Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir fimmtudagur 10. maí 2007 7 100 milljónir úr pokasjóði „Þetta er bara til að gleðja og getur verið félögum mikill styrkur að fá úthlutun. Sjóðurinn hefur gengið frábærlega frá upphafi,“ segir Björn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Pokasjóðs verslun- arinnar. Stærsta úthlutun Poka- sjóðs verslunarinnar til þessa fór fram í gær og er þetta í ellefta sinn sem veitt er úr sjóðnum. Að þessu sinni var úthlutað ríflega 100 milljónum króna af söluand- virði plastpoka í flestum verslun- um landsins. Áhersla sjóðsins er að styrkja ýmis félög á sviði um- hverfismála, menningar, íþrótta, útivistar og mannúðarmála. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra vísar athugasemdum á bug: Ráðuneytið engin kosningaskrifstofa Magnús Stefánsson félagsmála- ráðherra vísar því á bug að félags- málaráðuneytið sé nýtt sem kosn- ingaskrifstofa, líkt og Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, vill meina. Á síðustu tveimur mán- uðum hefur Magnús skrifað undir mikilvæga samninga í þjónustu við fatlaða og geðfatlaða, að heildar- verðmæti nærri 450 milljóna króna, á meðan hann skrifaði ekki und- ir neinn samning á sama tímabili í fyrra. Magnús segir alla samningana vera eðlilega framvindu í átaki sem staðið hafi yfir um nokkurt skeið. „Samningarnir fjórir um þjón- ustu við fatlaða og geðfatlaða, sem DV fjallar um undir fyrirsögninni: „Ráðuneyti nýtt sem kosninga- skrifstofur“, voru ekki gerðir vegna kosninga. Ekkert er óeðlilegt við þá, hvorki efni þeirra né tímasetn- ingu, og eru flokkar bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu aðilar að þeim. Um þessi efni hefur verið þverpól- itísk samstaða,“ segir Magnús. „Í tveimur tilvikum voru endurnýjaðir samningar þegar hinir fyrri runnu út. Í tveimur tilvikum voru gerðir samn- ingar um brýna þjónustu við geðfatl- aða í samræmi við átak sem var ráð- ist í árið 2005 og stendur til 2010. Alls hafa verið gerðir sex samningar und- ir átakinu frá því í október í eðlilegri framvindu sem heldur áfram næstu ár. Frjáls og óháð dagblöð ættu að varast að láta nota sig sem kosninga- skrifstofur.“ Magnús Stefánsson félagsmálaráð- herra segir nýgerða samninga ekki innblásna af kosningum. Steingrímur J. Sigfússon Segir ráðuneyti breytast í kosningaskrif- stofur á endasprettin- um. Húðin á lýsispillunum er gerð úr hökkuðum beinum og húð evrópskra nautgripa. Leiddar hafa verið sterkar líkur að tengslum kúariðu í nautgripum við lífshættulegan taugahrörnunarsjúkdóm, Creutzfeldt-Jakob. Með því að neyta afurða sem unnar eru úr nautgripum er til staðar hætta á smiti. Plötuð til að borða nautaafurðir „Það væri einfaldlega skynsamlegra að forðast þetta.“ „Mér finnst hafa verið svindlað ofan í mig nautaaf- urðum. Ég þekki hversu hræðilegur sjúkdómurinn er og veit að hann er ekki svo fjarlægur okkur. Ég tek lýsi og fékk sjokk þegar ég komst að því að lýsispillurnar eru pakkaðar inn í hökkuð bein og húð af evrópskum nautgripum,“ segir Rakel Jónsdóttir leiðsögumaður. Rakel hefur um nokkurt skeið forðast að borða erlendar nautaaf- urðir sökum hættunnar á því að af- urðin gæti hafa verið sýkt af kúariðu. Ef svo væri, eru aftur líkur á því að sá sem neyti hennar geti hlotið tauga- hrörnunarsjúkdóminn Creutzfeldt- Jakob. Sjúkdómurinn er sárasjaldgæfur hér á landi. Fyrir 10 árum var notk- un afurða úr nautgripum í matvæli bönnuð í Bretlandi. Samkvæmt upp- lýsingum af Vísindavef Háskóla Ís- lands hafa ekki verið færðar fullar vís- indalegar sönnur á tengslin en hins vegar verið leiddar að því svo sterkar líkur að jaðrar við fullvissu. Smitið er talið berast í fólk við neyslu matvæla sem unnin eru úr nautgripum með kúariðu. Sjúkdómurinn leiðir sjúk- linga sína til dauða í 100% tilvika. Vafasöm notkun Guðmundur Georgsson, fyrrver- andi forstöðumaður Rannsóknar- stöðvarinnar að Keldum, staðfestir hættuna á því að kúariða geti borist í menn með þessum hætti. Hann hef- ur töluvert rannsakað sjúkdóminn og telur ráðlegra að notast við aðrar afurðir. „Þetta er sem betur fer ekki algengur sjúkdómur og tíðni hans hefur minnkað. Nautgripapróteinin eru til staðar og ég er á því að þarna sé ákveðin hætta á ferðinni. Hættan er líka til staðar þegar notuð eru bein og ganga verður úr skugga um hvað- an þetta kemur,“ segir Guðmundur. „Vitandi af þessari hættu tel ég ráð- legra að notaðar væru aðrar afurðir en þessi, án þess að blása upp hætt- una því ekki er hægt að útiloka hætt- una. Það væri einfaldlega skynsam- legra að forðast þetta.“ Tökum ekki áhættuna Sælgætisgerðin Nói-Síríus notast við gelatín í hluta af sinni framleiðslu. Kristrún Hrólfsdóttir, matvælafræð- ingur hjá Nóa-Síríusi, ítrekar að fyr- irtækið noti ekki nautgripaafurðir heldur afurðir svína. Hún kannast við umræðu um hættuna við að nota nautgripagelatín. „Við notum þetta ekki og höfum aldrei notað. Við teljum okkur hepp- in að hafa tekið ákvörðun um að nota aðra afurð. Þegar grunsemdir um að nautgripaprótein í gelatíninu gætu valdið veikinni komu upp vor- um við mjög ánægð með að hafa val- ið svínagelatínið á sínum tíma,“ seg- ir Kristrún. „Við höfum því ekki lent í því að þurfa að breyta hjá okkur úr því að nota óheilnæma vöru. Vitandi um hugsanlega hættu í dag mynd- um við aldrei taka áhættuna og höf- um alla tíð verið afskaplega vönd að virðingu okkar hvað hráefni varðar. Ég segi það af góðri samvisku að við erum mjög kröfuhörð.“ Skapar ekki hættu Jón Ágústsson, gæðastjóri Lýs- is, skilur áhyggjur fólks og útilokar ekki að fyrirtækið hætti að nota naut- gripagelatín. „Við erum mikið búin að velta fyrir okkur þessari umræðu. Okk- ar gelatín er framleitt samkvæmt kröf- um frá evrópsku lyfjaskránni og eru vottuð heilbrigð. Þeir sem framleiða vöruna eru undir eftirliti og mega ekki nota hvaða dýr sem er. Vottorð fylgja með vörunni um að þau séu fullkom- lega heilbrigð,“ segir Jón. „Við teljum okkur ekki vera að taka neina áhættu. Ég skil vel áhyggj- ur fólks um að hér sé um nautgripa- afurð að ræða. Það er hins vegar óhugsandi að próteinið nái í gegn til að skapa hættu. Við höfum verið að prófa þetta reglulega og höfum aldrei fundið ástæðu til að óttast. Ég er algjörlega viss um að þetta skap- ar enga hættu. Ástæðan fyrir þessari notkun hingað til er að þetta er ódýr- asta gelatínið og hentar vel fyrir lýs- ið. Sökum þessarar umræðu er hins vegar möguleiki að við skiptum yfir í fiskigelatínið. Það myndi eyða um- ræðunni algjörlega.“ Skrítin svör Aðspurð er Rakel undrandi á svörum fyrirtækisins. Hún telur ekki réttlætanlegt að svona áhætta sé tek- in. „Ég er mjög hissa á því að okkur sé sagt að hafa ekki neinar áhyggjur. Það er eins og að svara því til að ekki sé enn kviknað í þó að pappírsblað- ið hangi yfir kertinu. Það eru til aðrar afurðir, sem bera ekki með sér þessa áhættu, en það er ótrúlegt að fyrir- tækið beri fyrir sig að þær séu dýr- ari. Ég á að geta valið mig frá þess- ari áhættu, þó að ég þurfi að greiða hærra verð fyrir það,“ segir Rakel. „Ég hef sjálf verið að reyna að lifa heil- brigðu lífi og með þessu finnst mér verið að plata mig. Þarna er verið að taka óþarfa séns. Þau svör að eftirlit sé haft með nautahjörðunum og af- urðin viðurkennd duga ekki að mínu mati því kúariðan getur skyndilega komið upp í hjörðinni en þá getur af- urðin verið löngu komin á markað.“ „Ég er mjög hissa á því að okkur sé sagt að hafa ekki neinar áhyggj- ur. Það er eins og að svara því til að ekki sé enn kviknað í þó að pappírsblaðið hangi yfir kertinu.“ TrauSTi hafSTeinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Ósátt með pillurnar rakel telur nautaafurðum svindlað ofan í sig og valdi þannig hættu á lífshættulegum taugahrörnunarsjúkdómi. rakel með lýsið rakel finnst eins og verið sé að plata hana þegar seldar eru hollustuvörur úr efnum sem geti verið hættuleg. Hún segir óþarfa áhættu tekna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.