Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Side 15
Breiðablik og Valur hafa leikið flottan fótbolta það sem af er móti, en það fór lítið fyrir honum í leikn- um í gær. Willum Þór Þórsson hélt sig við óbreytt lið frá því í undanförnum leikjum enda liðið leikið vel í upp- hafi móts. Ólafur Kristjánsson gerði hins vegar taktíska breytingu á sínu liði og lék 4-3-2-1, með þá Magnús Pál Gunnarsson og Nenad Zivanovic fyrir aftan Prince Ruben Mathilda, sem var í fremstu víglínu. Það benti fátt til annars en að leikurinn yrði hin besta skemmtun strax í upphafi. Sig- urbjörn Hreiðarsson fékk þá algjört dauðafæri eftir frábæran undirbún- ing Helga Sigurðssonar. Helgi lék þá á Srdjan Gasic hægra megin í víta- teignum, renndi boltanum út í teig- inn þar sem Sigurbjörn var staddur, en Hjörvar Hafliðason varði frábær- lega af stuttu færi. Byrjun Valsmanna lofaði góðu fyr- ir leikinn, en hún blekkti áhorfend- ur í raun og veru því lítið markvert gerðist í fyrri hálfleiknum ef frá er tal- ið gott skot Nenad Petrovic undir lok hálfleiksins, en skot hans fór framhjá. Fyrri hálfleikur var hinn rólegasti og létu liðin boltann ganga vel sín á milli, en þegar nálgast fór síðasta vallar- þriðjunginn þá skorti hugmyndaflug og kraft til að klára sóknirnar. Ef fyrri hálfleikur var tíðindalít- ill þá var sá síðari tíðindalaus. Það var ekki fyrr en í lokin að Valsmenn gerðust líklegir fyrir framan mark Blika. Þegar skammt var eftir átti Hafþór Ægir Vilhjálmsson gott skot með hægri fæti rétt utan vítateigs, en skotið fór rétt framhjá. Hafþór hleypti smá lífi í sóknarleik gestanna, en það var langt frá því að duga til. Besta færi leiksins kom í uppbótartíma. Daníel Hjaltason fékk þá sannkallað dauða- færi, en einbeitingarleysi varð hon- um að falli. Eftir langt innkast barst boltinn til Daníels í markteignum, en þrátt fyrir að vera óvaldaður tókst honum ekki að koma skoti á markið og Blikum tókst að bjarga. Leikskipulag Ólafs Kristjánssonar gekk upp að mörgu leyti gekk Vals- mönnum, en mörkin skorti. „Ég var mjög sáttur við leikskipulagið í fyrri hálfleik. Við vorum í smá basli til að byrja með, en það sem eftir lifði hálf- leiks fannst mér við spila vel. Hug- myndin var sú að þétta miðjuna og setja aðeins meiri þyngd í sóknina. Upp úr þessu fannst mér við komast vel upp kantana með bakverðina,“ sagði Ólafur. Aðspurður hvort stigið væri ásætt- anlegt sagði Ólafur svo vera. „Mið- að við hvernig leikurinn spilaðist þá held ég að bæði lið geti verið sátt við stigið. Ég kvarta ekki yfir stigi, það er fínt að fá stig.“ Hann var þó langt frá því að vera sáttur við ástand Kópa- vogsvallar í byrjun tímabilsins. „Við erum búnir að spila núna þrjá heima- leiki og ég verð að senda smá pillu á þennan heimavöll okkar, en hann er vægast sagt í mjög slæmu ásigkomu- lagi. Mér finnst eiginlega skömm að því í svona stóru bæjarfélagi, þar sem leika tvö lið í Landsbankadeildinni, að völlurinn skuli ekki vera betri,“ sagði Ólafur ennfremur. Helgi Sigurðsson var ekki sáttur í leikslok.„Þetta var ekki nógu gott, en við vissum fyrirfram að leikurinn yrði mjög erfiður þar sem Blikar eru með mjög gott lið. Við ætluðum okk- ur meira en þetta. Baráttan var í al- gleymingi og við náðum því miður ekki að skora á þá. Við erum ekki sátt- ir við þetta og úrslitin gefa FH aukna möguleika að auka forystu sína. Það þýðir ekkert að gráta þetta, við verð- um bara að halda áfram,“ sagði Helgi Sigurðsson. Guðmann Þórisson, besti maður vallarins í gær, taldi skemmtanagildi leiksins lítið. „Þetta var eflaust leið- inlegasti leikur okkar í Landsbanka- deildinni það sem af er mótinu. Við erum að spila mjög vel, en það er eitthvað að klikka þegar við nálg- umst markið.“ Aðspurður um eigin frammistöðu sagðist Guðmann vera nokkuð sáttur. „Ég er mjög sáttur við mína frammistöðu fyrir utan leikinn gegn KR, en ég er jafnframt ánægður með vörnina hjá okkur. Höfum fengið á okkur skítamörk, en höldum hreinu í dag,“ sagði Guðmann. Jafnteflið í gær þýðir að FH gefst tækifæri á að auka forystu sína í deildinni. Leikur Valsmanna í gær olli vonbrigðum. Liðið hefur leikið vel það sem af er móti en liðinu skorti hugmyndaflug til að klára sóknirn- ar í gær. Miðja liðsins fann sig illa í leiknum og náðu aldrei að tengja nægilega vel við sóknarlínuna. Varn- arlína liðsins var afar traust með Atla Svein Þórarinsson í broddi fylkingar. Barry Smith átti einnig góðan dag í vörn gestanna. Þegar fjórum leikjum er lokið hef- ur Blikum einungis tekist að skora þrjú mörk. Slíkt getur ekki talist ásætt- anlegt, en það jákvæða er samt að lið- ið er að reyna að spila fótbolta. Það sem samt þannig í knattspyrnu að liðin fá ekki alltaf stig fyrir fegurðina. En liðinu hefur þó tekist að næla sér í þrjú slík og vonandi fer broddurinn að verða meiri í sóknarleik þeirra í næstu leikjum. Guðmann Þórisson stóð upp úr í liði Blika, en hann átti afar góðan leik í miðverðinum. Bakverðir liðs- ins, þeir Árni Kristinn Gunnarsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson, áttu báð- ir mjög góðan leik, en þeir tóku virk- an þátt í sóknarleiknum ásamt því að vera traustir varnarlega. Jafnteflið í gær þýðir að FH gefst tækifæri á að auka forystu sína í deildinni, en liðið leikur gegn Fram í dag. DV Sport ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 15 0 0 BREIÐABLIK VALUR 7 7 7 6 6 6 6 8 5 5 6 5 2 2 3 1 1 Hjörvar Hafliðason Árni Kristinn Gunnarsson Arnór Sveinn Aðalsteinsson Srdjan Gasic Arnar Grétarsson Magnús Páll Gunnarsson Olgeir Sigurgeirsson Guðmann Þórisson Nenad Zivanovic(56.) Nenad Petrovic(61.) Prince(69.) BKjartan Sturluson Barry Smith Atli Sveinn Þórarinsson Birkir Már Sævarsson Sigurbjörn Hreiðarss.(52.) Baldur Bett Helgi Sigurðsson Pálmi Rafn Pálmason Baldur Aðalsteinsson(52.) Rene Carlsen Guðmundur Ben.(80.) TÖLFRÆÐI SKOT Á MARKIÐ SKOT AÐ MARKI SKOT VARIN UNNAR HORNSPYRNUR RANGSTAÐA GUL SPJÖLD RAUÐ SPJÖLD 2 9 2 4 0 2 7 7 8 6 5 5 6 6 4 6 5 VARAMENN: (56.) Steinþór Þorsteinsson 6, (61.) Kristján Óli Sigurðsson 6, (69.) Kristinn Steindórsson 5 VARAMENN: (52.) Dennis Bo Mortensen 5, Hafþór Ægir Vilhjálmsson 7,Daníel Hjaltason - Dómari: Jóhannes Valgeirsson - 8 Áhorfendur: Ekki gefið upp MAÐUR LEIKSINS: Guðmann Þórisson Kjartan Hjörvar CarlsenAtli SveinnSmithBirkir Baldur Bett Baldur A Sigurbjörn Pálmi GuðmundurHelgi Arnór Guðmann Gasic Árni PetrovicArnar Olgeir Zivanovic Prince Magnús Það var ekki boðið upp á neina hágæðaknattspyrnu á Kópavogsvelli í gær þegar Valsmenn sóttu Blika heim. Niðurstaðan markalaust jafntefli. BRAGÐDAUFT Í KÓPAVOGINUM Hjörvar góður Hjörvar Hafliðason kýlir hér frá markinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.