Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 16
FH-ingar nýttu færin sín vel gegn
Fram í Landsbankadeildinni í gær.
Íslandsmeistararnir unnu 2-0 sig-
ur í blíðskaparveðri í Laugardalnum.
Framarar voru sprækari aðilinn í fyrri
hálfleiknum en síðan fór aðeins að
draga úr krafti þeirra. FH-ingar náðu
betri takti og refsuðu fyrir fyrstu mis-
tök Framara en þar var á ferðinni
Matthías Guðmundsson sem hefur
nú skorað í öllum fjórum leikjum FH-
inga til þessa á Íslandsmótinu. Undir
blálokin bætti Tryggvi Guðmundsson
síðan við marki úr vítaspyrnu.
„Við vorum betri í fyrri hálfleik,
það er bara ekki nóg,“ sagði Jónas
Grani Garðarsson leikmaður Fram
og fyrrverandi leikmaður FH. „Þetta
snýst um að skora mörk og ekkert
annað, ekki hvor er betri. Við ákváð-
um að koma grimmir til leiks, pressa
á þá og sjá hvernig þeir myndu
bregðast við. Kannski lokasending-
ar upp við teiginn þeirra sem gengu
ekki nógu vel annars vorum við við
það að komast í gegn en ekki nóg og
skoruðum ekki og þá fær maður ekk-
ert.“
Jónas Grani fékk fínt færi í fyrri
hálfleik sem Daði Lárusson varði.
„Daði djöfull var með þetta, Hans
Mathiesen vildi meina að ég hefði átt
að gefa boltann en það var bara bull,“
sagði hinn geðþekki Jónas að lokum.
Framarar sprækir í byrjun
Framarar komu ákveðnir til leiks
og voru sprækir í fyrri hálfleiknum.
Fyrsti hálftíminn einkenndist af þreif-
ingum beggja liða en athygli vakti að á
því tímabili náðu Íslandsmeistararn-
ir ekki skoti að marki heimamanna.
Hjálmar Þórarinsson lét að sér kveða
og átti tvö hættuleg skot í fyrri hálf-
leik en fann ekki leiðina framhjá Daða
Lárussyni. Á 37. mínútu kom loks
fyrsta marktilraun FH-inga en þá átti
Matthías Guðmundsson skalla sem
fór yfir. Leikurinn fór að opnast und-
ir lok hálfleiksins. Ásgeir Gunnar Ás-
geirsson átti fína skottilraun rétt fyrir
utan teig en boltinn rétt yfir. Hinum
megin var það síðan Jónas Grani
Garðarsson sem fékk mjög gott færi
en skot hans var ekki nægilega gott og
Daði varði.
Á lokamínútu hálfleiksins skall
hurð nærri hælum við mark Framara,
Freyr Bjarnason fékk skallafæri og
markið var nánast opið en ekki hitti
Freyr markið. Matthías Guðmunds-
son kom FH yfir þegar um fimm mín-
útur voru liðnar af seinni hálfleiknum.
Vörn Fram var á afturfótunum og lék
Matthías á nokkra Framara áður en
hann skaut undir Hannes Þór Hall-
dórsson í marki Fram og inn fór bolt-
inn.
Hjálmar fékk mjög gott tækifæri
til að jafna metin fyrir Fram fjórum
mínútum eftir mark Matthíasar. Patrik
Redo átti magnaða sendingu á Hjálm-
ar sem var einn á auðum sjó en kaus
að skjóta í fyrsta. Boltinn sigldi fram-
hjá Daða en einnig framhjá stönginni.
Færi sem heimamenn hefðu átt að
nýta betur.
Krafturinn í Framliðinu hafði
minnkað umtalsvert og því gekk illa
að finna gott marktækifæri til að ná
jöfnunarmarki. Allan Dyring fékk
gott skotfæri fyrir FH þegar tvær
mínútur voru eftir en skaut framhjá.
En á lokamínútunni braut Reynir Le-
ósson á varamanninum Atla Guðna-
syni innan teigs og Garðar Örn Hin-
riksson dæmdi réttilega vítaspyrnu.
Tryggvi Guðmundsson sigraðist á
vítabananum Hannesi í marki Fram
og skoraði.
Kom ró með fyrsta markinu
„Fyrri hálfleikur var svona tæt-
ingslegur, bæði lið voru að berjast
vel, kannski ekki mikið fyrir augað
og töluverður barningur,“ sagði Ólaf-
ur Jóhannesson þjálfari FH. „En eftir
að við komumst yfir þá færðist meiri
ró yfir okkar lið og við fórum að halda
boltanum betur.
Það var svona eins og menn væru
bara að njóta veðurblíðunnar hér í
Laugardalnum í fyrri hálfleik en eins
og ég segi þá fannst mér við vera betri
í síðari hálfleik sem var mjög góður af
okkar hálfu.“
Nú tekur við hlé vegna landsleikja
miðvikudagur 30. maí 200716 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Schumacher er atvinnulauS
Þrátt fyrir að þéna yfir 50 milljónir
dollara, eða rúma 3,1 milljarða króna, á
ári er michael
Schumacher
skráður atvinnu-
laus í Sviss, landinu
sem hann býr í.
akstursíþróttir eru
ekki viðurkenndar
í Sviss og því hefur
Schumacher
formlega verið
skráður sem
atvinnulaus innflytjandi. Það þýðir að
hann þarf aðeins að borga opinber
gjöld af 18,7 milljónum af þeim 3,1
milljarði sem hann þénar á ári.
Schumacher hætti sem kunnugt er að
keppa í fyrra en hefur starfað við
ýmislegt hjá Ferrari síðan þá.
Figo áFram hjá inter?
undanfarna mánuði hefur portúgalski
miðjumaðurinn Luis Figo látið í veðri
vaka að hann ætli
sér að spila með
al-ittihad í Sádi-
arabíu á næstu
leiktíð. Nú virðist
hins vegar allt
benda til að hann
verði áfram í
herbúðum ítalska
liðsins inter frá
mílanó. Figo segir
að vandræði í samningamálum hafi
komið upp. „Eftir að hafa náð samkomu-
lagi við al-ittihad 4. janúar hefur félagið
ekki staðið við umsamda skilmála,“
sagði Figo sem ætlar að senda inn
formlega kvörtun til alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins vegna málsins.
heFur eKKi rætt við juventuS
ítalski þjálfarinn marcello Lippi segir að
ekkert sé hæft í þeim sögusögnum að
hann sé í
viðræðum við
Juventus um að
taka við þjálfun
liðsins. „Ég hef
þegar sagt að ég
muni ekki byrja að
vinna aftur á
næstu mánuðum.
Það er ekkert hæft
í þessum fregnum.
Sérstaklega í ljósi þess að ef félagið vildi
mig þá þyrfti það að tala beint við mig,“
sagði Lippi og átti þar við að hann hafi
ekkert heyrt frá yfirmönnum Juventus.
Lippi hefur ekkert þjálfað eftir að hann
gerði ítali að heimsmeisturum síðasta
sumar.
ronaldinho og KaKa Fá Frí
dunga, þjálfari brasilíska landsliðsins í
knattspyrnu, hefur tilkynnt 34 manna
leikmannahóp
fyrir Copa america
sem hefst 26. júní.
ronaldinho, leik-
maður Barcelona,
og kaka, leikmað-
ur aC milan, fóru
fram á að fá frí í
sumar og dunga
varð við þeirri ósk
leikmannanna.
markverðir: diego, doni, Helton.
varnarmenn: alex Silva, alex, Edu drac-
ena, Juan, Naldo, Tiago Silva, Cicinho,
marcelo, daniel alves, gilberto, kleber,
maicon. miðjumenn: Edmilson, Fern-
ando, gilberto Silva, Josue, Lincoln, min-
eiro, diego, Elano, Julio Baptista, robin-
ho, morais, Ze roberto. Sóknarmenn:
afonso, anderson, Carlos Eduardo, Fred,
Jo, vagner Love, rafael Sobis.
diego beStur í ÞýSKalandi
diego, leikmaður Werder Bremen, hefur
verið valinn besti leikmaður þýsku úr-
valsdeildarinnar í
knattspyrnu af
leikmönnum
deildarinnar. Það
var þýska blaðið
kicker sem stóð
fyrir kjörinu.
diego fékk yfir 50
prósent atkvæða.
Hann skoraði 13
mörk á leiktíðinni
og lék lykilhlutverk í meistarabaráttu
Brimarborgara. Þessi 22 ára gamli Brasil-
íumaður var að leika sitt fyrsta tímabil í
þýsku deildinni en hann kom til Werder
Bremen frá Porto fyrir þessa leiktíð.
gríski sóknarmaðurinn Theofanis gekas,
leikmaður Bochum, varð í öðru sæti
með 10,7 prósent atkvæða en hann var
markahæsti leikmaður deildarinnar.
mario gomez hjá Stuttgart, Bernd
Schneider hjá Leverkusen, og Pavel
Pardo hjá Stuttgart, komu þar á eftir.
Fia hefur hafið rannsókn á aðferðum mclaren-liðsins í Mónakó-kappakstrinum:
McLaren-menn segjast saklausir
Yfirmenn Formúlu 1 liðsins McLar-
en segjast saklausir af þeim ásökunum
sem hafa verið hafðar uppi um að lið-
ið hafi skipað Lewis Hamilton að enda
í öðru sæti á eftir félaga sínum Fern-
ando Alonso í Mónakó-kappakstrin-
um sem fram fór um helgina.
Fernando Alonso fagnaði sigri og
Hamilton endaði í öðru sæti. Það þótti
athyglisvert að þeir félagar háðu aldrei
harða baráttu um fyrsta sætið þrátt fyr-
ir að tækifæri hafi gefist. Stjórn Form-
úlu 1 (FIA) hefur sett af stað rannsókn
sem stuðlar að því að rannsaka málið.
„FIA rannsakar nú atferli McLaren-
liðsins í Mónakó-kappakstrinum 2007
í ljósi þess að hugsanlega hafi lög verið
brotin. Við erum að skoða sönnunar-
gögn áður en frekari yfirlýsing verður
gefin,“ sagði í yfirlýsingu frá FIA.
„Við erum sannfærðir um að hafa
farið eftir lögum. Allar þær ákvarðanir
sem við tókum fyrir og á meðan kapp-
akstrinum stóð voru samkvæmt sett-
um reglum,“ sagði talsmaður McLaren
í kjölfar ákvörðunar FIA.
„Liðsaðferð er það sem þú gerir til
að vinna heimsmeistaratitilinn. End-
anleg niðurröðun bíla er það sem þú
gerir til að koma óorði á kappakstur.
Og við höfum ekki og munum ekki
koma óorði á kappakstur,“ sagði Ron
Dennis, yfirmaður McLaren.
Fyrir fimm árum voru settar regl-
ur sem bönnuðu liðum að ákveða
endanlega niðurröðun ökumanna í
keppnum. Þessi regla var sett í kjöl-
farið á kappakstri í Austurríki þar sem
Barrichello var skipað að víkja fyrir
Michael Schumacher af yfirmönnum
sínum hjá Ferrari. dagur@dv.is Sigurvegarar helgarinnar Fernando alonso fagnaði sigri um helgina og Lewis
Hamilton endaði í öðru sæti.
FH lagði Fram í Laugardal með
tveimur mörkum gegn engu. Íslands-
meistararnir eru þegar komnir með
fjögurra stiga forskot á næstu lið
þegar fjórum umferðum er lokið.
Fátt virðist geta stöðvað Hafnar-
fjarðarhraðlestina sem stefnir á
fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð.
FH STRAX
KOMIÐ MEÐ
FJÖGURRA
STIGA FORSKOT
elvar geir magnúSSon
blaðamaður skrifar: elvargeir@dv.is