Fréttatíminn - 15.10.2010, Page 28
Menn reyna
að lifa í
voninni um
bætta tíma.
Hins vegar
er boðið
svo lágt í
verk að nái
markaður-
inn sér ekki
fyrr en eftir
tvö til þrjú
ár verða
fyrirtækin
svo illa upp
brunnin að
þau ná sér
aldrei.
S teindofinn, stoppað og hætt. Þannig lýsir Jóhann Gunnar Stef-ánsson, framkvæmdastjóri verk-
takafyrirtækisins Háfells, ástandinu á
verktakamarkaðnum frá bankahruni.
Fyrirtækin bítist um smáverk og þau
afar fáu stærri verk sem boðin séu út.
„Ég lít á þetta sem ástand,“ segir hann.
„En við ætlum að gera allt til að fleyta
fyrirtækinu inn í betri tíma.“ Þess
vegna hafi Háfell aðeins boðið 178 millj-
ónir króna í 433 milljóna verk við Suð-
urstrandarveg. Tilboðið hljóðaði upp
á rúmlega 41% af áætluðum verktaka-
kostnaði og reyndist vera það lægsta.
Tilboðinu vart tekið
„Ég ætlaði mér að fá þetta verk. Hins
vegar hugsa ég að við fáum það ekki,“
segir Jóhann Gunnar. Vegagerðin hafi
í kjölfar kærumála, sem Jóhann Gunn-
ar viðurkennir að Háfell hafi oft staðið
fyrir, breytt útboðsskilmálum og óskað
eftir ítarlegri gögnum um verkreynslu
og hæfi, s.s. greiðslu opinberra gjalda.
„Ég tók ekki eftir þessari línu í út-
boðsgögnunum. Svo ræddi ég við Vega-
gerðina strax eftir opnun tilboða en þeir
vildu ekki taka við gögnunum eftir á.
Ég er að sjálfsögðu vonsvikinn og það
voru fleiri en ég sem urðu ekki varir við
þetta. Ég geri því fastlega ráð fyrir að
tilboðið okkar verði dæmt ógilt,“ segir
Jóhann Gunnar. Með verkið í höfn hefði
rekstur fyrirtækisins verið tryggður
næstu eitt til tvö árin. „Nú læt ég reka á
reiðanum og býð í litlu verkin.“
En var það þá upp á líf og dauða að fá
þetta verk? „Nei,“ segir Jóhann Gunnar,
„Líf verktakafyrirtækja veltur á dómi
Hæstaréttar í máli Samtaka iðnaðarins
um gengistryggðu lánin. Þar eru millj-
arðar undir.“ Hann telur að Háfell eigi
hundruð milljóna króna undir.
Bankarnir vilja húsin að veði
Hilmar Konráðsson, forstjóri Verk-
taka Magna, bauð einnig langt undir
verktakakostnaði í Suðurstrandarveg-
inn, eða aðeins 66%. Hann segir gögn
um verkreynslu og hæfi ekki vefjast
fyrir verktökunum en erfiðara sé að
fá bankaábyrgð eins og nú sé krafist.
„Bankar og tryggingafélög vilja ekki
opna bankaábyrgð nema með veði í
fasteign. Þeir eru í raun að taka alla af
lífi sem ekki geta reitt fram húsin sín,“
segir hann. Þeir hafi enga trú á mann-
virkjagerð.
„Þessi bransi er búinn hér heima.
Langsniðugast væri að loka sjoppunni.
Ég sé ekki af hverju fyrirtæki með eigið
fé eiga að eyða því í framkvæmdir. En
menn reyna að lifa í voninni um betri
tíma. Hins vegar er boðið svo lágt í verk
að nái markaðurinn sér ekki fyrr en eft-
ir tvö til þrjú ár verða fyrirtækin svo illa
upp brunnin að þau ná sér aldrei.“
Jóhann Gunnar segir að frá hruni hafi
mikil verðmæti glatast. „Tugir manna
hafa horfið úr landi, með þekkinguna.
Ég tel að ráðamenn þjóðarinnar átti sig
ekki á því hvað það er dýrt að stöðva
allar framkvæmdir. Þessi barátta fyrir-
tækjanna nú endar þannig að eftir ár
eða tvö verða tvö til þrjú fyrirtæki í
þessum geira uppistandandi, stofnuð
verða ný fyrirtæki sem þurfa að byggja
upp reynslu og aðra þekkingu eins og
til dæmis gæðaeftirlit með verkum sín-
um. Fullt af viðbótarkostnaði sem lagt
hefur verið í verður að engu.“
Fá verktakafyrirtæki í þrot
Árni Jóhannsson, forstöðumaður mann-
virkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins,
segir undarlega fáa verktaka hafa orðið
gjaldþrota frá hruni. „Það rímar einfald-
lega ekki við ástandið hve fá fyrirtæki
hafa farið í þrot.“ Ástæðan sé líklega
sú að bankar og fjármögnunarfyrir-
tæki hafi meðal annars haldið að sér
höndum við að gera fyrirtækin upp
vegna óvissunnar um uppgjör gengis-
tryggðra lána. Dómur í málinu falli að
öllum líkindum fyrir áramót. Þá komi
í ljóst hvort fjöldi fyrirtækja heltist úr
lestinni.
Árna finnst þó það mat Jóhanns
Gunnars bratt að eftir ár eða tvö verði
aðeins tvö til þrjú fyrirtæki uppistand-
andi. Samdrátturinn sé þó augljós öll-
um þeim sem skoði markaðinn. „Í eðli-
legu árferði væru um tólf til fimmtán
þúsund í starfi hjá verktakafyrirtækjum
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
4
11
.0
08
Batik • Bíldshöfða 16 • 110 Reykjavík • Sími 557 2200 • sala@batik.is • www.batik.is
Steindofinn verktakabransi
Verktakafyrirtæki bjóða langt undir áætluðum koStnaði
Undarlega fá verktakafyrirtæki hafa farið í þrot þrátt fyrir að bransinn
berjist í bökkum. Það er mat forstöðumanns mannvirkjasviðs Samtaka
iðnaðarins. Líf margra verktakafyrirtækja veltur á gengisdómum Hæsta-
réttar. Þau bítast nú um fá verk í boði og bjóða langt undir kostnaðar-
verði. Krafan er að verktakar setji húsin sín að veði fyrir verkum.
Jóhann Gunnar
Stefánsson, forstjóri
Háfells, við eina vélina
sem hann stefnir á að
selja. Ljósmynd/Hari
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
28 fréttaskýring Helgin 15.-17. október 2010