Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Síða 20
ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 200720 Sport DV Steve McClaren tilkynnti 22 manna landsliðshóp á laugardag og var Beckham í liðinu sem kom þó nokkr- um á óvart. Gríðarleg pressa hefur verið á McClaren að velja gamla fyr- irliðann í liðið á nýjan leik eftir slæm úrslit að undanförnu. England leik- ur vináttuleik á nýja Wembley og síðan við Eistland 6. júní. Talið er að ef Englendingar vinni ekki Eista ör- ugglega verði McClaren látinn taka pokann sinn. Ákvörðun McClaren um að velja Beckham er sögð þvert gegn vilja ráðgjafa og þjálfara enska liðsins. Meðal þeirra er Terry Venables. Venables er mjög á móti leikaðferð- inni 3-5-2 sem McClaren hefur ver- ið að nota og er sagður afar ósátt- ur við hlutskipti sitt og vill burt úr landsliðsnefndinni. McClaren er ekki vinsælasta persónan í Bretlandi þessa dagana. Eftir nokkra slaka leiki gegn Maked- óníu, Króatíu, Ísrael og Andorra er talið líklegt að hann verði rekinn vinni Englendingar ekki sannfær- andi sigur á Eistum í Tallinn. David Beckham hefur verið frá- bær í liði Real Madrid í undanförn- um leikjum, þótt hann hafi einungis byrjað þrjá af síðustu ellefu leikjum liðsins. Engu að síður sýndi hann og sannaði gegn Deportivo á laugardag að enn eru töfrar í hægri fæti hans. McClaren sparkaði Beckham úr liðinu eftir að hann tók við að HM loknu. Byrjunin lofaði góðu, þrír sigrar gegn Grikklandi, Andorra og Makedóníu og nýju leikmenn McClarens voru að spila vel. Ásamt Beckham fóru Sol Campell og David James út úr landsliðinu en þeir hafa líkt og Beckham sýnt gamla töfra inni á vellinum í vetur. „David er í liðinu út af spila- mennsku sinni undanfarið og hann getur hjálpað okkur að vinna Bras- ilíu og Eistland,“ sagði McClaren og bætti við að val hans á Beckham væri ekki einhver neyðarlausn. „Ég vil alltaf hugsa til lengri tíma en leikurinn við Eistland er innan skamms og ég held að David geti hjálpað okkur að ná því markmiði. Ég hitti David fyrir fáeinum dögum og átti við hann langt og gott spjall. Ég var hrifinn af áhuga hans að snúa aftur í liðið. Hann er í góðu formi og er að spila vel. Hann hefur fengið löngunina aftur til að spila fótbolta eftir áramót og ég held að hann styrki liðið.“ En hver dettur út fyrir Beckham? Aaron Lennon dró sig út úr hópn- um vegna meiðsla og vilja menn því meina að Frank Lampard muni fá sér sæti á bekknum. Þó er sagt að McClaren muni velja minni spá- mann til að setja á bekkinn og eru þar nöfn Joes Cole eða Michaels Carrick efst á baugi. McClaren verður án þeirra Gar- ys Neville, Micahs Richards, Ashleys Cole, Andrews Johnson, Owens Hargreaves og Bens Foster sem eru meiddir. Þá er Wayne Rooney í leik- banni. benni@dv.is Steve McClaren landsliðsþjálfari Englands kyngdi stolti sínu þegar hann valdi David Beckham aftur í lands- liðið. Líkur eru á að Beckham byrji á móti Eistlandi eftir að Aaron Lennon dró sig úr hópnum. Hollywood þarf að bíða Enski hópurinn Markverðir: Paul Robinson Tottenham Scott Carson Liverpool Robert green West Ham Varnarmenn: Phil Neville Everton Rio Ferdinand Manchester United John Terry Chelsea Wayne Bridge Chelsea Wes Brown Manchester united Jamie Carragher Liverpool Micheal dawson Tottenham Ledley King Tottenham Nickey Shorey Reading Miðjumenn: david Beckham Real Madrid Steven Gerrard Liverpool Jermaine Jenas Tottenham Joe Cole Chelsea aron Lennon Tottenham David Bentley Blackburn Micheal Carrick Manchester united Frank Lampard Chelsea Stuart downing Middlesbrough Kieron Dyer Newcastle Sóknarmenn: Peter Crouch Liverpool Micheal Owen Newcastle alan Smith Manchester united Jermain Defoe Tottenham Inter frá Mílanó vann um helgina Tórínó á heimavelli 3-0 og vann þar með sinn þrítugasta sigur í ítalska boltanum í vetur og bætti met Tórínó frá 1948 um einn sigurleik. Inter hefur verið yfirburðalið í allan vetur í ítalska boltanum og tapaði aðeins einum leik sem er frábær árangur. Nýbakað- ur Evrópumeistari og granni Inter AC Milan endaði í fjórða sæti, heilum 36 stigum á eftir. Roma varð í öðru sæti og Lazio í því þriðja. Roma fer sjálf- krafa í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en Lazio og AC Milan þurfa að fara í undankeppnina. Fiorentina, Palermo og Empoli fara í Evrópu- keppni félagsliða eða UEFA-bikarinn. Inter fékk 97 stig í deildinni sem einnig er met í fimm bestu deildum Evrópu. Chievo sem varð í fjórða sæti í fyrra féll ásamt Ascoli og Messina. Fimm lið áttu á hættu að falla fyr- ir lokaumferðina en Chievo var eina liðið af þessum fimm sem ekki vann sinn leik og það reyndist þeim dýrt. Catanaia virtist vera á góðri leið með að fara niður í Seríu B en mörk frá Fausto Rossini og Mauro Minelli björguðu félaginu sem hefur ekki fengið að leika á heimavelli frá því í febrúar þegar lögreglumaður var myrtur eftir leik liðsins. Siena var fimm mínútum frá því að fara nið- ur en mark frá gamla brýninu Paolo Negro tryggði liðinu sigur gegn Laz- io. Claudio Ranieri fyrrverandi stjóri Chelsea bjargaði Parma en liðið vann Empoli 3-1 og Reggina vann Evrópu- meistarana í AC Milan 2-0. Þrátt fyrir að byrja með 15 stig í mínus náði Fiorentina Evrópusæti, Luca Toni fagnaði vel og innilega með félögum sínum í leikslok en hann hef- ur verið sterklega orðaður við brott- hvarf frá liðinu og er Bayern München talinn líklegasti áfangastaður hans. Francesco Totti varð markahæstur á Ítalíu með 26 mörk en hann skoraði tvö mörk fyrir Roma í sigri á Messina 4-3, Cristiano Lucarelli í Livorno skor- aði 20 og varð í öðru sæti yfir marka- hæstu leikmenn. benni@dv.is Inter frá Mílanó setti met í lokaumferð ítalska boltans um helgina þegar liðið vann sinn þrítugasta leik: Inter langbesta lið Ítalíu Trúðu ekki sínum eigin augum Paolo Sammarco, Cesare Rickler og Marco Malago leikmenn Chievo trúðu ekki að lið þeirra væri fallið niður í Seríu B. Saman á ný Steve McClaren brosir og hlær með Beckham eftir leik á HM 2006. Þeir sameinast nú á ný þótt McClaren hafi sagt að John Terry verði áfram fyrirliði Englands. Töfrar í vinstri líka Beckham kom við sögu þegar Real Madrid skoraði öll mörkin sín gegn deportivo.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.