Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Blaðsíða 25
DV Sviðsljós fimmtudagur 10. maí 2007 25
Óður til Gisele
Forkeppni Eurovison fer
fram í kvöld þar sem 28
þjóðir berjast um 10 sæti í
úrslitum á laugardag.
Þegar teknar eru saman
spár fjölmargra veðbanka
kemur í ljós hvaða þjóðir
munu veita Íslandi hörð-
ustu samkeppnina um
toppsætin 10.
ÍSLANDS
HELSTU KEPPINAUTAR
Ísland
Lag: Valentine Lost
Flytjandi: Eiríkur Hauksson
Gamla rokkbrýnið snýr aftur heim og ætlar
að redda Íslendingum úr Eurovision-
krísunni. Eiríkur sigraði undankeppnina hér
heima en sjaldan hafa jafnmargir sterkir
söngvarar tekið þátt í forkeppninni hér
heima og nú. Eiríkur hefur margoft gefið
það út að aðalmarkmið hans sé að komast í
úrslit til að Íslendingar fái skemmtilegt
Eurovision-kvöld. Fjölmiðlar hafa mikinn
áhuga á Eiríki en veðbankarnir eru honum
ekki jafnhliðhollir. Honum er spáð
sautjánda sæti í forkeppninni. Ekki má þ��
afskrifa rauðhærða reynsluboltann sem er
að taka þátt í þriðja skipti.
Sviss
Lag: Vampires Are Alive
Flytjandi: Dj BoBo
René Baumann sem er betur þekktur undir nafninu Dj
BoBo gerði það gott á tíunda áratugnum og var fastagest-
ur á safnplötum eins og Reif í runnann og fleiri g��ðum.
T��nlistin hans flokkast undir svokallað Europop. Honum
er spáð þriðja sæti í forkeppninni og því fimmta í
úrslitum
Serbía
Lag: Marija Šerifovic
Flytjandi: Molitva
Marija er aðeins 22 ára
gömul söngkona frá
Serbíu sem kemur úr
mikilli t��nlistarfjöl-
skyldu og kom fyrst
fram þegar hún var t��lf
ára. Hún hefur vakið
mikla athygli á æfingum
og er búist við miklu af
henni í keppninni. Henni
er spáð fyrsta sæti í
forkeppninni og öðru
sæti í úrslitum.
Hvíta-Rússland
Lag: Work Your Magic
Flytjandi: Dmitry Koldun
Dmitry „Dima“ Koldun er að-
eins 21 árs söngvari frá
Minsk í Hvíta-Rússlandi.
Hann sigraði þáttinn Star
Factory í Rússlandi árið
2006 en rússneska atriðið í
ár, stúlknasveitin Serebro,
var einnig uppgötvuð í
þeim þætti. Honum er
spáð öðru sæti í for-
keppninni og fj��rða í
úrslitum.
Búlgaría
Lag: Water
Flytjandi: Elitsa Todorova & Stoyan Yankulov
Þau Elitsa og Stoyan eru einhverjir þekktustu ásláttarhlj��ð-
færasérfræðingar Búlgaríu. Þau hafa bæði unnið til fjölda
t��nlistarverðlauna og þykja virkilega öflug á sviði þegar
þau flytja lagið sitt Water. Þeim er spáð fj��rða sæti í
forkeppninni og því sjöunda í úrslitum.
Andorra
Lag: Salvem el m��n
Flytjandi: Anonymous
Hér er á ferðinni hlj��msveit sem var stofnuð af nokkrum
sk��lafélögum árið 2004 og eru þeirra helstu fyrirmyndir
Blink 182 og Sum41. Þeir spila svokallað hásk��larokk.
Þeim er spáð fimmta sæti í forkeppninni og tíunda í
úrslitum.
Kýpur
Lag: Comme ci, comme ça
Flytjandi: Evridiki
Hin 39 ára gamla Evridiki
Theokleous er enginn
aukvisi þegar kemur að
Eurovision. Hún hefur
tvisvar sinnum áður
tekið þátt fyrir hönd
Kýpur í keppninni,
árin 1992 og 1994.
Henni er spáð sjötta
sæti í forkeppninni og
því áttunda í úrslitum.
Malta
Lag: Vertigo
Flytjandi: Olivia Lewis
Olivia hefur reynt að
komast í Eurovison í
mörg ár og hefur keppt
alls ellefu sinnum í
undankeppninni á
Möltu. Nú er hún loksins
komin á áfangastað með
laginu Vertigo. Henni er
spáð sjöunda sæti í
forkeppninni og því
þrettánda í úrslitum.
Slóvenía
Lag: Cvet z juga
Flytjandi: Alenka Gotar
Alenka er s��pransöngkona
og hefur háa og kraftmikla
rödd. Hún er með meistara-
gráðu í söng og kemur oft
fram í SNG-��perunni. Henni er
spáð áttunda sæti í forkeppn-
inni og því tuttugasta og
fimmta í úrslitum. Danmörk
Lag: Drama Queen
Flytjandi: DQ
DQ heitir í raun Peter Andersen og er 34 ára gamall Dani.
DQ var síðastur til að komast inn í úrslit dönsku forkeppn-
innar og var svokallað „wildcard“ inn í úrslit. Það kom því
mikið á ��vart þegar hann sigraði. DQ er spáð níunda sæti í
forkeppninni og því ellefta í úrslitum.