Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Page 21
DV Sport ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 21
ÍÞRÓTTAMOLAR
Ólafur SpánarmeiStari
Ólafur Stefánsson skoraði 7 mörk þegar
lið hans Ciudad Real tryggði sér
Spánarmeistaratitilinn með því að bursta
antequera 40-29 í
næstsíðustu
umferðinni í
deildinni. Ciudad
hefur fjögurra stiga
forystu á toppnum
þegar aðeins ein
umferð er eftir af
deildinni. ademar
Leon, lið Sigfúsar
Sigurðssonar,
tryggði Ciudad sigurinn með því að
leggja keppinautinn, Portland San
antonio 30-26.
ÍSlendingaSlagur Í SvÍþjÓð
Það var sannur Íslendingaslagur í sænska
boltanum í gær þegar IFK gautaborg lék
við gais. Fjórir Íslendingar voru í
byrjunarliðum
liðanna, þeir Ragnar
Sigurðsson og
Hjálmar Jónsson
voru í byrjunarliði
gautaborgar og léku
allan leikinn í 1-0
sigurleik. Jóhann B.
guðmundsson lék
allan leikinn fyrir
gais en Eyjólfur
Héðinsson var tekinn út af á lokamínút-
um leiksins. Þá kom Sölvi geir Ottesen inn
á í liði djurgården undir lokin þegar lið
hans vann aIK 3-1.
lyn vann
Indriði Sigurðsson og Stefán gíslason
léku báðir allan leikinn með Lyn sem bar
sigurorð af Tromsö í miklum markaleik 4-
3 í norska boltanum.
Indriði lék að vanda
sem miðvörður í
vörninni og stóð sig
með miklum sóma.
Stefán stjórnaði
miðjuspili Lyn eins
og hershöfðingi og
fékk eitt ágætt færi.
Þá unnu Hannes Þ.
Sigurðsson og Birkir
Bjarnason og félagar í Viking Harald
guðmundsson og Álasund 0-2. Hannes
var tekinn af velli undir lokin en Birkir sat
á bekknum allan leikinn. Haraldur lék
fyrstu 77 mínútur leiksins fyrir Álasund.
Brann með Sigur
Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn
Sigurðsson léku að vanda allan leikinn í
vörn Brann í norska
boltanum þegar
liðið lagði Odd
grenland 0-2 á
útivelli. Báðir fengu
góða dóma fyrir sinn
leik og ljóst að þeir
eru í góðu formi sem
er gott fyrir íslenska
landsliðið þótt
Kristján hafi bara
verið valinn að þessu sinni. Ármann Smári
Björnsson kom inn á undir lokin fyrir
Brann. Þá lék Veigar Páll gunnarsson allan
leikinn með Stabæk sem gerði 1-1
jafntefli við Lilleström.
KriStinn dæmir
Kristinn Jakobsson milliríkjadómari hefur
verið valinn af Knattspyrnusambandi
Evrópu, uEFa, til að dæma leik Búlgaríu
og Hvíta-Rússlands í undankeppni EM
2008 eftir rúma viku. Leikurinn fer fram 6.
júní næstkomandi klukkan 20 að
staðartíma á þjóðarleikvanginum í Sofia í
Búlgaríu. Kristni til aðstoðar hefur
dómaranefnd KSÍ
tilnefnt þá Sigurð
Óla Þorleifsson og
Einar Sigurðsson
sem aðstoðardóm-
ara og Magnús
Þórisson sem fjórða
mann. Þetta verður
þriðji leikurinn sem
Kristinn dæmir í
undankeppni EM
2008, áður hafði hann dæmt leikina
Eistland-Makedónía og Pólland-
aserbaídsjan.
vilja fá lippi aftur
Forráðamenn Juventus vilja að gamli
þjálfarinn þeirra Marcello Lippi taki við
liðinu eftir að didier deschamps sagði
upp á dögunum.
Lippi hefur áður
stýrt Juventus við
góðan orðstír, en
hann hefur verið í fríi
síðan hann gerði
Ítali að heimsmeist-
urum síðasta sumar.
framkvæmdastjór-
Þrjú lið berjast um spænska meistaratitilinn en aðeins tvær umferðir eru eftir. Real
Madrid og Barcelona eru jöfn að stigum á toppi deildarinnar en Sevilla fylgir fast á
eftir.
TOPPLIÐIN UNNU ÖLL
Tvær umferðir eru eftir af spænsku
deildinni en þrjú lið bítast um meist-
aratitilinn. Barcelona og Real Madr-
id eru á toppi deildarinnar en bæði
lið hafa 72 stig. Í þriðja sæti er Sevilla
sem stefnir á að vinna þrennu á tíma-
bilinu.
Real Madrid er líklegt til að ná að
vinna sinn fyrsta stóra titil í fjögur ár
en liðið vann Deporivo la Coruna 3-1
á laugardaginn en seinna um kvöld-
ið vann Barcelona nauman sigur á
Getafe 1-�. Real Madrid er í fyrsta
sætinu á betri árangri í innbyrðisvið-
ureignum sínum gegn Barcelona.
Sevilla varð Evrópumeistari félags-
liða á dögunum og þá er liðið komið í
úrslitaleik spænsku bikarkeppninnar.
Liðið vann Real Zaragoza á sunnudag
3-1 og er áfram tveimur stigum á eft-
ir toppliðunum. Valencia tapaði 3-2
fyrir Villarreal um helgina og þar með
fór liðið út úr baráttunni um spænska
meistaratitilinn. Fjögur efstu liðin eru
öll örugg með sæti í Meistaradeild-
inni.
Spenna fram undan
Það er því ljóst að spennandi loka-
umferðir eru fram undan á Spáni en
ekkert verður leikið í deildinni um
næstu helgi vegna landsleikja. Real
Madrid leikur gegn Zaragoza og svo
við Real Mallorca í seinustu umferð-
inni. „Mikilvægi leiksins gegn Zara-
goza er rosalegt,“ segir Ruud van
Nistelrooy, sóknarmaður Real Madr-
id en hann er markahæsti leikmaður
deildarinnar.
Barcelona á nágrannaslag gegn
Espanyol og mætir síðan Gimnasti
Tarragona sem þegar er fallið úr deild-
inni. Börsungar geta þó ekki stólað
á snilli brasilíska landsliðsmannsins
Ronaldinhos þar sem hann fékk að
líta rauða spjaldið um helgina. Lík-
legt er talið að Ronaldinho fái tveggja
leikja bann. Sevilla mun leika við
Mallorka á útivelli og svo Villarreal
sem er í baráttu um Evrópusæti.
„Markmið okkar var að komast í
Meistaradeildina en við stefnum auð-
vitað á titilinn meðan sá möguleiki
er fyrir hendi,“ segir Juande Ramos,
þjálfari Sevilla.
ronaldinho fékk rautt
Það var hart barist þegar Barcelona
vann Getafe 1-� á laugardag. Eina
mark leiksins kom strax á 2. mínútu
en það mark skoraði Ronaldinho eftir
undirbúning frá Samuel Eto´o. Eiður
Smári Guðjohnsen sat allan leikinn á
varamannabekk Börsunga en Arnór,
faðir hans og umboðsmaður, gaf það
út um helgina að Eiður væri ekki á
förum frá spænska stórliðinu.
Segja má að Ronaldinho hafi bæði
verið hetjan og skúrkurinn hjá Barce-
lona því þegar fimm mínútur voru eft-
ir af fyrri hálfleiknum fékk hann rauða
spjaldið fyrir hefnibrot. Börsungar
höfðu yfirhöndina allan seinni hálf-
leikinn en náðu þó ekki að bæta við
mörkum.
David Beckham var maður leiksins
þegar Real Madrid lagði Deportivo 3-
1. Sergio Ramos kom heimamönn-
um yfir en Joan Capdevila jafnaði eftir
tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Það
voru síðan Raul og Ruud van Nistel-
rooy sem innsigluðu sigur Real Madr-
id. elvargeir@dv.is
Hetja og skúrkur Ronaldinho skoraði
sigurmark Barcelona um helgina en fékk
einnig rautt spjald í leiknum.
Skoraði Frederic Kanoute misnotaði
vítaspyrnu um helgina en náði þó að
skora fyrir Sevilla seinna í leiknum.
Í átt að titlinum Real Madrid er í efsta
sæti spænsku deildarinnar en liðið er
með betri árangur í innbyrðisviðureign-
um gegn Barcelona.
Fernando Alonso var á ráspól í
Mónakó-kappakstrinum í Formúlu
1. Hann hélt þeirri forystu allt til
loka og hélt aftur af undrabarninu
og samherja sínum Lewis Hamilt-
on sem varð annar. Felippe Massa á
Ferrari varð þriðji.
Mónakó-kappaksturinn er eitt af
flaggskipum formúlusirkussins og
margir frægir koma á keppnina. Alla
ökumenn langar að vinna kappakst-
urinn sem ekinn er á götum Món-
akó. Formúla eitt er á góðri leið með
að snúast upp í einvígi Ferrari og
McLaren í stigakeppni bílasmiða og
forvitnileg barátta liðanna er fram
undan.
Ökumenn McLaren náðu góðu
starti en mjög erfitt er að taka fram
úr í Mónakó. Lítil keppni var á milli
þeirra og ljóst að yfirmenn þeirra
vildu ekki eiga á hættu að missa báða
bílana og fá engin stig. Þess í stað óku
þeir örugglega í mark og var þetta 17.
sigur Alonsos í Formúlu 1 á ferlinum.
Ökumenn McLaren eru efstir í stiga-
keppni ökumanna með 38 stig hvor.
„Þessi sigur skiptir miklu máli
í stigakeppni ökumanna og bíla-
smiða. Það kom mér á óvart hve
mikla yfirburði McLaren-bílarnir
höfðu í keppninni. Menn hafa unnið
baki brotnu síðustu tvær vikurnar að
endurbæta bílana. Ég hef aldrei áður
verið einni mínútu á undan þriðja
ökumanni móts í endamark,“ sagði
Alonso.
„Ræsingin tókst ekki sérlega vel
en mér tókst að halda forystunni af
því það er stuttur sprettur að fyrstu
beygju. Ég gat sparað bensín í fyrsta
hluta mótsins og gat því hangið á
forystunni eftir fyrsta þjónustuhlé.
Ég tapaði miklum tíma fyrir seinna
þjónustuhlé mitt þegar mér gekk illa
að fara fram úr hægfara bílum, enda
er það erfitt í þessari braut. Sigurinn
var ánægjulegur og ég hlakka til mót-
anna vestan hafs.“
Næstu mót fara fram í Kanada og
Bandaríkjunum.
Heimsmeistarinn fernando alonso fagnaði sigri í götukappakstrinum í Mónakó:
McLaren með yfirburði
Sigurvegarinn Fernando alonso var á
ráspól og hélt forustunni frá upphafi allt
til loka. Hann hringaði alla nema tvo.
Stigakeppni
ökumanna
1. alonso 38
2. Hamilton 38
3. Massa 33
4. Raikkonen 23
5. Heidfeld 18
6. Fisichella 13
7. Kubica 12
8. Rosberg 5
Stigakeppni bílaSmiða
1. McLaren-Mercedes 76
2. Ferrari 56
3. BMW Sauber 30
4. Renault 16
5. Williams-Toyota 7
6. Toyota 5
7. Red Bull-Renault 4
8. Super Aguri-Honda 1