Fréttatíminn - 15.10.2010, Síða 23
helsta forgangsatriði er samt eigin
efnahagur og umbætur á honum.“
Sú stefna kínverskra yfirvalda að
hver hjón megi ekki eignast nema
eitt barn mun á næstu tíu til fimm-
tán árum leiða til þess að sjálfkrafa
dregur úr hagvexti, þar sem vinnu-
aflið eldist og færri bætast í hópinn.
Efnahagsákvarðanir kínverskra
stjórnvalda í dag verða að taka mið
af þessari framtíðarsýn.
Eðlileg fjárfestingarstefna
Kínverska ríkið hefur enn gífurleg
ítök í viðskiptalífinu þótt kommún-
istahagkerfið sé byrjað að víkja fyr-
ir markaðshagkerfi. Jafnvel í þeim
fyrirtækjum sem hafa verið einka-
vædd er velflest erlend starfsemi
bundin leyfum frá stjórnvöldum.
Ríkisvaldið á einnig stóra fjárfest-
ingarsjóði og oft er erfitt að skilja á
milli utanríkisstefnu og efnahags-
stefnu kínverska ríkisins. Tímarit-
ið Foreign Affairs slær því fram að
allt að helmingur starfsmanna kín-
verska utanríkisráðuneytisins starfi
að efnahags- og viðskiptatengslum
við útlönd.
Ingjaldur Hannibalsson, pró-
fessor í viðskiptafræði við Háskóla
Íslands, segir mikilvægt að skilja
ástæður kínversku útrásarinnar.
„Vesturlönd eru óþarf lega tor-
tryggin í garð kínverskra fjárfest-
inga. Kínverjar eiga gríðarlegan
gjaldeyrisvaraforða af því að þeir
hafa flutt svo mikið út. Það er alveg
eðlilegt að þeir vilji geyma hann í
ríkisskuldabréfum annarra landa,
því fylgir lítil áhætta, og líka að þeir
leiti að betri ávöxtun með því að
fjárfesta í viðskiptalífinu. Ef Þjóð-
verjar vildu fjárfesta í bandarísku
orkufyrirtæki myndi engum þykja
neitt athugavert við það, en ef það
eru Kínverjar, reikna margir Vestur-
landabúar með að það hljóti að vera
einhverjar pólitískar ástæður undir-
liggjandi.“
Ísland og Kína
Norska blaðið Aftenposten birti í
síðustu viku grein undir fyrirsögn-
inni: „Kína kaupir sér vini“. Þar
var fjallað um að Kínverjar gerðu
hosur sínar grænar fyrir fjárþurfi
Evrópuríkjum, meðal annars Ís-
landi, til að freista þess að smokra
sér inn á Evrópumarkað. Í nýlegri
heimsókn kínverska utanríkisráð-
herrans til Grikklands lofaði hann
því að Kínverjar myndu kaupa grísk
ríkisskuldabréf. Við sama tækifæri
fékk gríski skipaiðnaðurinn hátt
í 600 milljarða króna lán. Þá hafa
Kínverjar nýverið keypt spænsk
ríkisskuldabréf.
Kínverski seðlabankastjórinn,
sem heimsótti Ísland í síðustu viku,
sagði blaðamönnum við það tæki-
færi að kínversk stjórnvöld hefðu
ekki rætt það sérstaklega að kaupa
íslensk ríkisskuldabréf. Gjaldeyris-
skiptasamningur sem löndin gerðu
með sér í júní síðastliðnum gegndi
þó að vissu leyti svipuðu hlutverki.
Ingjaldur segir að Kínverjar hafi
ekki enn fjárfest að neinu marki á
Íslandi. Hann gerir því skóna að þar
sem Kínverjar séu á höttunum eftir
að fjárfesta í náttúruauðlindum eða
hráefnaframleiðslu, gæti það freist-
að þeirra ef og þegar upp kæmu nýj-
ar álversframkvæmdir.
S24 = HAGSTÆÐARI
INNLÁNSVEXTIR
• Betri innlánsvextir
• Enginn binditími
• Engin lágmarksupphæð
• Óverðtryggður sparnaður
• Engin úttektarþóknun
• Innlánsvextir 3,45%- 5,35%**
Sparnaðarreikningur S24
% Samanburður á innlánsvöxtum*
SPARNAÐUR FYRIR FYRIRTÆKI
OG EINSTAKLINGA
Í meira en 10 ár hafa einstaklingar getað ávaxtað sparnað sinn hjá S24.
Nú gerum við betur og bjóðum einnig fyrirtækjum og félögum að nýta sér
betri kjör á óverðtryggðum innlánsreikningi okkar.
Kynntu þér málið, það kostar ekkert.
Kíktu á www.s24.is eða hringdu í síma 533 2424 – og þú hagnast.
S24 býður hagstæðari kjör á óbundnum, óverðtryggðum innlánsreikningi.
Það kostar ekkert að stofna sparnaðarreikning hjá S24.
*Á www.keldan.is er að finna samanburð á sambærilegum innlánsreikningum banka og sparisjóða
fyrir 1 milljón til 9.999.999, 10.000.000 til 49.999.999, 50.000.000 – 99.999.999 og 100 milljónir og hærra.
Í öllum þessum flokkum býður S24 upp á hagstæðustu kjörin. Myndin í auglýsingunni tekur mið af
samanburði m.v. 1 milljón til 9.999.999. Upplýsingar eru teknar af www.keldan.is þann 11.10.2010.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
0
1
2
3
4
5
Arion banki
3,40%
Íslandsbanki
3,60%
Landsbankinn
3,65%
MP banki
3,70%
Sparisjóðurinn
4,20%
Byr
4,02%
S24
4,50%
**Skv. vaxtatöflu S24 11.10.2010
Herdís
Sigurgrímsdóttir
H.Sigurgrimsdottir
@lse.ac.uk
GJALDEYRISDEILA Kínverjar eru
sakaðir um að styrkja samkeppnisstöðu
Kína á kostnað Vesturlanda með því að
halda gengi júansins lágu. Lósmynd/Getty
HRÖÐ EN ÓJÖFN
ÞRÓUN Kína
hefur breyst
gífurlega síðan
landið hóf að
opna sig fyrir er-
lendum áhrifum.
Stórborgirnar
hafa þróast hratt
í átt að vestrænu
neyslusamfélagi
en í sveitahér-
uðum er enn tals-
verð fátækt og
búskaparhættir
fjarri nýjustu
tækni. Lósmynd/
Getty
fréttaskýring 23 Helgin 15.-17. október 2010