Fréttatíminn - 15.10.2010, Síða 6

Fréttatíminn - 15.10.2010, Síða 6
„Sagan sýnir frábærlega vel hvernig skynsamt fullorðið fólk getur leikið tveim skjöldum.“ Eva María Jónsdóttir Ofurkonur gefast ekki upp! Hvað gerir virðuleg prestsfrú þegar faðir hennar er kominn með kærustu örstuttu eftir lát eiginkonunnar? Dramatísk fjölskyldusaga úr reykvísk- um nútíma eftir metsöluhöfundinn Jónínu Leósdóttur. www.forlagid.is — alvöru bókabúð á netinu Mikið og frábært húllumhæ stendur nú yfir vegna friðarsúlu Johns Lennon í Viðey. Boðið er upp á kvöldferðir út í eyjuna. Lagt er af stað öll kvöld kl. 20. Leiðsögumaður tekur á móti gestum og gengur með þeim að verkinu og fjallar um það sem fyrir augu ber. Í Naustinu, skála við hlið súlunnar, eru seldar léttar veitingar. Gjald í þessar ferðir er kr. 5.000 fyrir fullorðna og kr. 2.500 fyrir börn, 7-15 ára. Þetta þótti Birni heldur dýrt. Hann hafði samband: „Alls verða þetta kr. 17.500 fyrir mína fjölskyldu. Mér finnst það nú vægast sagt blóðugt!“ Björn hefur ekki tekið eftir smáa letrinu. Ef grannt er skoðað má lesa: „Allir hand- hafar greiðslukorta í íslenskum bönkum njóta sérstakra kjara og býðst að kaupa tvo miða á verði eins.“ Með öðrum orðum: Ef þú ert Íslendingur borgar þú helmingi minna en ef þú ert útlendingur. Friðarsúluskoðunin lýtur þar með svipuðum lögmálum og verðlagn- ingin í Bláa lóninu: „Fram til 1. apríl 2011 fá handhafar greiðslukorts frá íslenskum banka sérkjör í Lónið; 1.500 kr. á mann. Aðrir borga 28 evrur eða 4.500 krónur.“ (af heimasíðu Lónsins). Tvær skoðanir eru uppi um þessa tvö- földu verðlagningu. Sumir segja að þetta sé plebbaleg mismunun, jafnvel siðlaus, enda sé bannað að mismuna fólki eftir þjóðerni (eða uppruna greiðslukorta í þessu tilviki). Aðrir segja að ferðamenn- irnir geti bara vel borgað meira en heimamenn, enda hafi þeir ekki tekið þátt í uppbyggingu ferðamannastað- anna. Starfsemin í Viðey sé til að mynda niðurgreidd af skattfé sem aðeins Ís- lendingar hafa lagt til. Þar að auki tíðkist svona tvöfalt kerfi víða í útlöndum. Hvað segir Einar Örn Benediktsson, formaður Ferðamálaráðs Reykjavíkur, um málið? „Þessi tvöfalda leið er það sem mörg ferðaþjónustufyrirtæki hafa farið þegar gengi krónunnar er lágt. Auðvitað orkar þetta tvímælis, en ég var í Istanbúl í vor sem leið og þá voru þrjú verð í gangi: námsmenn, innfæddir og ferðamenn. Reykjavíkurborg niðurgreiðir almennar ferðir út í Viðey og það er frítt fyrir börn að sex ára aldri, 6-18 ára greiða 500 kr., fullorðnir 1.000 kr. og eldri borgarar 900 kr. Mér finnst alveg athugandi að hafa hærri verðskrá ef þjónstuaðili telur það vera innan marka þess sem þjónustan sem hann býður þolir. Það er líka, til dæmis, umhugsunarefni að Reykjavíkingar greiða niður ýmsa þjónustu sem við notum. Til að nefna eitt þá kostar rúmar tvær evrur í sund. Hvar í Evrópu kostar tvær evrur inn á háklassa sundstaði á borð við þá sem sundlaugar Reykjavíkur eru?“ Dr Gunni er UmboðsmaðUr neytenda Ábendingar og kvartanir: drgunni@centrum.is Er eðlilegt að ferðamenn borgi meira en innfæddir? Gunnar Hjálmarsson drgunni@centrum.is Þ að er misjafnt hvað sérfræð-ingar í tannréttingum finna mikið fyrir kreppunni en flestir hafa sögu af einhverri fækk- un sjúklinga. Einnig er eitthvað um að menn bíði með meðferð þar til betur árar. Ætli það sé ekki óhætt að tala um ca 20% fækkun sjúk- linga,“ segir Kristín Heimisdóttir, formaður Tannréttingafélags Ís- lands. „Það getur verið bagalegt að fresta meðferð, sérstaklega þegar um vaxtaraðlögunarmeðferð er að ræða,“ segir hún. „Áhrif þess að fresta tannréttingameðferð eru margvísleg. Í sumum tilfellum er um að ræða bitskekkju, sem getur valdið óþægindum við tyggingu eða talörðugleikum. Framstæðar tennur eru í margfaldri áhættu að brotna við högg. Innilokaðar tennur geta eytt rótum aðliggjandi tanna. Síðast en ekki síst eru sálræn áhrif sjúklings með skakkar tennur. Það getur haft gífurleg áhrif á sjálfs- mynd unglings að vera með skakk- ar tennur og einatt vanmetið hve mikilvægt er að hlúa að þeim þætti. Það er þó þannig að hlutdeild sjúklings eða forráðamanns hans í tannréttingameðferð er það há að það er ekki á allra færi að fara í slíka meðferð. Tekjulægstu hóparnir hafa ekki efni á þessari þjónustu og því miður er ekkert öryggisnet í sam- félaginu fyrir þá einstaklinga, ef svo má komast að orði. Styrkurinn frá hinu opinbera fyrir hefðbundna tannréttingameðferð getur hæstur orðið 150 þúsund, en kostnaður- inn við tannréttingameðferð, sem tekur oft 2-3 ár, getur numið 700- 1.100 þúsundum. Kostnaður við tannlækningar og tannréttingar hefur hækkað minnst af kostnaði heilbrigðisstétta síðastliðin miss- eri, þrátt fyrir að efniskostnaður hafi margfaldast. Þó má nefna bragarbót sem gerð var á endurgreiðslu fyrir þá einstak- linga sem eru í alvarlegustu mál- unum, en það eru börn með skarð í vör/klofinn góm, einstaklingar sem vantar fjórar tennur eða fleiri, þ.e. meðfædd tannvöntun, og þeir sem þurfa að fara í kjálkaskurðaðgerð vegna misræmis í kjálkavexti. Þá endurgreiðir hið opinbera 95% af kostnaði við meðferðina. Það var löngu tímabært að koma til móts við þennan hóp.“ Kristín segir Íslendinga standa langt að baki öðrum Norðurlanda- þjóðum og tannheilsu íslenskra barna fari hrakandi. Kostnaðar- hlutdeild hins opinbera sé alltof lág og þar detti tekjulægsti hópurinn út. Þau börn fari einfaldlega ekki til tannlæknis. Stjórnvöld hafi brugð- ist. „Sjúkratryggingar Íslands sátu uppi með 300 milljóna króna afgang á síðasta ári. Þeir peningar hefðu réttilega átt að fara til fólksins sem búið var að greiða fyrir þjónustuna.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Börn hinna tekju- lægstu verða út undan Ekkert öryggisnet í samfélaginu fyrir þá einstaklinga, segir formaður Tannréttingafélags Íslands.  tannréttingar Um 20% fækkUn sjúklinga í kjölfar kreppUnnar Tannréttingar Kostnaður við tann- réttingameðferð getur numið 700-1.100 þúsund krónum. Tekjulágt fólk ræður ekki við þau útgjöld enda er kostnaðar- þátttaka hins opinbera lítil. Ljósmynd/Getty Greiðslur TR/SÍ vegna tannréttinga og fjöldi einstaklinga, sem notið hafa þeirra greiðslna, hefur þróast þannig á tímabilinu jan. 2006 til og með sept. 2010 Ár Fjöldi barna Greiðslur TR/SÍ í m. króna Skýring 2006 322*) 23,9 Alvarlegustu tilvikin, s.s. klofinn gómur o.þ.h. 2007 333 25,0 sama 2008 370 29,2 sama 2009 431 29,3 sama 2010 373 36,6 sama, sjá þó skýringu að neðan **) 2006 3.405 173,7 Styrkur vegna tannréttinga 2007 3.520 172,5 sama 2008 3.827 185,9 sama 2009 3.741 190,7 sama 2010 2.463 116,6 sama 2010 3.284 155,5 Hér er reiknað með því að aðsókn verði óbreytt út árið, og þá gæfi heilt ár trúlega nálægt þessum tölum. *) Hver einstaklingur fær styrk í allt að þrjú ár og getur því komið fram í tölum þriggja ára. **) Í ár varð sú breyting á að sett var ný reglugerð sem heimilar SÍ að greiða 95% af kostnaði tannlæknis þegar um alvar- legustu tilvikin er að ræða. Langstærstur hluti kostnaðarins hér liggur þó í tannréttingum. Reynir Jónsson tryggingayfirtannlæknir segir áhrif þessara breytinga munu verða lengi að koma fram og sjást ekki nema að litlu leyti í tölum ennþá. Eins megi nefna að minnkandi eftirspurn eftir tannréttingum, sé slíkt raunin, komi fram í tölum með nokkurri tímatöf. 6 fréttir Helgin 15.-17. október 2010

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.