Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2007, Qupperneq 32
„Það vita allir að pólitískar stöðu-
veitingar eiga sér stað hér á landi
og Björn hefur sjálfur legið undir
ámæli,“ segir Gunnar Helgi Krist-
insson, prófessor í stjórnmálafræði.
Viðmælendur DV hafa undrast það
að Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra hafi ákveðið að seinka skip-
un ríkissaksóknara án skýringa. Er
það talið benda til þess að Jón H.B.
Snorrason hreppi hnossið en hann
er talinn sá eini sem vont hefði ver-
ið að skipa viku fyrir kosningar.
Gunnar Helgi segir pólitískar
stöðuveitingar algengar hér á landi,
algengari en í löndunum í kring-
um okkur. Björn hefur sagt það ekki
hafa verið ákveðið frá fyrsta degi
hver verði skipaður í embættið og
að honum hafi ekki verið kunn-
ugt um umsókn Jóns fyrr en dag-
inn sem umsóknarfresturinn rann
út. „Það er ekki hægt að láta sem
áhyggjur af pólitískum stöðuveit-
ingum séu óþarfar því þær eru full-
komlega skiljanlegar. Ráðherra þarf
að bregðast við þessum áhyggjum
því það er hans skylda sem stjórn-
málamanns að svara og útskýra fyr-
ir landsmönnum að áhyggjurnar
séu óþarfar,“ segir Gunnar Helgi.
Gunnari Helga finnst þau svör
sem Björn hefur gefið hingað til
hafa verið frekar þunn. Honum
finnst það ekki nægileg útskýring
af hálfu Björns að segja að vanda
verði til skipunarinnar því það hafi
hann líka vitað þegar hann sagði
umsækjendum að skipað yrði um
síðustu helgi. Sjálfur hefur Gunnar
Helgi gert rannsókn á pólitískum
stöðuveitingum og þar kom í ljós í
verulegum hluta þeirra lágu pólit-
ísk sjónarmið að baki.
Einn af fimm umsækjendum,
Jóhannes Rúnar Jóhannsson, dró
umsókn sína til baka eftir að til-
kynnt var að skipun í embættið yrði
frestað. hrs@dv.is
fimmtudagur 10. maí 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Laugavegur 53b • 101 Reykjavík • 5 11 3350 • www.hereford.is
HerefordBorðapantanir í síma 511 3350
2 fyri
r 1 á
drykk
jum
hússi
ns 17
-19
Íslenska nautakjötið
klikkar ekki.
Notum eingöngu sérvalið
íslenskt nautakjöt á
Hereford steikhúsi
Var þetta nokkuð á
sprengidaginn?
EÐLILEGT AÐ FÓLK
HAFI ÁHYGGJUR
Prófessor í stjórnmálafræði um skipun nýs ríkissaksóknara:
samhugur Slökkviliðsmenn á frívakt gengu frá Slökkvistöðinni í Hafnarfirði til Keflavíkur til að safna fé fyrir hjartveika stúlku.
DV mynd Karl
Lokað fyrir
fæðingar
Ekki verður hægt að fæða á fæð-
ingardeild Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja í júlí eða í um fjórar til
fimm vikur. Mæður geta þó komið
með börn sín eftir að hafa fætt ann-
arsstaðar og nýtt sér aðra þjónustu
sem fæðingardeildin bíður upp á.
Drífa Sigfúsdóttir, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja, segir þessa
skerðingu á þjón-
ustu vera minni
en þegar loka
þurfti fæðingar-
deildinni alveg
um tíma síðasta
sumar. Þar sem
ekki er til tvöfalt
skurðstofuteymi
verður ekki hægt að fæða um tíma
á staðnum og er sú leið valin til að
fyllsta öryggis sé gætt. Þá er mönn-
un fyrir sumarið ekki lokið en helst
vantar hjúkrunarfræðinga en einnig
er skortur á svæfingarlæknum. Drífa
segir þó búið að ráða nóg til þess að
hlutirnir bjargist í sumar en enn eru
skörð sem hún vill gjarnan fylla.
Piltur á hjóli
varð fyrir bíl
Drengur á reiðhjóli varð fyrir bíl á
gatnamótum Höfðabakka og Bílds-
höfða klukkan hálf fjögur í gær.
Drengurinn var fluttur með sjúkra-
bíl á slysadeild en reyndist ekki vera
alvarlega slasaður þegar þangað var
komið. Hann var ekki einn á ferð
heldur var með honum annar drengur
á hjóli. Sá meiddist ekki en honum var
verulega brugðið eftir slysið sem hann
var vitni að. Ekki lá fyrir í gær, þegar
rætt var við lögreglu, hvort ekið hafi
verið á drenginn eða hvort hann hafi
hjólað í veg fyrir bílinn. Rann niður Gilið
Enginn slasaðist þegar bíll rann
stjórnlaust niður Gilið á Akureyri
skömmu eftir klukkan tvö í gærdag.
Eftir að ökumaður bílsins, sem
var eldri kona, stöðvaði bílinn í
brekkunni rann hann stjórnlaust aft-
ur á bak án þess að hún gæti brugð-
ist við. Bíll hennar hafnaði ofan á
vélarhlíf bíls sem stóð í bílastæði
við húsaröð skammt frá kirkjunni.
Sá bíll skemmdist talsvert. Þótt kon-
an sem ók bílnum hafi sloppið án
meiðsla var henni talsvert brugðið
þegar lögregla kom á staðinn.
Matgæðingur
dæmdur
Matgæðingur var dæmdur í
fimmtán mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur
en alls var hann
ákærður fyrir 25
afbrot. Það al-
varlegasta var til-
raun til innbrots
í höfuðstöðv-
ar Kaupþings
banka í Borgar-
túni í febrúar. Þá
stal hann einnig þremur London-
lambalærum auk Bayonne-skinku
og saltkjöts. Einnig braust hann inn í
bílskúr þar sem hann tók silfurborð-
búnað að verðmæti hundrað þús-
und krónur. Ekki er ljóst hvort hann
hafi ætlað að halda veglega veislu en
hann hafði vissulega allt til þess. Dæmd fyrir að
hindra ekki sölu
Kona var dæmd í Héraðsdómi
Vestfjarða fyrir að aðhafast ekki
vegna fíkniefnasölu manns síns en
hún var meðvituð um að hann seldi
hass.
Maðurinn játaði á sig brotið en
konan sagðist hafa verið mótfallin
fíkniefnasölu hans. Hún gerði hins
vegar ekkert í því og þess vegna sér
héraðsdómur ástæðu til þess að sak-
fella hana fyrir óbeina aðild að mál-
inu. Henni er ekki gerð nein sérstök
refsing vegna málsins enda lagðist
hún gegn brotum manns síns.
„Mér þykir vænt um framtakið
og það er ómetanlegt,“ segir Ari El-
íasson, slökkviliðsmaður hjá Bruna-
vörnum Suðurnesja. Félagar hans
gengu frá Slökkvistöðinni í Hafnar-
firði til Keflavíkur til að safna pen-
ingum fyrir hjartveika dóttur Ara.
Hún heitir Lilja Líf og er þriggja
mánaða gömul en hún greindist
með alvarlegan hjartagalla skömmu
eftir fæðingu.
Foreldrar Lilju Lífar þurfa að fara
alla leiðina til Bandaríkjanna með
stúlkuna og þar þarf hún að gang-
ast undir erfiða og kostnaðarsama
aðgerð.
Félagar Ara láta ekki sitt eft-
ir liggja frekar en við slökkvistörf.
Þeir hafa opnað söfnunarreikning
til þess að sýna honum og fjölskyldu
hans stuðning í verki. Fyrir utan að
ganga um 30 kílómetra fyrir Lilju Líf
þá gerðu þeir það með reykköfunar-
tæki á bakinu.
„Það er mikill samhugur á
slökkvistöðinni og mér finnst þetta
ákaflega fallegur ásetningur,“ segir
Ari, en honum þykir vænt um fram-
lag vinnufélaga sinna. Sjálfur benti
hann þó á að það væru fleiri sem
ættu um sárt að binda og vildi ekki
gera mikið úr eigin aðstæðum í fjöl-
miðlum.
„Það er mikill samhugur hérna
hjá okkur,“ segir Gylfi Ármannsson,
vaktstjóri hjá Brunavarnaliði Suður-
nesja. Aðspurður hvort það sé nú ör-
ugglega ekki einhver á vaktinni þrátt
fyrir að menn séu að leggja hendur
á plóg segir hann að þeir sem áttu
frívakt hafi gengið. Því sé ekkert að
óttast, menn séu tilbúnir til þess að
eyða frítíma sínum til þess að að-
stoða Lilju Líf og fjölskyldu.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að að-
stoða Lilju þá geta þeir lagt inn á
söfnunarreikning númer 1109-05-
420000 í Sparisjóðnum í Keflavík.
Kennitalan er 030773-4469. Fólk er
hvatt til að sýna þessari ungu fjöl-
skyldu stuðning með því að leggja
inn á reikninginn eftir efnum og að-
stæðum hvers og eins.
valur@dv.is
Slökkviliðsmenn sýna samhug í verki og safna fyrir veika telpu:
Gengu til styrktar hjartveikri stúlku
Ökufantur í Grafarvogi
Karlmaður á þrítugsaldri var
tekinn fyrir hraðakstur í Grafar-
vogi um miðnætti í gær. Bíll hans
mældist á 134 km hraða á Gullin-
brú en þar er leyfður hámarkshraði
60. Ökumaðurinn hefur áður verið
staðinn að hraðakstri en þó ekkert
í líkingu við þetta. Hann verður nú
sviptur ökuleyfi til þriggja mánaða
og fær jafnframt 110 þúsund króna
sekt. Fimmtán aðrir ökumenn voru
teknir fyrir hraðakstur á höfuð-
borgarsvæðinu á síðasta sólar-
hring. Tveir þeirra verða sömu-
leiðis sviptir ökuleyfi en báðir
óku langt yfir leyfðum hámarks-
hraða í íbúðargötum.
Krassarar
þrífa veggi
Þrír piltar á þrettánda aldursári
voru staðnir að verki við veggjakrot í
miðborginni eftir hádegi á mánu-
dag. Þeim var gert að þrífa veggja-
krotið af en forráðamönnum þeirra
var tilkynnt um málavexti. Skömmu
síðar var 10 ára piltur gripinn við
sömu iðju í Breiðholti og var honum
ekið til síns heima. Sá iðraðist sáran
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni en foreldrum hans var gert við-
vart. Veggjakrot kostar skattborgara
milljónir króna á hverju ári og því
ekkert spaug að krassa á veggi.
Björn Bjarnason Segist skipa ríkis-
saksóknara þegar hann hefur tíma til þess.
Hjördís rut sigurjónsdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is