Fréttatíminn - 15.10.2010, Blaðsíða 60
J úlíus Kemp er gamall skóla-bróðir minn, við höfum unnið saman áður og ég hef leikið
í myndum sem hann framleiddi,“
segir Ingibjörg sem tók sig til og
slengdi bókunum sínum, Strákarnir
með strípurnar og Rótleysi, rokk og
rómantík, saman í eitt kvikmynda-
handrit eftir að Júlíus benti henni
á að í bókunum væri fyrirtaks efni
í bíómynd á ferðinni. Það verða
ákveðin kaflaskil á milli bóka en all-
ar grunnpersónurnar halda áfram
um leið og nýjar bætast við. „Júlíusi
fannst margt svo djúsí í seinni bók-
inni sem hann vildi nota þannig að
það varð úr að ég byggði handritið
á báðum bókunum.“
Ingibjörg segir að sér hafi reynst
frekar erfitt að f létta bækurnar
saman í eina sögu en eftir að Júl-
íus leiddi saman þau Baldvin Z, sem
leikstýrir Óróa, hafi hún komist á
fulla ferð. „Við Baldvin þekktumst
ekki neitt en smullum strax sam-
an. Hann kom mjög sterkur inn og
var fljótur að finna áhugaverðustu
punktana í bókunum. Ég settist svo
bara niður í Bókhlöðunni og skrif-
aði handritið út frá ábendingum
hans. Við Baldvin fórum svo saman
í gegnum handritið, slípuðum það
til og vorum mjög ánægð með út-
komuna. Við beygjum aðeins út af
sögunni þannig að fólk má ekki láta
sér bregða þótt þetta sé ekki alveg
eins og í bókunum.“
Ingibjörg segir Óróa fjalla um
unglinga sem eru að stíga sín fyrstu
skref í heimi hinna fullorðnu. „Þau
eru dálítið tætt en einhvern veginn
tekst þeim að hjálpast að við að kom-
ast í gegnum erfiða tíma. Þetta er
samtímasaga sem ég held að ung-
lingar eigi auðvelt með að spegla sig
í. Ég sótti að einhverju leyti í eigin
reynslu og notaði ýmislegt frá sjálfri
mér þótt það sé nú orðið langt síðan
maður var unglingur. Dóttir mín er
líka á þessum aldri og svo var ég
bara með augu og eyru opin alls
staðar þar sem ég komst í tæri við
unglinga.“
48 bíó Helgin 15.-17. október 2010
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíó
bíódómur: The Social NeTwork
Panic Room, Fight Club, Se7en, Al-
ien 3, The Curious Case of Benjam-
in Button, Zodiac. Ekki þarf að hafa
fleiri orð en þessa kvikmyndatitla
um það hversu fjölbreyttur og klár
leikstjóri David Fincher er og með
The Social Network bætir hann enn
einni rósinni í hnappagatið.
Myndin segir sögu yngsta millj-
arðamærings í heimi, Marks Zuc-
kerberg, sem hannaði samskipta-
síðuna Facebook, og þar sem allir,
ömmur þeirra og langömmur eru
komnir á Facebook má vera ljóst að
þessi mynd höfðar til hálfrar heims-
byggðarinnar eða svo.
Hér er enginn í bráðri lífshættu
og engir sálsjúkir morðingjar á ferð
en samt er myndin hörkuspennandi
enda skortir ekkert á dramatíkina
þegar Zuckerberg þarf að verja
sköpunarverk sitt í tveimur skaða-
bótamálum þar sem hann er meðal
annars sakaður um að hafa stolið
hugmyndinni að vefnum.
Þessa spennandi og áhugaverðu
sögu beint úr samtímanum segir
Fincher með miklum meistara-
töktum og ótrúlega þéttur hópur
leikara ryður úr sér drepfyndnum
og frábærum texta eins og þau séu
öll á amfetamíni. Jesse Eisenberg,
lúðinn úr Zombieland, fer á kostum
í hlutverki Zuckerbergs og Justin
Timberlake, af öllum mönnum, stel-
ur senunni ítrekað.
Þórarinn Þórarinsson
Aðrir miðlar: Imdb: 8,6/10, Rotten
Tomatoes: 97%, Metacritic: 96/100
Spennumynd um tölvulúða
Órói í tættum unglingum
Straumur íslenskra mynda í bíó heldur áfram á föstudag þegar Órói verður frumsýnd en fyrir
eru á fleti í kvikmyndahúsum Sumarlandið og Brim. Órói byggist á vinsælum unglingabókum
Ingibjargar Reynisdóttur sem skrifaði einnig handritið.
Þetta er samtímasaga sem ég
held að unglingar eigi auðvelt
með að spegla sig í.
bruce williS
Glæsilegur ferill Bruce Willis sem harðhaus
og hasarhetja hófst með Die Hard árið 1988
og myndirnar í þessum vinsæla bálki eru
orðnar fjórar. Willis veit að hann getur
alltaf selt bíómiða þegar hann bregður
sér í hlutverk löggunnar John McClane
og hefur nú látið þau boð út ganga
að hann vilji leika í tveimur Die Hard-
myndum til viðbótar.
„Ég get enn hlaupið og slegist á
tjaldinu en auðvitað kemur að því að
ég get það ekki lengur og þá mun ég
hverfa frá Die Hard,“ segir þessi 55
ára töffari og bætir við að hand-
rit fimmtu myndarinnar
sé nánast tilbúið.
Engin leið að hætta
Bruce Willis
er ekki af baki
dottinn.
Ingibjörg leikur móður í Óróa: „Ég á ungling sem er að verða 18 ára þannig að þetta gengur alveg upp í raunveruleikanum.“
Þ etta var rosalega skemmtilegt og frábær reynsla.“ segir Atli Óskar átján ára sem fer með
aðalhlutverk í kvikmyndinni Órói.
sem fjallar um unglinga sem eru að
feta sín fyrstu spor í heimi fullorð-
inna og eru með allt á hornum sér.
Handritið skrifaði leikstjórinn Bald-
vin Z ásamt Ingibjörgu Reynisdóttur
og er kvikmyndin einmitt byggð eftir
bókum hennar, Strákarnir með stríp-
urnar og Rótleysi, rokk og rómantík.
,,Þetta hlutverk var mikil áskorun
fyrir mig. Ég þurfti að setja mig og
tilfinningar mínar algjörlega til hlið-
ar. En það er auðvitað hluti af því að
vera leikari. Ég naut algjörlega hverr-
ar einustu stundar,” segir Atli.
órói aTli óSkar er í aðalhluTverki
Naut hverrar stundar
Atli Óskar Mikil áskorun.
Enginn Bourne
í Bourne 4
Velgengni og vinsældir þríleiksins um
ofurnjósnarann Jason Bourne, sem Matt
Damon lék með miklum tilþrifum, kalla sam-
kvæmt hefðinni óhjákvæmilega á fleiri fram-
haldsmyndir og rjað að leggja drög að fjórðu
Bourne-myndinni, The Bourne Legacy.
Aðdáendur geta þó sparað sér fagnaðarlætin
þar sem leikarinn verður ekki með að þessu
sinni og það sem meira er, sjálfur Jason
Bourne verður ekki einu sinni í myndinni.
Tony Gilroy, sem skrifaði handrit fyrri myndanna þriggja, ætlar að leikstýra The Bourne
Legacy. „Það mætir alveg ný hetja til leiks. Það sem gerðist í hinum myndunum hrindir
atburðarásinni af stað þannig að þeir sem þekkja til fyrri myndanna munu átta sig á
tengingunni.“ Gilroy segir að þótt Bourne láti sig vanta að þessu sinni sé hann sprelllifandi
og ekki útilokað að hann birtist í seinni myndum.
Matt Damon og Bourne verða fjarri
góðu gamni.
Jesse Eisenberg er burðarbitinn og
fremstur meðal jafningja í frábærri mynd.
Freeman
heiðraður
AFI (American Film Institute)
ætlar að heiðra eðalleikarann
Morgan Freeman fyrir ævi-
starf hans í kvikmyndum
næsta sumar. Freeman hefur
hlotið ein Óskarsverðlaun, fyrir
Million Dollar Baby, og verið
tilnefndur nokkrum sinnum
enda hefur hann sett sterkan
svip á ófáar myndir í gegnum
tíðina. Viðurkenning AFI þykir
einn mesti heiður sem fólki í
bíóbransanum getur hlotnast
og með þessu bætist Freeman í
fríðan hóp fólks á borð við Jack
Nicholson, Steven Spielberg,
Barbra Streisand, Elizabeth
Taylor, Alfred Hitchcock og
Martin Scorsese.Meiri hasar hjá Rourke
Mickey Rourke og naglinn Til Schweiger, sem fór
hamförum í Inglorious Basterds, verða í aukahlut-
verkum í spennumyndinni The Courier sem segir frá
sérþjálfuðum sendli sem sérhæfir sig í að koma hverju
sem er til skila við vonlausar aðstæður. Jeffrey Dean
Morgan leikur sendilinn en talið er að Rourke muni
annaðhvort leika spilltan FBI-mann eða skuggalegan
glæpaforingja sem á von á skjalatösku frá sendlinum
svakalega.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Viðskiptavinir í Vildarþjónustu Byrs fá frítt viku-
kort hjá Hreyfingu og 20% afslátt af Betri aðild
með margs konar fríðindum.
Vertu í Vildarþjónustu Byrs og fáðu
aukin fríðindi, persónulega þjónustu
og sjálfvirkar lausnir sem veita þér
betri yfirsýn yfir fjármálin.
VILDARÞJÓNUSTUTILBOÐ Í HREYFINGU
VILDARÞJÓNUSTA BYRS
Kynntu þér kostina á byr.is
Freeman er vel að
viðurkenningunni
kominn.
Mickey Rourke hefur nóg að gera.
iNgibJörg reyNiSdóTTir: breyTTi uNgliNgabókum í bíómyNd