Fréttatíminn - 15.10.2010, Page 38
www.friform.is
TIL AFGREIÐSLU AF LAGER EÐA MEÐ STUTTUM FYRIRVARA
LÆGRA VERÐ Í OKTÓBER
ELdhúS - BAÐ - ÞVOTTAhúS - FATASKÁPAR
33 hurðategundir og -litir
Afmælishátíð
Fríform 10 ára
20% - 25% - 30% - 35%
VIÐ BjÓÐUM BETUR: Gæði, þjónusta og verð, sem þú getur ekki hafnað!
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Mán. - föst. kl. 09-18
Laugard. kl. 11 - 15
HREINT OG KLÁRT
8 heimilistíminn Helgin 15.-17. október 2010
Ég er uppfull
af hugmynd-
um og reyni
að fylgja
þeim eftir
þó svo að ég
nái aldrei að
framkvæma
þær allar.
É g er sífellt að breyta,“ segir Rebekka Guðmundsdóttir spurð hvernig hún innrétti stílhreinu
og björtu íbúðina sem hún býr í ásamt
manni sínum á fögrum útsýnisstað í
Grafarholtinu. „Ég er uppfull af hug-
myndum og reyni að fylgja þeim eftir
þó svo að ég nái aldrei að framkvæma
þær allar,“ bætir hún við. Nútímalegur
stíll með hlýlegu yfirbragði einkennir
íbúðina og víða eru fallegir vel valdir
munir ásamt listaverkum á veggjum.
Falleg birta að utan gefur íbúðinni sér-
stakt yfirbragð. „Ég fagna því að vetur-
inn sé á næsta leiti því ég kann betur
við myrkrið,” segir Rebekka og bætir
við að henni þyki best að geta kveikt á
kertum sem veita hlýlega birtu.
Gærupúði í sófanum og hvít ís-
lensk gæra á skemli veitir rýminu
vissa hlýju. Risastór ljósmynd eftir
Ara Magg, sem hangir á veggnum
yfir sófanum í stofunni, vekur athygli;
nærmynd af kú sem líkist jökli. „Mér
þykir mjög vænt um þessa mynd og
hún á alltaf eftir að fylgja mér.“ Aðrar
myndir á veggjunum koma víða að, en
einhverjar þeirra eru til sölu í vef-
versluninni Uma.is sem Rebekka á og
rekur.
„Ég var sífellt að rekast á fallega
hönnunarhluti á netinu og í tímaritum
sem ekki fengust hér, sem mig lang-
aði að færa hingað heim og bjóða
upp á.” Þetta varð kveikjan að Uma.
is sem selur bæði innlenda og erlenda
hönnunarvöru og fljótlega verður þar á
boðstólum vara sem Rebekka hannar
sjálf; refaskott með fylgihlutum til að
festa á töskur.
„Þetta hefur mig mig lengi langað
til að gera og það er loksins orðið að
veruleika,” segir Rebekka. Hún segir
að Uma.is hafi verið vel tekið og það
færist í aukana að Íslendingar kaupi
vörur á netinu. „Sjálf kaupi ég mikið á
netinu og hef gert í mörg ár.“
Heimili Rebekku ber smekkvísi
hennar vitni og þar er hugsun lögð í
val og staðsetningu hlutanna. Nútíma-
legur stíll og samtímahönnun er alls-
ráðandi en á einum stað er að finna
gamalt tekkskrifborð. „Þetta skrif-
borð fann ég í Góða hirðinum. Ég kol-
féll fyrir því og kom sjálfri mér á óvart
því ég er almennt ekki fyrir gamla
hluti. Ég var lengi að finna því stað því
að aftan er opin hilla sem býður upp á
að borðið standi þannig að hægt sé að
ganga i kringum það. Að lokum fann
ég því stað og þá var eins og það hefði
alltaf staðið þar.“
Hlýlegur einfaldleiki
Við rætur Grafarholtsins, í bjartri og stílhreinni íbúð, býr Rebekka Guðmundsdóttir ásamt eiginmanni
sínum. Íbúðin, sem er innréttuð af einstakri smekkvísi, býður af sér nútímalegan og hlýlegan þokka.
Svarti stóllinn úr hinni sígildu plaststólalínu eftir bandarísku hönnuðina og hjónin Charles
og Ray Eames fer ákaflega vel við tekkborðið sem Rebekka fann í Góða hirðinum. Nútíminn
kemur til skjalanna í Mac-fartölvunni.
Refaskott sem fylgihlutur á tösku sem
Rebekka hannar.
Hreindýrshaus samsettur úr
bylgjupappa.
Ljósmyndin eftir Ara Magg yfir sófanum er í miklu uppáhaldi hjá Rebekku. Ljósmyndir/Hari
Kristín Eva
Þórhallsdóttir
heimili@frettatiminn.is