Fréttatíminn - 15.10.2010, Side 66
Sean Lennon
Ronson og
Sean hafa
verið bestu
vinir frá því þeir
voru þrettán ára.
Þeir eru jafnaldrar,
báðir fæddir 1975.
Bryndís Jakobsdóttir
„Dísa er mikill
listamaður, með
frábæra rödd,“
sagði Ronson þegar
hann kom hér við um
síðustu helgi. Hann
hefur unnið að þremur
lögum með Bryndísi,
sem var að ljúka tónleika-
ferð um austurströnd
Bandaríkjanna með
hljómsveit sinni
Song for Wendy.
54 dægurmál Helgin 15.-17. október 2010
Við leitum að góðum sölumönnum í símaver,
farandsölu og önnur verkefni.
Starfsþjálfun í boði.
Mjög góðir tekjumöguleikar.
Hafðu samband við Snorra Ingason sölustjóra
í síma 575 5600 eða með því að senda póst á
snorri@forlagid.is.
Viltu vinna
þér inn góðan
pening?
Aukavinna? Aðalstarf?
F lugfreyjan Guðmunda Jónsdóttir (51) hlær þegar hún er spurð hvort sjónvarpsferlinum sé þá lokið: „Já,
í bili, en ég væri alveg tilbúin að koma
aftur á skjáinn, enda búin að vera fasta-
gestur á heimilum landsmanna í þrjátíu ár,“
segir hún brött, spurð um brotthvarf sitt af
skjánum.
„Það sem kom mér aðallega á óvart var
hvað þetta gerðist snöggt,“ segir Guð-
munda sem sagt var upp á miðvikudegi og
beðin að kveðja í útsendingu laugardaginn
2. október. Ástæða uppsagnar: Áherslu-
breytingar í liði útdráttarfólks. „Ég veit
ekki hvort gera á frekari breytingar á
starfsliðinu en ég fékk lofrullu um störf
mín,“ segir hún galvösk og er sátt, en kveð-
ur þó með trega. „Ég held að aðalsöknuð-
urinn verði eftir samtarfsfélögunum.“
Hún er oft spurð í fluginu um ástæðu
þess að hún kvaddi lottóið. „En ég hef ekki
sett neina Facebook-statusa í loftið,“ segir
hún og hlær. Áður en Guðmunda tók við
stjórn lottó-útdráttarins þriðja hvern laug-
ardag var hún þula hjá Sjónvarpinu í átta
ár. Oft hnippir því fólk í hana og ljóstrar
því upp að hún sé heimilisvinur. „Svo hef
ég haft gaman af því hve margir kannast
við mig en eiga erfitt með að staðsetja mig.
Margir þekkja líka röddina. Þessi þrjátíu
ár hafa verið æðisleg.“
Nú eru rólegri tímar hjá Guðmundu
en hún á að venjast. „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég er í einni launaðri vinnu.
Bara ein eftir og ég verð að viðurkenna að
það er skrýtin tilfinning.“ Hún hefur ekki
aðeins verið þula og lottó-stjórnandi með-
fram flugfreyjustarfinu heldur verið meira
og minna í námi með. „Nú á ég helgarnar
fríar.“
En á hún ráð til handa Katrínu Brynju
Hermannsdóttur sem byrjar að draga í
lóttóinu síðar í mánuðinum? „Ráð? Nei,
nei, bara að halda áfram að vera hún sjálf.
Eða jú, hún má ekki gleyma því að fullt af
fólki tekur laugardagslottóið hátíðlega og
margir taka það mjög alvarlega - enda millj-
ónir í húfi!“
Sló NorðurlaNdamet í lottó-útSeNdiNgum
Svo hef ég
haft gaman
af því hve
margir
kannast við
mig en eiga
erfitt með
að staðsetja
mig.
Sagt upp í lottóinu eftir tuttugu ár í starfi
Kveður eftir þrjátíu ár á skjánum. Fagnar því að eiga nú frí um helgar í fyrsta sinn en saknar
góðra samstarfsfélaga.
Guðmunda Jónsdóttir er sátt og hlakkar til að eiga frí um helgar. Ljósmynd/Hari
m ark Ronson hefur verið einn af eftirsóttustu tónlistarstjórum heims undanfarin ár. Hann kom
til landsins um síðustu helgi til að fagna
afmæli vinar síns Seans Lennon og taka
þátt í því að minnast þess að John Lennon
hefði orðið sjötugur sama dag, hefði hann
lifað.
Ronson hefur unnið með mörgu
af frægasta tónlistarfólki heims,
þar á meðal Amy Winehouse,
Duran Duran, Kaiser Chiefs,
Robbie Williams og Lily Allen,
og hann hefur líka gefið út plötur
undir eigin nafni. Sú nýjasta kom
út í september og ber heitir
Record Collection. Ronson hefur
verið tilnefndur og unnið til fjölda
Grammy- og Brit-verðlauna. Að
auki þykir hann eitursvalur og
hefur verið áberandi á listum yfir
best kæddu menn heims. Ronson
tengist líka íslensku tónlistarlífi
því hann hefur unnið með Bryn-
dísi Jakobsdóttur, dóttur Frí-
manns Magnússonar.
yoko oNo HeiðurSgeStur í uppklappiNu
Ofurtöffarinn
Mark Ronson
Amy Wine-
house
Ronson er
maðurinn
á bak við
hljóminni á
Back to Black,
plötunni sem
gerði Amy
heimsfræga.
Samantha Ronson og
Lindsay Lohan
Litla systir Ronsons
er plötusnúðurinn
Samantha sem átti í
stormasömu ástarsam-
bandi við ólátabelginn
Lindsay Lohan. Þær hættu
saman í fyrra.
Yoko Ono
Ronson
var kall-
aður á svið
fyrir upp-
klappslag
tónleika
Plastic
Ono Band í
Háskóla-
bíói og tók
sér gítar í
hönd.