Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 9
DV Fréttir miðvikudagur 30. maí 2007 9
bönd enn betri sem er mjög gott,“
segir Hjörtur.
Eldra fólk endist lengur
Þegar horft er til baka á síðustu
öld var meðalgiftingaraldur lægst-
ur um 1970, árin 1971-1975 var
meðalgiftingaraldur áður ógiftra
kvenna tæp 23 ár og áður ógiftra
karla tæp 25 ár. Þetta hefur hins
breyst talsvert frá því á áttunda
áratugnum og giftingaraldur hef-
ur hækkað jafnt og þétt frá því um
1980. Árið 2006 var meðalgiftingar-
aldur áður ógiftra kvenna sem fyrr
segir tæp 32 ár og áður ógiftra karla
rétt innan við 34 ár sem er um níu
árum hærra en fyrir þremur áratug-
um síðan.
„Ég lít á það sem jákvæðan hlut
að fólk sé búið að búa saman lengi
áður en það giftir sig, andstætt því
sem bókstafstrúarmenn boða, af
þeirri einföldu ástæðu að þá er
komin reynsla á samband fólks og
öll slík reynsla er af hinu góða. Það
hefur nú verið þróunin í Evrópu og
víðar að fólk gifti sig síðar en áður.
Fólk vill ljúka námi og koma undir
sig fótunum áður en það giftir sig.
Við sjáum þessa þróun líka í barn-
eignum, fólk eignast börn eldra en
áður. Þeir sem sækjast eftir lang-
skólanámi vilja ljúka því og gifta
sig og eignast börn síðar en áður.
Þetta er þróunin víða í kringum
okkur og ég held að þróunin hér á
landi fylgi bara í kjölfarið og það er
mjög jákvætt,“ segir Hjörtur Magni
Jóhannsson fríkirkjuprestur.
ELDRI BRÚÐHJÓN LENGUR SAMAN
Dýpkaði
sambandið
Kolbrún Þorsteinsdóttir og
Sigurður Andésson giftu sig
fyrir átta árum, þá 32 ára, og
höfðu þau verið saman síð-
an á menntaskólaárum. „Við
höfðum verið saman lengi en
það var ýmislegt annað á dag-
skránni en brúðkaup,“ segir
Kolbrún. „Ég var í skóla, að
byggja hús og svo eignuðumst
við tvö börn og það var eigin-
lega ekki fyrr en eftir annað
barnið að við ákváðum að það
væri komin tími til þess að við
giftum okkur. Þá var bara ein-
faldlega kominn tími til þess að
loka hringnum. Þetta dýpkaði
sambandið okkar á milli og
hjónabandið hefur mikla þýð-
ingu fyrir okkur sem fjölskyldu.
Það er ákveðin trausts-tilfinn-
ing sem mér finnst mikilvægt
að við höfum, bæði fyrir okkur
og börni. Það að að mamma og
pabbi hafi ákeðið að vera sam-
an til æviloka er mikilvæg til-
finning fyrir alla fjölskylduna.“
„Auðvitað koma alltaf upp
vandamál milli hjón og það er
mikilvægt að leysa þau. Þegar
upp komu vandamál hjá okk-
ur þá lögum við allt á okkur til
þess leysa þau og láta hjóna-
bandi ganga því það er allta
að vinna,“ segir Kolbrún. „Ég
tel það afar mikilvægt að það
sé komin góð reynsla á sam-
bandið áður en fólk ákveður
að ganga í hjónaband. Það var
mjög jákvætt fyrir okkur að vera
búin að búa saman í töluverð-
an tíma áður en við giftum okk-
ur,“ segir Kolbrún.
„Ég lít á það sem já-
kvæðan hlut að fólk
sé búið að búa saman
lengi áður en það gift-
ir sig, andstætt því sem
bókstafstrúarmenn
boða, af þeirri einföldu
ástæðu að þá er kom-
in reynsla á samband
fólks og öll slík reynsla
er af hinu góða.“
Leigubílstjórinn Björn Loftsson talaði í gær við móður unglings
sem lamdi hann í höfuðið með felgulykli. Hann segir hana hafa
alla sína samúð. Litlu mátti muna að Björn lifði árásina ekki af
en hann fór í hættulega skurðaðgerð á höfuðkúpu í kjölfarið.
HEFUR SAMÚÐ MEÐ
MÓÐUR PILTSINS
„Sökin er ekki hennar, hún er búin
að missa bæði börnin sín í fíkniefna-
neyslu,“ segir Björn Loftsson leigu-
bílstjóri sem varð fyrir hrottalegri lík-
amsárás í lok apríl en árásamaðurinn
var fimmtán ára gamall fíkniefna-
neytandi. Móðir piltsins sagði í við-
tali við DV í apríl að hún vildi biðja
leigubílstjórann afsökunar. Þau hafa
talað saman og segir Björn móður-
ina hafa alla sína samúð.
Leigubílstjórinn Björn Loftsson
tók tvo farþega upp í bílinn í Hafn-
arfirði í lok apríl og var beðinn um
að aka þeim til Reykjavíkur. Um var
að ræða fimmtán ára gamlan pilt
og 27 ára gamlan karlmann. Þegar
Björn stöðvaði bifreiðina við Braut-
arholt í Reykjavík sló sá yngri Björn
í höfuðið með felgulykli. Höggið var
bylmingsfast og við það vankaðist
Björn talsvert. Honum tókst þó að
koma sér út úr leigubílnum. Það var
þá sem pilturinn og maðurinn ætl-
uðu að ræna hann. Birni tókst með
naumindum að gera vart við sig og
hurfu þá pilturinn og maðurinn á
brott.
Gæsluvarðhald yfir unglingi
Pilturinn náðist síðar um nótt-
ina. Hann reyndi ásamt félaga sínum
að stela bíl við Laugardalslaug og þá
náði lögreglan þeim. Eldri maðurinn
var úrskurðaður í gæsluvarðhald en
hann dvelur á Litla-Hrauni. Strák-
urinn ungi fór í Hegningarhúsið við
Skólavörðustíg. Ástæðan var pláss-
leysi á Stuðlum. Hann var því annar
unglingurinn til að verða vistaður í
gæsluvarðhald ásamt lögráða föng-
um á árinu. Hann var færður á Stuðla
síðar meir en þar fyrir er annar ungur
brotamaður sem var dæmdur í fang-
elsi fyrir tilraun til manndráps.
Rétt lifði
„Þetta var nokkur léttir fyrir hana,“
segir Björn sem þykir staða móður-
innar sorgleg. Hún er búin að missa
báða syni sína í fíkniefnaneyslu en sá
eldri mun víst vera að taka sig á.
Sjálfur var Björn mjög illa farinn
eftir árásina en höfuðkúpan brotn-
aði við höggið. Litlu mátti muna að
hann léti lífið. Hann fór í aðgerð þar
sem læknar þurftu að ná brotum
úr höfuðkúpunni því þau náðu að
heila. Björn er ennþá mjög slapp-
ur eftir árásina og hefur þegar farið í
eina myndatöku eftir að aðgerðin var
framkvæmd. Hann er að braggast en
býst ekki við að keyra leigubíl í nán-
ustu framtíð.
Harmur móður
Móðir piltsins segir það hafa ver-
ið hræðilegt að horfa á eftir piltinum
í Hegningarhúsið við Skólavörðu-
stíg. Hún vill ekki koma fram und-
ir nafni. Ástæðan er sú að hún vill
vernda persónu sonar síns. DV birt-
ir ekki nöfn svo ungra einstaklinga
sem komast í kast við lögin. Móðirin
segist fegin því að hann sé kominn á
Stuðla. Þar fái hann meðferð við fíkn
sinni en hann hefur þegar farið í eina
meðferð. Að sögn móður unglingsins
hefur hann átt við fíkniefnavanda að
stríða í nokkurn tíma. Sjálf hefur hún
ótal sinnum reynt að tjónka við hann
en það hefur ekki borið árangur.
Pilturinn er enn í gæsluvarðhaldi
og verður málið sent til ákæruvalds.
vaLuR GREttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Þetta var nokkur léttir
fyrir hana.“
Björn Loftsson
var hryllilega illa farinn
eftir fólskulega
líkamsárás fimmtán ára
unglings.
„Við getum ekki sinnt öllum sem
til okkar koma,“ segir Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, verkefnastjóri hjá Mími
– símenntun. „Það er mikil aðsókn
í íslenskunám fyrir útlendinga og
greinilegt að þeir vilja læra íslensku.
Veigamestu þættirnir í starfi skólans
í dag eru íslenskukennsla fyrir út-
lendinga og starfsmenntun.“
Alls voru 5.500 nemendur við
skólann í fyrra en af þeim voru 1.550
sem sóttu námskeið í íslensku fyr-
ir útlendinga. Mikil aukning var á
fjölda þeirra námskeiða á liðnu ári,
en meðal þess sem boðið er upp á
eru byrjendanámskeið í íslensku fyr-
ir Taílendinga, Kínverja, spænsku-
mælandi nemendur og þá sem tala
slavnesk tungumál. Vöxtur á sviði
íslenskukennslu fyrir útlendinga
hefur aldrei verið meiri og fjölgaði
nemendastundum um 115 prósent
frá árinu á undan. Á ársfundi
Mímis – símenntunar í gær
kom fram að velta skól-
ans jókst um 64 prósent
á síðasta ári.
Í kjölfar samnings á
milli Alþýðusambands
Íslands og Samtaka at-
vinnulífsins haustið 2005
voru tryggð aukin fjár-
framlög ríkisins til fullorð-
insfræðslu.
Ingibjörg segir ýmis
þróunarverkefni hafa
verið í gangi
hjá skólanum:
„Við bjóðum
til dæmis upp
á sérstakt nám
fyrir starfsfólk
á leikskólum
sem er 45 ára
og eldri. Meðalaldur þeirra
sem sækja í starfsmenntun
hjá Mími – endurmennt-
un er tiltölulega hár, sem
er ólíkt því sem gerist í
nágrannalöndum okkar,
og er það meðal annars
vegna þessara þróun-
arverkefna. Það virðist
hafa tekist að ná til fólks á
miðjum aldri sem kannski
hafði ekki tækifæri til að fara
í nám á sínum tíma.“ erla@dv.is
Íslenskunám útlendinga í örum vexti:
Getum ekki sinnt öllum
ingibjörg
stefánsdóttir,
verkefnastjóri
hjá Mími –
símenntun
greinilegt að
útlendingar vilja
læra íslensku.
Brotin höfuðkúpa
Litlu mátti muna að Björn lifði ekki
aðgerðina af en höfuðkúpa hans
mölbrotnaði við höggið.