Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Qupperneq 10
Skoðanakannanir hafa marg-
sinnis sýnt að þingmaðurinn Naser
Khader er vinsæll meðal danskra
kjósenda. Hann er múslímskur inn-
flytjandi og hefur deilt hart á öfga-
sinnaða trúbræður sína. Hótanir
hafa borist úr þeirra röðum og lög-
regla gætir öryggis Khaders og fjöl-
skyldu hans. Í deilunni vegna Múh-
ameðsteikninganna stofnaði hann
samtökin Lýðræðissinnaðir músli-
mar sem voru mjög áberandi í um-
ræðunni um teikningarnar og mót-
mælin vegna þeirra. Khader sagði
skilið við flokk róttækra á mánudag
og tilkynnti um stofnun nýs flokks,
Ny alliance, síðar sama dag.
Tapaði valdabaráttu
Fylgi við róttæka var í hæstu hæð-
um þegar mótmælin vegna Mú-
hameðsteikninganna voru í hámæli.
Á sama tíma var fylgi við Jafnað-
armannaflokkinn, stærsta stjórn-
arandstöðuflokkinn, í frjálsu falli.
Marianne Jelved, formaður róttækra
tilkynnti þá að flokkur hennar gæti
ekki lengur stutt formann jafnað-
armanna Helle Thorning-Schmidt
sem forsætisráðherraefni stjórnar-
andstöðunnar og gerði sjálf tilkall til
þess titils. Tíminn hefur leitt í ljós að
þar gerði hún mistök enda var fylgi-
saukning við flokk hennar að miklu
leyti Khader og frammistöðu hans
í deilunni að þakka. Stuttu síðar fór
fylgi við jafnaðarmenn að aukast. Í
kjölfarið hófst valdabarátta innan
flokks róttækra og sóttist Khader eftir
því að lýst yrði yfir að hann yrði næsti
formaður flokksins. Jelved tók það
hins vegar ekki í mál og sagðist styðja
flokkssystur sína til þeirra starfa. Síð-
an þá hefur Khader verið hornreka í
flokknum og verið orðaður við for-
mennsku í flokki Miðdemókrata sem
ekki eiga lengur mann á þingi. Fréttir
mánudagsins komu því ekki á óvart.
Vilja lágmarka ítök Danska
þjóðarflokksins
Helstu stefnumál Ny alliance eru
lægri skattar, nánara samstarf við
ESB og meiri áhersla á þróunarað-
stoð við fátækustu ríki heims. Flokk-
urinn verður á miðjum kvarða stjórn-
málanna líkt og flokkur róttækra.
Á blaðamannafundinum þar sem
Khader kynnti flokk sinn sagði hann
eitt aðalmarkmið flokksins vera að
lágmarka áhrif Danska þjóðarflokks-
ins en sá flokkur er í dag stuðnings-
flokkur minnihlutastjórnar Venstre
og íhaldsmanna.
Samkvæmt fréttum danskra fjöl-
miðla í gær er stuðningur við flokk-
inn töluverður því fjórtán þúsund
manns hafa gerst meðlimir í vikunni
og fjórðungur kjósenda segist íhuga
að kjósa hann í næstu kosningum.
Í Politiken er haft eftir Niels Helveg
Petersen, fyrrverandi utanríkisráð-
herra róttækra, að Khader hafi ekki
verið áberandi í stefnumótun flokks-
ins og sé þar af leiðandi ekki gott efni
í formann stjórnmálaflokks. Hann
gerir hins vegar ekki lítið úr hæfileik-
um hans til að koma málefnum sín-
um og sjálfum sér á framfæri.
Anders Fogh Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, óskaði Khad-
er á þriðjudag til hamingju með nýja
flokkinn og sagðist fagna því að
hann hafi sagt skilið við sinn gamla
flokk. Jafnaðarmenn sjá sömuleið-
is fram á gott samstarf við Khader
og félaga í framtíðinni. Hún mun þó
ekki verða löng ef spár stjórnmála-
spekinga og veðbanka ganga eftir
því þeir eru sammála um að nýja-
brumið verði farið af flokknum áður
en Danir ganga til kosninga innan
tveggja ára.
Mildari dómur
fyrir fjöldamorð
Vidoje Blagojevic sem hafði
verið dæmdur í 18 ára fangelsi
fyrir þátttöku í fjöldamorði
fékk dóminn ný-
lega styttan í 15
ár vegna skorts
á sönnunar-
gögnum. Það var
Alþjóða-glæpa-
dómstóllinn sem
settur var á lagg-
irnar eftir stríðið
í Júgóslavíu 1992
til 1995 sem kvað
upp dóminn. Blagojevic of-
ursti sagðist fyrir dómi ekki
hafa vitað af fjöldamorðunum,
en hann var næsti undirmaður
Radislavs Krstic hershöfðingja
serbneska hersins, sem fyrst-
ur manna var dæmdur fyrir
fjöldamorðin. Yfir 7.000 mús-
limar voru drepnir í Srebreni-
ca sem er talið versta fjölda-
morð sem framið hefur verið
frá lokum síðari heimsstyrjald-
arinnar.
fimmtudagur 10. maí 200710 Fréttir DV
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Meintir hryðju-
verkamenn
Ekkja Mohammeds Sidique
Khan, sem var einn þeirra sem
sprengdu sig og aðra í loft upp
í neðanjarðarlestakerfi Lund-
úna 7. júlí 2005, var hand-
tekin ásamt fjórum öðrum í
lögregluaðgerð í Dewsbury í
gær. Fólkið er í haldi með vís-
an í hryðjuverkalögin og yfir-
heyrt vegna gruns um tengsl
við fyrrgreindar árásir. Þessar
skæðustu hryðjuverkaárásir
á breskri grundu drógu 52 til
dauða og vel á annað hundr-
að manns særðust. Lögregla
er enn að hnýta síðustu hnúta
málsins.
Naser Khader, einn vinsælasti stjórnmálamaður Danmerkur, hefur sagt skilið við
flokk róttækra. Hann hefur stofnað nýjan flokk sem ætlar að berjast fyrir lægri skött-
um og minni áhrifum Danska þjóðarflokksins.
FÆR FLJÚGANDI START
Kristjánsborgar-
höll, þinghús
Danmerkur Naser
Khader verður eini
þingmaður flokksins
fram að kosningun-
um eftir tvö ár.
Þingmaðurinn Naser Khader flokkur
hans fær góðar undirtektir hjá dönum.
Anders Fogh Rasmussen, forsætis-
ráðherra Dana fagnar því að Khader
hafi sagt skilið við flokk róttækra.
Fylkin sameinast
um loftslagsmál
Yfirvöld í 31 fylki í Bandaríkjun-
um hafa tilkynnt að þau muni koma
að umfangsmesta verkefni sinnar
tegundar vestanhafs til að stemma
stigu við hækkandi hitastigi jarðar.
Sameiginlegur íbúafjöldi fylkjanna
er um sjötíu prósent af heildaríbúa-
fjölda Bandaríkjanna. Fylkisstjórar
demókrata og repúblikana samein-
ast í þessu verkefni en ríkisstjórn
repúblikana hefur verið sökuð um
að draga lappirnar í loftslagsmálum.
Helsti tilgangur þessa átaks er
að fylgjast náið með losun gróður-
húsalofttegunda í fylkjunum og búa
til sameiginlega staðla um hvernig
losunin er mæld. Niðurstöðurnar
verða birtar opinberlega. Samkvæmt
fréttatilkynningu um málið er þetta
fyrsta skrefið í að móta stórtæka
áætlun um hvernig unnið verði gegn
skaðlegum áhrifum gróðurhúsa-
lofttegunda á loftslag jarðarinnar.
Fylkin sem um ræðir dreifast vítt um
Bandaríkin en auk þeirra koma tvö
kanadísk héruð að málinu.
Skipverjar á Arctic Sunrise reyna að koma í veg fyrir þorskveiðar:
Grænfriðungar mótmæla við Hjaltlandseyjar
Síðustu vikuna hafa Grænfriðung-
ar siglt á skipi sínu Arctic Sunrise um
veiðisvæðin norður af Hjaltlandseyj-
um til að reyna að koma í veg fyrir að
veiðimenn veiði óvart þorsk, enda er
hann í útrýmingarhættu í Norðurhöf-
um, að þeirra mati. Framkvæmda-
stjóri hjaltlenskra sjómanna, Hansen
Black, sagði á heimasíðu samtakanna
að Grænfriðungar þurfi ekki að telja
sjómönnum trú um stærð stofna,
enda þekki sjómenn þar best til. Hans-
en bætti við að hjaltlenskir sjómenn
væru ábyrgðarfullir og forðuðust þau
svæði þar sem líkur eru á að þeir veiði
þann gula.
ICES, alþjóðasjávarmatsráðið,
hefur um árabil ráðlagt ráðamönn-
um innan Evrópusambandsins um
stofnstærð þorsksins og telur hann
nú standa í 70.000 tonnum í Norður-
Atlantshafinu. 70.000 tonn eru talin
vera einungis um helmingur af lífs-
nauðsynlegri stofnstærð fisksins og
því er hann skilgreindur í útrýming-
arhættu. Talsmaður Grænfriðunga,
Willie Mackenzie, fullyrti að ef þorsk-
veiðar í Norðurhöfum héldu áfram
myndi þorskurinn vafalaust hverfa af
svæðinu.
Mackenzie sagði ennfremur að í
samtölum við sjómenn hefði komið
fram að þeir væru ekki yfir sig hrifnir af
tillögum Grænfriðunga um að banna
veiðar á ákveðnum svæðum tíma-
bundið.
Black tók fram að sjómenn væru í
erfiðri stöðu. Hann segir að afar lítill
kvóti sé til fyrir þorsk á svæðinu þrátt
fyrir að nóg sé af honum, sem hef-
ur orðið til þess að hann hefur verið
að flækjast fyrir öðrum veiðum. Black
telur að slíkt skipulag leiði einungis til
þess að afla sé kastað útbyrðis og þá
tapi allir, sjómenn, Grænfriðungar og
fiskurinn sjálfur sem oftast drepst.
Síðasti þorskurinn grænfriðungar mættu til táknrænnar útfarar „síðasta“ þorsksins
úr Norðurhöfum.