Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Blaðsíða 30
Fimmtudagur 10. maí30 Síðast en ekki síst DV „Við lögðum upp með það að sýningin í Hafnarborg yrði fyrsti lið- ur í trílógíu. Þar voru til sýnis gríð- arlega stór verk eftir Önnu Eyjólfs- dóttur þar sem hún gjörbreytti og umbylti aðkomunni að húsinu og innganginum á mjög djarfan og skemmtilegan hátt. Verkið náði upp í rjáfur og var rúmir 8 metrar á hæð og 7 metrar á lengd. Bandaríski listamaðurinn Jessica Stockholder var með stórar innsetningar. Verk- in hennar eru mjög litskrúðug og stundum talað um að hún máli í þrí- vídd. Þórdís Alda Sigurðardóttir var með skemmtilega innsetningu sem hún kallaði Sjálfvirkur átta hundr- uð snúningshraði á mínútu. Það er mjög skemmtilegt verk þar sem efni- viðurinn er þvottavél og margvíslegt lín. Þetta eina verk fyllti Sverrissalinn í Hafnarborg og segir það allt sem segja þarf um umfangið. Ragnhildur Stefánsdóttir var með verk sem heitir megasjálf og er um sex til sjö metr- ar á hæð. Það er því ekki að ástæðu- lausu að ég sagði að við hefðum ver- ið djarfar!“ segir Rúrí og skellihlær að minningunni. „Sjálf var ég með tvö verk, annars vegar vídeóverk sem heitir Elegie, Jugoslavia Why? Það er frá fyrrverandi Júgóslavíu, eða Bosn- íu og Hersegóvínu, aðkomunni eftir stríð. Hins vegar var ég með verk sem heitir Útrýming, eða Hvörf, og fjallar annars vegar um fallvötn sem eru að hverfa og hins vegar myndir frá fyrr- verandi Júgóslavíu, af rústum eftir stríðið.“ Annað verkið í trílógíunni var gjörningur sem var haldinn í og við Drekkingarhyl á Þingvöllum. Hann var tileinkaður minningu þeirra stúlkna og kvenna sem var drekkt á Þingvöllum. Á 17. og 18. öld voru konur dæmdar til dauða og líflátnar fyrir það að verða barnshafandi og eiga börn utan hjónabands. „Ég er höfundur verksins sem ég kalla Tileinkun. Ég fékk þær Þórdísi, Önnu, Ragnhildi og fleiri til þess að taka þátt í honum með mér. Það er erfitt að útskýra gjörninginn í ein- földu máli en það má segja að hann hafi falist í því að endurheimta tákn- rænar líkamsleifar þessara kvenna úr hylnum. Báðar þessar sýningar Mega vott og Tileinkun voru umfangsmik- il verk.“ Þá er komið að þriðja og síðasta liðnum í trílógíunni sem er bók sem heitir Mega vott sem fjallar bæði um sýninguna í Hafnarborg og upplýs- ingar um feril listamannanna. Rúrí segist hafa heyrt talað um að bók- in sé sérstaklega fallega unnin. Hún er hönnuð af Þrúði Óskarsdóttur og margir ljósmyndarar tóku myndirn- ar í bókinni. Stefán Karlsson mynd- aði sýninguna í Hafnarborg, en þess utan eiga margir ljósmyndarar myndir í bókinni, bæði íslenskir og erlendir. Rúrí segir mikið hafa skort upp á það að gefnar séu út bækur um ís- lenska nútímalist. „Þess vegna ákváðum við að halda áfram að vera stórtækar og gefa út bók. Bókina verður hægt að fá á sýningunni í Start Art. Við ákváðum að skella í sýningu í galleríinu sem er í skemmtilegu litlu húsnæði við Laugaveginn. Það er búið að útbúa nýtt sýningarrými á efri hæð hússins og þetta verður fyrsta sýningin þar. Þetta er gallerí í þróun,“ segir Rúrí og hlær. Þarna verður sitt lítið af hverju, við erum ekki líkir listamenn hvað efnistök varðar og hver heldur sín- um einkennum. Það er upplagt fyrir þá sem vilja hita upp fyrir Listahátíð að kíkja við hjá okkur,“ segir Rúrí að lokum. veðrið ritstjorn@dv.is föstudagurfimmtudagur Sandkorn Eiríkur Hauksson sameinar hall- ærisskap og skandinavíska karl- mennsku, svo úr verður einhver furðusvöl blanda sem virkar ágæt- lega. Eiríkur er klárlega maður vik- unnar á Íslandi. Hann er að fara að keppa í Eurovision í dag og vonandi á laugardag. Þess vegna eigum við Íslendingar að vera stoltir af okk- ar manni og senda honum hlýja strauma. Það er alveg frábært að ganga á Esjuna á kyrrlátum kvöldum. Göngustígar næstum því alla leið upp á topp auðvelda göngugörp- um leiðina svo um munar og því ættu allir að geta komist þar upp á eigin hraða. Þegar upp er komið er útsýnið yfir Reykjavík og nærsveit- ir alveg frábært. Nú og svo má ekki gleyma því að Esjan er bara svo fal- leg að það er hægt að glápa á hana langtímum saman. Mike Skinner og hljómsveit hans The Streets hefur gefið út þrjár breiðskífur og er sérstaklega óhætt að mæla með þemaplötunni A Grand Don‘t Come for Free frá ár- inu 2004. Á plötunni er sögð einlæg og á köflum fyndin saga Mikes frá því hann lætur stela öllum pen- ingunum sínum, þar til vinur hans stelur kærustunni frá honum og loks þar til aðeins birtir á ný í lífi hans. Mike Skinner sameinar breskt rapp og raftónlist á frábæran hátt. Nú er tíminn fyrir frambjóðend- ur til þess að varpa fram síðustu sprengjunum, landa þyngstu högg- unum á andstæðinga sína og senda lokaskilaboðin út til kjósenda. Við sem höfum áhuga á þessum sirk- us vonum að það verði líf og fjör á næstu dögum. Við viljum ekki fljóta í átt að kosningum á lygnum sjó, við viljum sjá pólitískan ólgusjó. Við mælum með... ...Esjunni ...Eiríki Haukssyni ...mikE skinnEr sjálfstæðisleikari í samfylkingarauglýsingu Samfylkingin frumsýndi auglýs- ingar um stimpilgjöld á dögunum. Eldri kona fer þar með stórt hlutverk og reynir að útskýra hugtakið fyrir útlendingi. Það gekk víst eitt- hvað erfiðlega að fá Samfylkingar- fólk í auglýsing- una og hefur konan mætt á lands- fund Sjálfstæðisflokksins í hálfa öld og fór víst beint í úthringingar að loknum tökum. En eins og sönnum sjálfstæðismanni sæmir hirti hún fyrst peninginn. ritgerðarskrif á tónleikaferðalagi Hljómsveitin Sprengjuhöllin er hljómsveit Samfylkingarinnar. Drengirnir í bandinu hafa undanfarið ver- ið á tónleika- ferðalagi um allt land þar sem þeir spila fyrir hönd stjórn- málaflokksins, meðal annars lagið Hita, sem er Samfylkingarlag- ið í ár. Meðlimir hljómsveitarinnar, sem eru margir hverjir í skóla, létu þó ritgerðarskrif og próf ekki stöðva sig á tónleikaferðalaginu, heldur skrifuðu ritgerðir sínar í hljóm- sveitarrútunni. Það voru engar smávanalegar ritgerðir, BA-ritgerð í bókmenntafræði og MA-ritgerð í lögfræði. Geri aðrir betur. klara í nylon selur peysur Klöru Ósk, einni af söngkonun- um í Nylon-flokknum, virðist vera ýmislegt til lista lagt. Um þessar mundir vinnur hún hörðum höndum að því að hanna og sauma þrælflott- ar hettupeys- ur á stelpur og hafa peysurnar selst eins og heitar lummur í gegn- um MySpace-síðu söngkonunn- ar. Í næstu viku opnar hins vegar lítil og stórskemmtileg verslun á Skólavörðustígnum þar sem ung- ir íslenskir hönnuðir munu selja allt af öllu, föt, fylgihluti og skart auk þess sem í versluninni verður gallerí þar sem listamenn geta sýnt verk sín. Klara er ein af hönnuðun- um og kemur hún til með að sitja í versluninni og sauma peysurnar, auk þess sem þær verða til sölu í versluninni. kjósum kolbúnu! Frambjóðendur reyna eftir mesta megni að ná til óákveðinna, nú að- eins korteri í kosningar. Þá reyna flestir eflaust að höfða til sam- kenndar í fólki með trúverðug- leika sínum. Hins vegar eru menn mistrúverðugir og er það kannski ástæða þess að Árna Johnsen vantaði í auglýsingu frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi. Hins vegar vantar fleira í auglýsingar frambjóðenda, eins og sjá má á myndinni hér að ofan. ...LífLEgum Endi á kosningabaráttunni 4 13 7 3 16 1 4 7 4 4 7 5 7 4 3 8 0 3 7 4 7 1 3 3 2 7 3 16 1 6 4 3 7 66 4 7 Á opnunardegi Listahátíðar í dag verður myndlistarsýningin Mini vott opnuð og þar verður einnig til sýnis myndlistarbókin Mega vott. Myndlistamaðurinn rúrí er ein þeira sem standa að baki trílógíunnar. DJARFAR KONUR OG STÓRTÆKAR mega vott-listakonur Kápa bókarinnar sem er síðasta verkið í trílógíu listakvennanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.