Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Qupperneq 19
Menning
Pétursþing
Fimmtudaginn 17. maí,
uppstigningardag, verður
haldið málþing helgað verk-
um Péturs Gunnarssonar rit-
höfundar. Þar munu Bergljót
Kristjánsdóttir, Bjarni Ólafsson,
Gunnþórunn Guðmundsdóttir,
Halldór Guðmundsson, Hauk-
ur Ingvarsson, Hjalti Hugason,
Sigurður Pálsson, Soffía Auður
Birgisdóttir og Torfi Tulinius
ræða um ólíkar hliðar á skrifum
Péturs, en auk þess mun hann
sjálfur taka til máls á þinginu.
Þingið fer fram í stofu 101 í
Odda og stendur frá klukkan
10.00 til 16.30.
Coleman á Domo
OC/DC kvartettinn leikur í kvöld tónlist eftir saxófónleikar-
ann og helsta arkitekt frjálsa djassins Ornette Coleman á
Domo. Hljómsveitina skipa: Snorri Sigurðarson - vasa-
trompet, Steinar Sigurðarson - altó sax, Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson - bassi og Matthías M.D. Hemstock - trommur.
listahátíð
tónlist
DV Menning fimmtudagur 10. maí 2007 19
Sigtryggur Baldursson er ekki ballettmaður en mikið fyrir trúðslæti og sjónhverfingar:
Langar yfirleitt að sjá allt
„Mann langar nú yfirleitt að sjá allt
á Listahátíð,“ segir Sigtryggur Baldurs-
son tónlistarmaður. „Eða svona flestallt,“
bætir hann við. „Það eru nokkur atriði
sem er borðleggjandi að ég sjái. Til dæm-
is tónleikar Gor-
ans Bregovic og
svo er þarna
verk eftir Ghostigital og Finnboga Pét-
ursson. Ég efast reyndar um að ég þrauki
í sjö klukkutíma við að hlusta á það - þeir
eru alltaf í einhverjum mara-þonspil-
eríum, félagarnir, en þetta ætti að verða
fróðlegt.“ „Ég fer með stelpurnar mínar
að skoða götuleikhúsið Royal de Luxe -
risastelpuna - það held ég að sé frábært
atriði út af fyrir sig - sama hvort maður
er fimm ára eða fimmtugur.“ Honum líst
líka vel á Kunz-fjölskylduna. „Trúðslæti
og sjónhverfingar er nokkuð sem á mjög
vel við mig. Ég iða í skinninu að sjá þau,“
segir hann. „Ég ætla að sjá Gyðjurnar
í vélinni og Davíð Þór vin minn. Það er
einhver óvæntur prakkaraskapur á ferð-
inni þar, en ég sleppi San Francisco ball-
ettinum, veistu það að stundum vildi ég
að ég væri mikill ballettmaður - en svo
líður það hjá,“ segir hann að lokum.“
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari er einn fremsti tónlistar-
maður sem Ísland hefur alið. Hann
hefur vakið mikla athygli fyrir fram-
úrskarandi leik og skemmst er að
minnast þess er hann á dögunum
hlaut íslensku tónlistarverðlaunin
sem flytjandi ársins. Víkingur
stundar nú meistaranám við Juilli-
ard-tónlistarskólann í New York,
en hann er staddur hérlendis um
þessar mundir og heldur tónleika í
Salnum, Kópavogi annað kvöld kl.
20. Uppselt er á tónleikana og því
verða aukatónleikar næstkomandi
mánudagskvöld kl. 20.
„Það er búið að vera brjálað
að gera undanfarið, enda er ég að
klára önnina,“ segir Víkingur, sem
er nýkominn úr tónleikaferð til
Kanada. „Þar spilaði ég á tíu tón-
leikum á þrettán dögum. Það er því
mjög gott að komast heim og mjög
gleðilegt að það sé stemning fyr-
ir tónleikunum þrátt fyrir allt hitt
sem er um að vera, eins og Eurov-
ision, kosningar og Listahátíð.“
Á tónleikunum leikur Víkingur
Franska svítu nr. 4 í Es-dúr eftir J.
S.Bach og Sónötu nr. 3 í h-moll eftir
F. Chopin, auk Appassionata - só-
nötunnar eftir Beethoven. Þá frum-
flytur hann nýja píanósvítu eft-
ir föður sinn Ólaf Óskar Axelsson.
„Það heitir Inn og út um gluggann.
Það er sjálfsagt best að segja sem
minnst um það verk - en besta orð-
ið til að lýsa því er „fjörmikið“. Ég
myndi helst vilja að fólk gæti stig-
ið dans við þessa tónlist.“ Víking-
ur hefur ekki flutt verk eftir föður
sinn áður hérlendis, en segir hann
framúrskarandi tónskáld. „Hann er
arkitekt, en lærði tónsmíðar í Ber-
lín á sínum tíma þegar mamma var
þar í píanóeinleikaranámi. Hann
hefur alltaf samið meðfram öðrum
störfum, en aldrei haft sig mikið í
frammi sem tónskáld. Mér finnst
tónlistin hans æðisleg og er mjög
spenntur að sjá viðbrögðin.“
Víkingur hefur verið fimm ár við
nám í New York og segist alltaf vera
að breytast og uppgötva eitthvað
nýtt í píanóleik og tónlist. „Til dæm-
is finnst mér ég hafa breyst mjög
mikið síðan síðast þegar ég spilaði
á Íslandi, með Sinfóníuhljómsveit-
inni í nóvember. Mér finnst alltaf
gaman að koma fram - svo lengi
sem ég hef eitthvað nýtt að segja.
Það er tilgangurinn með listinni,
að endurskilgreina það sem maður
er að gera og frumskapa. Það er hin
sífellda áskorun,“ segir hann.
Það er mikill undirbúningur að
baki tónleikum eins og þeim sem
haldnir verða í Salnum á föstu-
dags- og mánudagskvöld og Vík-
ingur segist æfa mikið. „Ég æfi mig
ofboðslega mikið, eyði miklum
tíma við píanóið og spila fyrir vini
og vandamenn. Það er líka mjög
mikilvægt að setja allt í það að
toppa á réttum tíma. Þetta er eins
og með íþróttamenn sem taka þátt
í stórmóti - það er mikilvægt fyr-
ir þá að æfa sig og vera í góðu lík-
amlegu formi, en líka að gefa allt
í þá dagsetningu sem menn hafa í
huga; föstudaginn og mánudaginn
í mínu tilfelli.“ Víkingur segist þó
ekki verða kvíðinn fyrir tónleika.
„Ég fer mikið yfir þetta allt saman í
huganum, en ég verð ekkert stress-
aður eða hræddur. Sem er eins
gott því annars væri ég sárþjáður
alla daga,“ segir Víkingur, sem hef-
ur nóg að gera á næstunni við tón-
leikahald.
Píanóleikarinn Víkingur Heiðar heldur tónleika í Salnum annað kvöld og á mánudags-
kvöldið. Þar frumflytur hann meðal annars nýtt verk eftir föður sinn Ólaf
Óskar Axelsson, sem hann segir vera framúrskarandi tónskáld.
Bílastæðum
lokað
Vegna ferða Risessunnar,
sem arkar um götur Reykjavík-
ur með aðstoð götuleikhúss-
ins Royal de Luxe á föstudag
og laugardag, verður bílastæð-
um á gönguleið hennar lokað
tímabundið. Í tilkynningu frá
Framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar er athygli vakin á því að
bílar sem verður ólöglega lagt
verði fjarlægðir á kostnað eig-
enda sinna. Starfsmenn Fram-
kvæmdasviðs og Bílastæða-
sjóðs verða við störf og greiða
listinni leið. Umferðarstjórn
verður í höndum lögreglu og
vinnur Framkvæmdasvið í
samráði við hana.
Burtfarar-
tónleikar
Dagrún Leifsdóttir sópr-
ansöngkona heldur burtfar-
artónleika frá Söngskóla Sig-
urðar Demetz í Fríkirkjunni í
Reykjavík annað kvöld kl. 20.
Gerrit Schuil leikur á píanó, en
einnig koma fram Sturlaugur
Jón Björnsson hornleikari og
Lilja Guðmundsdóttir sópran.
Dagrún hefur stundað nám í
Söngskóla Sigurðar Demetz
undanfarin sjö ár, síðast undir
handleiðslu Gunnars Guð-
björnssonar. Hún heldur utan
til frekara náms í Royal Acad-
emy í Manchester næsta haust.
Hin sífellda áskorun
Brjálað að gera
Víkingur er nýkominn
úr strangri tónleikaferð
um Kanada.
Alltaf að uppgötva eitthvað nýtt