksins gagnrýna borgarfulltrúa sína og segja ungt fólk kunna að skemmta sér í miðbænum.  BEsti flokkuRinn nEitaR að sýna fullum vandRæðaGEmsum umBuRðaRlyndi einar Örn benediktsson, fulltrúi Besta flokksins, vill ekki höft á vínveitingaleyfi skemmtistaða en heldur ekkert umburðar- lyndi gagnvart fullu fólki með vandræði í mið- borginni. 2 fréttir Helgin 15.-17. október 2010

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.