Fréttatíminn - 15.10.2010, Qupperneq 40
10 heimilistíminn Helgin 15.-17. október 2010
L ímstafir með orðunum Home sweet home er nýjung frá Ólöfu Jakob-ínu hönnuði sem slegið hefur í
gegn með íslensku límstafina Heima er
best.
Íslensku límstöfunum hefur verið vel
tekið og datt Ólöfu Jakobínu því í hug að
prófa að útbúa þessa ensku útgáfu með
orðunum Home sweet home. „Það verður
forvitnilegt að sjá hvernig þeim verður
tekið,“ segir Ólöf Jakobína, sem auk lím-
stafanna hefur hannað húsgögn og aðra
húsmuni. Spurð segist hún ekki stefna
á umsvif erlendis en þetta hafi fyrst og
fremst verið hugmynd sem vert var að
framkvæma
Síðastliðin þrjú ár hefur Ólöf Jakob-
ína haldið út skemmtilegu bloggi um
heimili og hönnun á olofjakobina.blog-
spot.com. „Þegar ég var í fæðingarorlofi
með son minn, árið 2007, fann ég alls
konar skemmtilegar síður sem ég fór
að fylgjast með og hreifst af. Ég ákvað
að prófa þetta sjálf, hafði áður unnið á
Húsum og híbýlum og því nokkuð kunnug
þessum heimi. Fyrst var ég með síðuna
lokaða og notaði þetta sem eins konar
úrklippubók; var hér áður fyrr alltaf að
klippa út úr blöðum og merkja við fal-
lega hluti en þarna var þetta orðin eins
konar úrklippubók á tölvutæku formi
sem tók til dæmis mun minna pláss og
var miklu aðgengilegri. Þegar ég var að-
eins komin á skrið með þetta opnaði ég
síðuna fyrir vini og vandamenn en síðan
hefur lesendafjöldi aukist jafn og þétt.
Ég horfi mjög lítið á sjónvarp og dunda
mér við þetta í staðinn. Mér finnst þetta
skemmtilegt.“
Ólöf fylgist vel með öðrum bloggsíð-
um en segir þó ekkert koma í staðinn
fyrir það að setjast niður með góðan
kaffibolla og gott blað. Spurð hvaða stíll
virðist sækja í sig veðrið núna segir hún
kósíheitin vera allsráðandi. „Mínimal-
isminn hefur verið á hraðri niðurleið og
kósístemning á uppleið. Það þykir ekki
smart að kaupa allt innbúið á sama stað.
Hér áður fyrr var öllum púðum hent og
helst ekkert fest upp á veggi en nú er
þessu öðruvísi farið. Því fleiri púðar því
betra og myndaveggir frá gólfi og upp í
loft, þar sem öllu ægir saman, ljósmynd-
um, verkum listamanna og barna, þykja
hið besta mál. Í þessu efnahagsástandi,
þegar maður kemst hvorki til útlanda né
út að borða, er svo mikilvægt að manni
líði vel heima hjá sér. Maður skapir sér
sitt eigið heimili með sínum uppáhalds-
hlutum en ekki heimili sem gæti rétt eins
verið sýningarbás í verslun úti í bæ.“
Límstafirnir fást í verslunum Epals
og Þjóðminjasafnsins, Sirku á Akureyri,
Snúðum og snældum á Selfossi, Póley í
Vestmannaeyjum og hjá Uma.is
Bloggsíða Ólafar Jakobínu: olofjakob-
ina.blogspot.com
Bocksey-skápa- og
hillueiningarnar eru
spennandi nýjung í
haustlínu Habitats í
ár. Einingarnar eru
hannaðar af James
Patterson og hægt að
raða þeim saman að
vild á mjög einfaldan
hátt. Þeim er einfald-
lega staflað saman
eins og kubbum ofan á
grunneiningu sem er
eins og lágt borð eða
bekkur og möguleik-
arnir eru óþrjótandi.
Þannig nýtist Bocksey
í litlum og stórum rým-
um og þjónar margs
konar hlutverki. Ein-
ingarnar samanstanda
af opnum hillum og
skápum.
Hver eining er seld
sér og því er hægt að
bæta inn í hana að vild
og hver einasta sam-
setning verður einstök
og persónuleg.
Hönnun Bocskey-skápar
Leikið með kubba
Heima er best
Home Sweet Home límstafirnir sem Ólöf Jakobína hannaði.
Drottinn blessi heimilið límstafirnir fást nú
einnig í hvítu.
„Í þessu efnahagsástandi,
þegar þú kemst hvorki til
útlanda né út að borða, þá
er svo mikilvægt að þér líði
vel heima hjá þér,“ segir Ólöf
Jakobína Ernudóttir sem er
hér ásamt syni sínum Tómasi
Oddi, þriggja ára.