Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Síða 9
DV Fréttir Fimmtudagur 10. maí 2007 11
Loks heyrist frá
mannræningjunum
Fréttastöðinni al-Jaazera í Palestínu
barst í gær myndband frá mannræn-
ingjum Alans Johnston, fréttamanns
BBC, sem rænt var á Gaza-svæð-
inu 12. mars. Ekkert hafði heyrst frá
mannræningjunum. Palestínsk stjórn-
völd höfðu talið sig hafa áreiðanlegar
heimildir fyrir því að fréttamaðurinn
væri á lífi. Bæði Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, og Ban Ki-moon,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hafa
beitt sér í máli Johnstons.
Ellefu ára stúlku bjargað úr hjónabandi
Breskri stúlku sem búsett var í Bangladess var
bjargað úr hjónabandi og hún flutt aftur til föður-
landsins. Hún er ellefu ára gömul og fædd í Bret-
landi en flutti til Bangladess þegar hún var sex
ára til að aðstoða óvinnufæra móður sína. Bresk
stofnun, sem sérhæfir sig í að bjarga ungum
stúlkum úr hjónaböndum fékk hana lausa. Áður
hafa samtökin frelsað 300 stúlkur.
Sameinuðu þjóðirnar óttast alvarlegar afleiðingar aukinnar framleiðslu á lífrænni orku:
EistLEndingar grafa minningarnar
Öll mótmæli í Simbabve eru stöðvuð með ofbeldi:
Hópur lögmanna sem mót-
mælti fyrir framan dómshús í Har-
are, höfuðborg Simbabve, á þriðju-
dag komst í hann krappan þegar
vopnuð lögregla réðst að honum.
Samkvæmt frétt The Times höfðu
þrjátíu lögmenn safnast saman til
að mótmæla nokkurra daga varð-
haldi tveggja lögmanna. Þeir fara
með mál stjórnarandstæðinga
sem handteknir hafa verið síðustu
misseri. Meðal þeirra sem mót-
mæltu voru nokkrir af nafntoguð-
ustu lögmönnum landsins, þar af
framkvæmdastjóri mannréttinda-
samtaka. Lögreglan réðst að hópn-
um með bareflum og skotvopnum
og flutti nokkra úr hópnum burt og
gekk í skrokk á þeim, samkvæmt
frétt blaðsins. Mótmælendurn-
ir höfðu áður reynt að fá leyfi lög-
reglu fyrir aðgerðum sínum en þeir
hugðust ganga frá dómhúsinu og
í átt að þinghúsinu til að afhenda
dómsmálaráðherra landsins form-
legt mótmælabréf.
Robert Mugabe, forseti Simb-
abve, hefur hvatt lögreglu og her
landsins til að beita alla þá sem
efna til mótmæla gegn stjórn hans
líkamlegu ofbeldi. Eftir aðgerð-
ir lögreglu gegn stjórnarandstæð-
ingum í mars þar sem leiðtogi
stjórnarandstöðunnar og fyrrver-
andi forsetaframbjóðandi, Morg-
an Tsvangirai, hlaut alvarleg höf-
uðsár sagði Mugabe andstæðinga
sína hafa fengið makleg málagjöld.
Hann hefur einnig beðið þá bisk-
upa kaþólsku kirkjunnar sem hafa
gagnrýnt hann síðustu vikur að
halda sig á mottunni og hætta að
blanda sér í stjórnmál landsins.
Löggan lemur lögmenn
Robert Mugabe, forseti Simbabve Lögregla landsins hlýðir skipunum hans og
stöðvar öll mótmæli með ofbeldi.
Clinton skaffar ódýr eyðnilyf
Bill Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hefur kynnt samninga
sem sjóður, kenndur við hann, hefur
gert við tvo indverska framleiðendur
eyðnilyfja. Verð lyfjanna mun lækka
um allt að helming og verður þeim
dreift í 60 löndum. Clinton segir um
tímamótasamning að ræða því kostn-
aður við meðferð eyðnisjúklinga stór-
lækki í kjölfarið í mörgum fátækustu
löndum heims. Samkvæmt fréttavef
BBC styrkir sjóður Clintons eyðni-
meðferð 750 þúsund manns í dag.
land sjálfstæði á ný og við tók ára-
tuga landamæradeila við Rússland,
sem nú er leyst. Eistlendingar færð-
ust enn fjær Rússlandi þegar þeir
gengu í NATO og Evrópusambandið
árið 2004 og í lok þess árs fóru síð-
ustu rússnesku hermennirnir heim
til föðurlandsins. Ísland var fyrsta
land í heimi til að viðurkenna sjálf-
stæði Eistlands. Rússneski minni-
hlutinn í Eistlandi hefur ítrekað
kvartað yfir yfirgangi eistneskra yfir-
valda sem hafa krafið þá um þekk-
ingu í eistnesku til að geta sótt um
ákveðin störf. Tungumálin eru ekki
skyld og margir Rússar vilja ekki
læra eistnesku í mótmælaskyni.
Blessuð styttan
Í gegnum súrt og sætt stóð
Bronshermaðurinn góði í miðborg
Tallinn. Pútín, sem er að ljúka síð-
ara kjörtímabili sínu sem forseti
Rússlands, notaði tækifærið til að
ausa úr skálum reiði sinnar á sig-
urdeginum 8. maí, þar sem lok-
um síðari heimsstyrjaldarinnar
er minnst. Þetta er dagur sterkr-
ar þjóðerniskenndar og herdýrk-
unar, enda marseruðu 7.000 her-
menn framhjá Pútín, þúsund fleiri
en í fyrra, og herþotulið flaug yfir
mannfjöldann. En orð hans virð-
ast hafa misst marks, enda slag-
kraftur þeirra lítill þegar samband
Rússlands og Eistlands er skoðað í
sögulegu samhengi. Pútín hefur ít-
rekað lýst vanþóknun sinni á gjörð-
um Eistlendinga við Angelu Merk-
el kanslara Þýskalands, sem fer
með forsæti í Evrópusambandinu
þessi misserin, en án undirtekta.
Eistlendingar virðast hafa losað sig
endanlega við yfirráð Rússa í land-
inu, pólitísk, efnahagsleg sem og
táknræn. Landsframleiðsla Eist-
lendinga er tvöfalt hærri á mann
en í Rússlandi og hagkerfi landsins
er á góðri siglingu. Styttan er farin í
kirkjugarð minninganna.
Bronshermaðurinn
alvarlegur í bragði og
segir ekki orð.
Vladimír Pútín forseti Rússland
Heiðrar minningu hermanna sem
féllu á sigurdeginum 8. maí.