Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Page 20
LífsstíLL
BláBerjayndi
Frábær morgundrykkur!
9 cl appelsínusafi
1/4 bolli fersk bláber
Mixað í blandara og framreitt í háu glasi með nokkrum heilum berjum.
South Beach-
kúrinn
Nýjasta megrunarkúraæðið er South
Beach-kúrinn sem allar heitustu
stjörnurnar í Hollywood virðast vera
á. Þar má kannski helst nefna hina
þrusuflottu Jennifer Aniston sem
segist ná að halda líkamanum
flottum með hollu mataræði South
Beach-kúrsins og góðri hreyfingu.
Kúrinn er þrískiptur og gengur
fyrsta skrefið út á það að losa sig við
aukakílóin með ströngu og hollu
mataræði í fjórtán daga. Næsta
skref er svo að ná markmiðum
sínum og má þá byrja að bæta inn
aðeins fjölbreyttara fæðuúrvali en á
fyrsta stigi, maður stendur fastur á
öðru stigi þangað til óskaþyngdinni
er náð. Þegar það hefur gengið upp
færir maður sig yfir í þriðja skrefið
sem heitir einfaldlega mataræði
fyrir lífstíð og gengur út á það að
viðhalda kjörþyngd og hollu
mataræði það sem eftir er ævinnar.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni southbeachdiet.com.
húðin fær
perluáferð
Öll viljum við hafa heilbrigða og
glansandi húð og nú þegar sumarið
er að ganga í garð og veðurfars-
breytingarnar eru miklar er
mikilvægt að nota gott rakakrem.
Strobe-kremið frá snyrtivöruframlei
ðandanum MAC virkar einstaklega
vel að sögn snyrtifræðinga þar sem
kremið er fullt af vítamínum og
grænu tei sem gefur húðinni raka
og hressir hana við. Strobe-kremið
er rakakrem sem gefur húðinni
svokallaða perluáferð og fallegan
glans og hægt er að nota kremið
hvort sem er eitt og sér eða undir
farða. Kremið hentar fyrir allar
húðtegundir og alla aldurshópa.
Óbyggðagöngur
í áttatíu ár
Ferðafélag Íslands er áhuga-
mannafélag með rúmlega sjöþús-
und félagsmenn, en þeim hefur
fjölgað mjög undanfarið. „Á þessu
ári erum við um áttatíu talsins sem
vinnum statt og stöðugt að sömu
markmiðum og í upphafi en það er
að hvetja landsmenn til að ferðast
meira um Ísland, veita upplýsingar
af öllu tagi til ferðamanna og bæta
ferðamannaaðstöðu í landinu,“ seg-
ir Páll Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Ferðafélagsins. Á þessu ári
verður félagið áttatíu ára en það var
stofnað í nóvember árið 1927 í húsi
Eimskipafélags Íslands „Við verðum
að sjálfsögðu með sérstakar afmælis-
ferðir í sumar, afmælishátíðarútgáfu
af ferðabókinni okkar og svo verður
afmælið haldið hátíðlegt í haust.“
Auðvelt að gerast meðlimur
Ferðamannafélagið rekur nú
og leigir út um þrjátíu og sex skála
á hálendinu og í óbyggðum fyrir
ferðamenn. „Þar er öllum sem ferð-
ast um hálendið velkomið að gista
gegn vægu gjaldi. Sumir skálarnir
eru minni og þar af leiðandi er gjald-
ið lægra fyrir þá,“ segir Páll og bæt-
ir því við að félagsmenn fái afslátt af
gistingu í skálunum sem og af ferð-
unum.
„Það er mjög auðvelt að gerast
meðlimur í félaginu. Það eina sem
þarf að gera er að skrá sig með því að
senda okkur tölvupóst eða hringja
í okkur hérna í Ferðafélagi Íslands.
Meðlimir borga svo árgjald sem er
4.600 krónur en innifalið í verðinu
er vegleg árbók með helstu upplýs-
ingum um landið og afsláttur í fjölda
verslana og ferðir svo gjaldið er fljótt
að borga sig.“ Heilmikið félagsstarf
fer fram hjá Ferðafélaginu og mik-
il sjálfboðavinna, meðal annars í
kringum viðhald á skálunum. „Það
eru tíu deildir í félaginu úti um allt
land, meðal annars á Akureyri og Eg-
ilsstöðum, sem starfa samhliða fé-
laginu,“ segir Páll.
Ganga í Viðey í fyrramálið
Í þessari viku hefur félagið staðið
fyrir morgungöngum á fjöll rétt fyr-
ir utan höfuðborgarsvæðið en allt
að fimmtíu manns hafa tekið þátt
í göngunum. „Við hittumst hérna í
Mörkinni klukkan sex á morgnana
og það er ókeypis að taka þátt. Það
hefur verið gríðarlega góð aðsókn
í ferðirnar svo greinilegt er að nógu
margir Íslendingar eru það klikkað-
ir að rífa sig upp klukkan hálf sex og
ganga á fjöll,“ segir Páll kíminn. „Síð-
asta ferðin er svo í Viðey í fyrramál-
ið, við tökum bátinn út að eyjunni og
göngum svo aðeins þar um.“
Jónsmessujóga og
unglingaferðir
Það er alltaf nóg um að vera hjá
Ferðafélaginu og segir Páll að í boði
séu bæði dagsferðir, lengri ferðir og
sumarferðir auk fjölda nýjunga. „Það
eru þessir klassísku staðir sem allt-
af verða vinsælir eins og Laugvegur-
inn sem er aftur að koma sterkur inn
núna og Hornstrandirnar en þangað
fer fólk í lengri bakpokaferðir. Vin-
sælustu dagsferðirnar eru svo meðal
annars Langisjór og Þórsmörk.“
Í fyrra var byrjað með ferð sem
kallast Jónsmessujóga og gekk hún
vonum framar svo stefnan er að fara
í aðra slíka ferð í ár að sögn Páls.
„Jógaferðin var mjög vinsæl, þá er
sérstakt jógaþema í ferðinni og jóga-
kennari sem fer með og stendur fyr-
ir ýmsum skemmtilegum jógaæfing-
um í náttúrunni. Önnur nýjung hjá
okkur eru unglingaferðirnar sem eru
fyrir unga krakka á aldrinum fjórtán
til átján ára.“
Fyrir utan þann fjölda Íslendinga
sem slæst í hópinn með Ferðafélag-
inu eru alltaf þó nokkrir túristar sem
skrá sig í ferðir en þeir eru þó í minni-
hluta. „Það eru allir velkomnir í ferð-
ir hjá okkur í Ferðafélaginu og það
er alltaf gaman að sjá hvað stemn-
ingin er góð í ferðunum þegar ald-
urshópurinn er sem breiðastur. Það
er allt frá börnum upp í sjötugt fólk
sem tekur þátt í ferðunum og þegar
svo fjölbreyttur hópur kemur saman
verður alltaf skemmtileg stemning,“
segir Páll og hvetur að lokum sem
flesta til að mæta í gönguna í Viðey í
fyrramálið stundvíslega klukkan sex.
krista@dv.is
GanGa á
úlfarSfell
Það er öllum fært að taka sér pásu frá
sjónvarpinu eða tölvunni í rétt
rúman klukkutíma og skella sér í
gönguferð upp á Úlfarsfell. Gangan
alla leið upp á tind og niður aftur
tekur ekki nema tæplega einn og
hálfan tíma og er gríðarlega
hressandi. Úlfarsfell er rétt utan við
Reykjavík, nánar tiltekið í næsta
nágrenni við Grafarholt svo leiðin að
fjallinu er ekki löng. Það er um að
gera að skella sér með vinkonunum
eða vinunum og spjalla á leiðinni
upp og áður en þið vitið af hafið þið
komist á tindinn. Slíkar göngur eru
hin besta líkamsrækt og ekki spillir
fyrir að finna ilminn af íslensku
fjallalofti og ferskan blæinn leika við
lokkana þegar tindinum er náð.
FiMMtudAGuR 10. MAí 200720 Fréttir DV
Ferðafélag Íslands heldur upp á áttatíu ára afmæli sitt í ár og í tilefni þess er mikið um
að vera hjá félaginu. Auk sívinsælla ferða í Þórsmörk og á Laugaveginn er nú boðið
upp á Jónsmessujóga og unglingaferðir.
Páll Guðmundsson
Segir auðvelt að
gerast meðlimur í
Ferðafélaginu.
Gönguhópur Mikil
stemning myndast í
ferðum hópsins.