Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Side 6
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra hefur skrifað
undir níu kostnaðarsama samninga á
síðustu tveimur mánuðum að heildar-
verðmæti vel yfir 600 milljónum króna.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins, telur augljóst
að ráðherrann sé að nota opinbert fé
til eigin kosningabaráttu. Þetta sé mis-
munun af verstu gerð gagnvart stjórn-
arandstöðuflokkunum.
Sex hundruð milljónir
Um er að ræða sjö samninga um
menningartengda ferðaþjónustu að
andvirði 588 milljónir, auk þess sem
Þróunarsjóður grunnskóla fær tutt-
ugu milljónir króna og Hvalasafnið
fær aðrar tuttugu milljónir. Þorgerð-
ur hefur einnig skrifað undir fjöl-
marga aðra samninga á sama tíma
sem ekki hafa verið verðmetnir.
Samstarfsfólk Þorgerðar í ríkis-
stjórninni, þau Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra og Siv Friðleifs-
dóttir heilbrigðisráðherra hafa bæði
skrifað undir fjölmarga samninga á
síðustu vikum. Sagt var frá því í DV í
gær að Siv Friðleifsdóttir hafi skrifað
undir samninga fyrir tæpan milljarð
króna.
Magnús Stefánsson hefur einn-
ig verið duglegur við að gera samn-
inga í aðdraganda kosninga. Hann
hefur þegar úthlutað nærri 450 millj-
ónum króna á síðustu átta vik-
um. Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs,
segir félagsmálaráðherra
nota ráðuneytið sem kosn-
ingaskrifstofu. Ráðherr-
ann vísar þessu á bug.
Banna samninga
Samanlagt verðmæti
þeirra samninga sem Magn-
ús Stefánsson og Siv Frið-
leifsdóttir hafa afgreitt á síðustu dög-
um er nálægt 1,3 milljörðum króna.
Hvorugt þeirra handsalaði einn ein-
asta samning á sama tímabili í fyrra.
Vinstri græn vilja banna ráðherr-
um að gera samninga um fjárhags-
legar skuldbindingar, síðustu þrjá
mánuði fyrir kosningar. Þingflokkur
þeirra kynnti í gær lagafrumvarp um
þetta. Þetta á við um alla samninga
ráðherra sem í felst skuldbinding,
vilyrði eða fyrirheit um ný útgjöld
ríkissjóðs.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur vinstri grænna, telur mikilvægt að
lögin öðlist þegar gildi. „Efni frum-
varpsins skýrir sig sjálft og tilefnið er
öllum ljóst sem fylgst hafa með frétt-
um undanfarna daga og vikur,“ segir
Steingrímur.
Ráðherrar eða jólasveinar
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokks-
ins, segir kosningalykt af öllum
þessum samningum. „Það er iðulega
verið að tína samninga út á síðustu
dögum fyrir kosningar, þegar ekki
einu sinni er ljóst hvort ríkisstjórn-
in heldur velli. Það er ekki hægt að
líta öðruvísi á en að ráðherrar séu
að leggja fé úr ríkissjóði í sína eigin
kosningabaráttu,“ segir Guðjón.
Egill Helgason stjórn-
málaskýrandi vakti athygli á
því á heimasíðu sinni í lok
janúar að kosningabar-
áttan væri þegar hafin af
krafti. Hann sagði greini-
legt að ráðherrar notuðu
ráðuneytin til þess að koma
verkum sínum á framfæri
við kjósendur. „Kosninga-
baráttan er í raun komin á
fullt. Ráðherrar eru í jóla-
sveinaleik í ráðuneytum sín-
um, þau hafa breyst í kosn-
ingaskrifstofur með
tilheyrarandi útdeil-
ingu gjafa,“ sagði Eg-
ill. „Maður veit ekki
hvort maður á að
fyllast þakklæti eða
fussa.“
Misnota aðstöð-
una
„Mjög mikið
hefur verið gert
af þessu núna
fyrir kosningar
og ósamræmið
er svo hróplegt
þegar tekið er
mið af öðrum
árum kjörtíma-
bilsins. Menn
eru greinilega akkúrat að safna
þessu upp fyrir baráttuna. Mér þyk-
ir það leiðinlegt að ráðherrar mis-
noti þannig aðstöðu sína í stað þess
að leggja í heiðarlega kosningabar-
áttu við okkur hin,“ heldur Guðjón
áfram. Hann segir mun meira um
það að ráðherrar nýti sér ráðuneyt-
in en áður.
„Þarna blasir við mismunur
þeirra sem eru í stjórnarandstöð-
unni. Ráðherrar ríkisstjórnarinn-
ar hafa vanið sig á þetta form. Það
versta við þetta er að þeim virðist
finnast þetta eðlilegt. Þetta er bara
ekkert eðlilegt.“
Tilraunir til að ná tali af mennta-
málaráðherra báru engan árangur.
fimmtudagur 10. maí 20076 Fréttir DV
TRauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
600 MILLJÓNA SAMNINGAR
ÞORGERÐAR KATRÍNAR
„Ráðherrar eru í jóla-
sveinaleik í ráðuneytum
sínum, þau hafa breyst
í kosningaskrifstofur
með tilheyrandi útdeil-
ingu gjafa. Maður veit
ekki hvort maður á að
fyllast þakklæti eða
fussa.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur skrifað
undir fyrir meira en 600 milljónir á síðustu tveimur
mánuðum. Guðjón Arnar Kristjánsson segir aug-
ljóst að ráðherrann sé að útdeila opinberu fé í þágu
eigin kosningabaráttu. Steingrímur J. Sigfússon
vill banna þessa samninga með lögum.
VeRðMeTniR SaMninGaR:
n Sjö samningar um menningartengda ferðaþjónustu víða um land, 588 milljónir
n Þróunarsjóður grunnskóla, 20 milljónir
n Menningarsamningur við hvalasafnið, 20 milljónir
ÓVeRðMeTniR SaMninGaR:
n nýtt húsnæði fyrir Listaháskóla Íslands
n orkuháskóli í tengslum við uppbyggingu háskólans á akureyri
n háskóli á Suðurnesjum
Steingrímur J. Sigfússon
Vinstri græn hafa kynnt
frumvarp þess efnis að
samningagleði ráðherra
fyrir kosningar verði
bönnuð. í frumvarpinu er
gert ráð fyrir að
ráðherrar megi ekki
skrifa undir fjárhags-
skuldbindingar síðustu
níutíu dagana fyrir
kosningar.
Guðjón arnar Kristjáns-
son formaður
frjálslynda flokksins
segir augljóst að
ráðherrarnir séu að
misnota aðstöðu sína
með því að útdeila fé
úr opinberum sjóðum í
aðdraganda kosninga.
Þannig noti þeir
opinbert fé til sinnar
eigin kosningabar-
áttu.
níu samningar Þorgerður Katrín
gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur
skrifað undir mikilvæga samninga á
síðustu mánuðum og er heildarverðmæti
þeirra yfir 600 milljónum króna. tilraunir til
að ná tali af Þorgerði báru ekki árangur.