Fréttatíminn - 15.10.2010, Page 69
dægurmál 57 Helgin 15.-17. október 2010
„Þetta hefur nú ekkert virkað ennþá en
ég vona að þetta komi smátt og smátt,“
segir Elvis-aðdáandinn og -eftirherman
Jósef Ólafsson sem sendi nýlega út
hjálparbeiðni til vina, ættingja og fyrir-
tækja þar sem hann bað fólk að lána sér
120.000 krónur með allt að 15 prósentna
vöxtum. Jósef er með sykursýki á háu
stigi og segist bráðvanta þessa upphæð
til að standa straum af lyfja- og læknis-
kostnaði.
Jósef er formaður Elvis-klúbbsins og
skýrði dóttur sína Lísu Maríu í höfuðið á
dóttur kóngsins.
Jósef auglýsti einnig annan tveggja
Presley-galla sinna til sölu á dögunum
en hefur ekki fengið viðunandi til-
boð ennþá. „Ég hef ekki fengið neitt í
námunda við það verð sem ég er með
í huga. Ég vil fá svona 40 til 50 þúsund
fyrir hann.“
Jósef segist ekki hagnast mikið á því
að troða upp í gervi Presleys enda sé
það ekki tilgangurinn. „Ég kem bara
fram og syng mitt til þess að halda nafni
Elvis á lofti. Ég er ekki að þessu í gróða-
skyni.“
Ég er ekki að
þessu í gróða-
skyni.
Elvis-EftirhErma: BErst við sykursýki
Þarf að slá lán fyrir lyfjum
Jósef tróð upp á 10
ára afmælishátíð
Elvis klúbbsins í
Reiðhöllinni. Hann
segist hafa haft nóg
að gera, bæði fyrir
og eftir hátíðina, þar
sem eftirspurnin eftir
Elvis sé umtalsverð.
Páll Baldvin Baldvinsson og Gunnar
Þórðarson Auðveldara að kalla fram
barnið í okkur núna en þegar við vorum
29 ára.
Ljúf og ágeng
stofutónlist
Kammerklúbburinn hefur í meira en
fimmtíu ár staðið fyrir tónleikum þar
sem hefur verið boðið upp á jafnt ljúfa
sem ágenga stofutónlist. Eitt slíkt kvöld
er framundan á sunnudag á öðrum
tónleikum klúbbsins í vetur. Húsakynnin
eru að vanda í Bústaðarkirkju og á
efnisskránni eru trísónötur Tékkans Jan
Dismas Zelenka og strengjakvartett
eftir Ungverjann Béla Bartók.
Zelenka starfaði við hirðina í Dresden
á 18. öld sem kontrabassaleikari og síðar
sem kirkjutónskáld, í þeirri hljómsveit
sem frægust var í Evrópu. Í henni voru
samankomnir margir af fremstu hljóð-
færaleikurum þess tíma og voru þeir
ávallt nefndir Virtuósarnir. Samnefnt
ljóð frá 1740 til dýrðar hljómsveitinni
fannst nýverið í Þýskalandi. Þar er
Zelenka ávarpaður sem hinn „fullkomni
Virtuós“ og er vísað til þeirra hughrifa,
sem kirkjutónlist hans hafði, en hún þótti
gefa „forsmekkinn að himneskri sælu“,
að sögn Jóhannesar Ágústssonar hjá
Kammerklúbbnum.
Seinni helmingur tónleikanna er
helgaður þriðja kvartett Bartóks, sem
var frumfluttur á miklum umbrotatímum
í Evrópu árið 1927. Að sögn Valdemars
Pálssonar, stjórnarmanns í Kammer-
klúbbnum, er þriðji kvartettinn stór-
brotin tónsmíð. „Í tónmáli kvartettsins
má heyra ótrúlega vítt svið blæbrigða
og vafalaust má segja, að þar sé reynt á
ýtrasta þanþol hljóðfæra jafnt sem hljóð-
færaleikara. Tónleikarnir hefjast kl. 20.