Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 61
bíó 49 Helgin 15.-17. október 2010
leikhúsdómur Buddy holly
25% afsláttur um helgina
a
n
to
n
&
b
e
rg
u
r
Um helgina veitum við 25% afslátt af öllum Blue Lagoon húðvörum í verslun okkar
að Laugavegi 15. Komdu við og kynntu þér íslenskar gæðavörur.
Mánudaga - Föstudaga 10:00 - 18:00.
Laugardaga 10:00 - 16:00 / Sunnudaga 13:00 - 17:00
Opnunartími verslunar
www.bluelagoon.is
Söngleikurinn um Buddy Holly er
hressileg skemmtun fyrir yngri
kynslóð leikhúsgesta. Fjörið er
keyrt áfram af frábærri tónlist og
það er gaman að upplifa þennan
saklausa tíma þegar fólk taldi að
rokk væri skaðlegra en reykingar.
Vandinn er hins vegar sá að aðal-
leikarinn veldur vart rullunni sinni
og því missir sýningin oft dampinn.
Ingólfur Þórarinsson er hörku per-
former og flottur söngvari en hann
ætti að halda sig við gítarinn.
Aðrir leikarar sýningarinnar
standa sig flestir með stakri prýði
og vil ég sérstaklega hrósa „nýlið-
unum“ Díönu Lind Monzon, sem er
æðisleg Aretha Franklin, og Baldri
Ragnarssyni sem átti góða spretti.
Ólöf Jara Skagfjörð glansaði einn-
ig í sínu lítt bitastæða hlutverki.
Þriðju stjörnuna vil ég alfarið eigna
mjöðmunum á Sigurjóni Brink og
kómískum tímasetningum Jóhanns
G. Jóhannssonar og Björgvins
Franz Gíslasonar sem dönsuðu al-
gjörlega á grensunni en náðu samt
að skora stöngin inn.
Tónlistin er aðal og styrkur sýn-
ingarinnar, textar Davíðs Þórs
hreint afbragð og hljóðið gott. Um-
gjörðin og leikmyndin er haglega
unnin en búningarnir virkuðu
býsna ódýrir. Það hefði verið gaman
að sjá hópinn allan fara miklu lengra
með „períóðuna“.
Þetta er sýning sem mun rata til
sinna, harðkjarnaaðdáendur Ingós
munu fá í hnén og skemmta sér ær-
lega. Hinir fá að minnsta kosti mjög
skemmtileg lög á heilann.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
Buddy Holly – söngleikur
Austurbær
Leikstjóri: Gunnar Helgason
Hressileg skemmtun og frábær tónlist
Jóhann G. Jóhanns-
son og Björgvin Franz
Gíslason dönsuðu
algjörlega á grensunni
en náðu samt að skora
stöngin inn.
Ólöf Jara Skagfjörð glansaði í sínu
hlutverki en Ingó á ekki að segja upp
dagvinnunni í poppinu.
Depp sér tvöfalt
Johnny Depp vann tvöfalda pottinn þegar
hann tók að sér hlutverk Jacks Sparrow
í fjórðu myndinni um Sjóræningjana í
Karabíska hafinu. Penelope Cruz leikur
á móti honum í myndinni en hann fær
líka að njóta nærveru litlu systur hennar,
Monicu. Penelope er gengin fimm mánuði
með barn sitt og Javiers Bardem þannig
að Monica ætlar að leysa hana
af í atriðum þar sem kúlan
sést. Penelope verður
í öllum nærmyndum og
skotum fyrir ofan bumbu
en litla systir kemur inn
á þegar persóna þeirra
er í meiri fjarlægð frá
myndavélinni.
Courtney og David
að skilja
Skilnaðir skekja heim ríka og fræga
fólksins um þessar mundir. Vinkonan
Courteney Cox og David Arquette
eru skilin eftir ellefu ára brokkgengt
hjónaband. Þau þurfa að sögn að fá
tíma fjarri
hvort öðru
til þess að
íhuga hvað
þau vilji
fá frá lífs-
förunauti
sínum og hjónabandi. Þau er sögð gera
þetta í mesta bróðerni, þau elski hvort
annað enn og axli saman ábyrgðina á
hamingju sex ára dóttur sinnar.
... og Aguilera líka
Söngkonan Christina Aguilera og
eiginmaður hennar til fimm ára, Jordan
Bratman, eru skilin að borði og sæng.
Heimildir herma að þau séu nú að reyna
að átta sig á því hvar þau
standi en skilnaðarferlið
sé ekki komið af stað.
Þau eiga saman einn
son, fæddan í janúar
2008, og ætla að
ala hann upp í
sameiningu og
vináttu. Kunningi
þeirra segir þau
hafa lent í sínum
erfiðleikum svona
eins og gengur
hjá hjónum og að
sjálfsögðu hafi þau
rifist nokkuð.
Jenny vekur vonir
Kröfurnar sem leikkonan og fyrrum
Playboy-bomban Jenny McCarthy ger-
ir til karlmanna hljóta að kveikja von
í brjóstum margra rindla. Þessi fyrrver-
andi eiginkona leikarans Jims Carrey
segir nefnilega að henni sé alveg sama
þótt menn séu feitlagnir eða sköllóttir.
Líkamlegt atgervi sé nefnilega ekki jafn
mikilvægt og sjálfsvirðing og viljinn til
að bæta sig andlega. „Ég gæti meira
að segja sætt mig við mann með mjög
lítið tippi ef ég væri mjög ástfangin en
hann yrði þá að bæta það upp á öðrum
sviðum.“