Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 21
Á morgun tekur gildi reykingabann á Íslandi
og væntanlega margir reykingamenn sem ætla
að hætta þessum óþarfa ávana í kjölfarið. Marg-
ar mismunandi leiðir eru í boði fyrir fólk sem vill
hætta að reykja og hafa sérstök námskeið sem eiga
að hjálpa fólki að losna við fíknina verið einna
vinsælust. Valgeir Skagfjörð leikstjóri býður upp
á eitt slíkt sem ber heitið Fyrst ég gat hætt - getur
þú það líka, en hann var reykingamaður í ein tutt-
ugu og fimm ár og reykti að sögn tvo pakka á dag
en hefur ekki langað í sígarettu síðan hann hætti
fyrir tólf árum. „Þessi lög um reykingabannið eru
löngu tímabær og tímanna tákn. Þetta hefur geng-
ið ágætlega hjá þeim löndum sem hafa gert þetta
hingað til svo ég hef enga trú á því að þetta verði
vandamál hérlendis,“ segir Valgeir. „Reykingar eru
náttúrulega eitthvað sem á eftir að hverfa úr vest-
rænu samfélagi með tímanum. Þetta er bara eins
og með berklana og hrákadallana sem fólk hélt að
yrði eilíft vandamál en er nánast útdautt í dag.“
Valgeir segist sjálfur bara hafa orðið fyrir vitr-
un og hætt að reykja árið 1995. „Í kringum 1998
fór ég svo að halda þessi námskeið sem ganga út á
það að benda fólki á allar þessar ranghugmyndir
varðandi fíknina og að fólk hljóti í kjölfarið frelsi
frá nikótínfíkninni.“ Valgeir segir grunninn að því
að hætta að reykja vera þann að skilja út á hvað
þetta gengur allt saman og á námskeiðinu sviptir
hann hulunni af þeirri blekkingu að þetta sé fíkn
sem ekki sé hægt að losna undan. „Þetta er allt
saman spurning um hugarfar. Fráhvarfseinkenn-
in sem allir óttast svo mikið eru bara mjög væg og
ekkert mál. Það versta við það að hætta að reykja
er þá bara kvíðinn og sjálfsvorkunnin, fólk heldur
bara að það eigi svo bágt af því að það sé að hætta
að reykja.“ Valgeir segir mikla aukningu hafa verið
á aðsókn í námskeiðið núna í kringum reykinga-
bannið. „Ég er vanalega með námskeið í eitt til tvö
skipti í mánuði í þrjá tíma í senn en það verður
líklega aukanámskeið núna. Það er stíf dagskrá á
námskeiðinu og svo fylgi ég því eftir með tölvu-
póstum og fólk tekur námsefnið með sér heim og
heldur svo áfram í fjarnámi.“
Ekki hlynntur
staðkvæmdarvörunum
Aðspurður út í þá leið að japla á nikótín-
tyggjói í staðinn fyrir að kveikja sér í sígarettu
segist Valgeir persónulega ekki hlynntur því að
viðhalda nikótínfíkninni. „Nikótín er fíkniefni og
þú ert ekkert frelsaður frá fíkninni ef þú kaupir
þér þessar nikótínvörur frá lyfjafyrirtækjunum.
Í staðinn ertu bara byrjaður að styrkja lyfjafyr-
irtækin í staðinn. Málið er að hætta bara alveg,
nikótínið sem lyfjafyrirtækin eru að nota við gerð
þessara nikótíntyggjóa og -stauta eru auk þess
fengin frá tóbaksframleiðendunum því nikótín
er eiturlyf sem ekki er hægt að búa til með efna-
samsetningum.“ Valgeir segir reykingamenn-
ina vera svo varnarlausa að þeir séu til í að gera
hvað sem er til að hætta. „Grey reykingamenn-
irnir eru jafnvel til í að haldast ennþá í þessari
fjárhagslegu ánauð og kaupa sér einhverjar rán-
dýrar staðkvæmdarvörur í stað sígarettupakka.
Málið er að losa sig bara alveg við fíknina, það
er nefnilega svo ósköp einfalt.“ Að lokum bendir
nikótínfrelsarinn Valgeir á þá staðreynd að nik-
ótín sé náttúrulega bráðhættulegt eitur og þó að
við fáum aldrei það stóran skammt í einu að það
drepi okkur, þá drepur nikótínið mann hægt og
bítandi og best sé að hætta bara strax þessum
óþarfa óþverra.
krista@dv.is
DV Lífstíll miðvikudagur 30. maí 2007 21
LífsstíLL
Jákvæð planta
aloe vera plantan hefur löngum verið talin gædd miklum lækningarmætti og
hafa margar vörur verið unnar úr henni. vinsælt er á mörgum heimilum að eiga
plöntuna sjálfa í potti og klippa aðeins af henni til að bera örlítið á sár þegar
börnin koma heim af íþróttaæfingum með brunasár á fótum eða einhver heim-
ilismeðlimur lendir í því að brennast lítillega. Nú hafa verið unnin ýmis krem og
gel úr sjálfri plöntunni sem einnig er gott að eiga heima í skáp.
Jóga Camp að hefjast á akureyri
FrJókornin
valda oFnæmi
Á þessum tíma árs fara ofnæmissjúk-
lingarnir oft að þjást af frjókornaof-
næmi sem getur valdið miklum
óþægindum. Frjókornaofnæmi er
eitt algengasta ofnæmið sem kemur
fram í nefi og augum. margir þjást af
ítrekuðu kvefi í byrjun sumars áður
en þeir átta sig á því að hér sé um
frjókornaofnæmi að ræða. Eitt helsta
einkennið er kláði í augum, augun
verða rauðsprengd og það rennur úr
þeim. Önnur óþægileg einkenni eru
kláði í nefi og síendurteknir hnerrar.
Ýmsar tegundir lyfja gegn ofnæminu
má nálgast í apótekum án lyfseðils
en gott er samt að ráðfæra sig alltaf
við lækni áður en farið er að taka
ofnæmislyf.
minni
olíuumbúðir
Oftar en ekki fjárfestum við frekar í
stærri umbúðum þegar keypt er í
matinn í sparnaðarskyni. Þegar
kemur hins vegar að því að kaupa
hvers kyns olíur til matreiðslu er fólki
frekar bent á að kaupa minni
umbúðir þar sem það sama gildir
með olíur og vín að þær skemmast
eftir því sem matarolían kemst oftar í
snertingu við súrefni. Olían þránar þá
í kjölfarið, bragðið versnar og á hún
það til að skemmast. Ef við sitjum
uppi með hálfa flösku af ódýrri olíu
sem er orðin skemmd og við
neyðumst til að henda fer sparnaðar-
hugleiðingin aðeins að missa marks
og á endanum er betra að kaupa
minna magn, þrátt fyrir að lítraverðið
verði hærra fyrir vikið.
Guðmundur Már Einarsson býður upp á jóga sem höfðar til unga fólksins.
Jóganámskeið njóta sífellt meiri vin-
sælda enda eru fáar íþróttir betri fyrir lík-
amann og heilann. Á Akureyri er að hefjast
námskeið í jóga sem er nokkuð frábrugð-
ið þeim jóganámskeiðum sem boðið hef-
ur verið upp á undanfarin ár. Guðmundur
Már Einarsson er umsjónarmaður nám-
skeiðsins sem hann kýs að kalla Jóga Camp,
en það hefst í dag í líkamsræktarstöðinni
Bjargi. „Þau jóganámskeið sem kennd eru
hérna á Akureyri eru flest í rólegri kantin-
um. Megnið af því fólki sem stundar þau er
eldri konur, en ég er að reyna að stíla meira
á yngra fólk. Miðað við þessi hefðbundnu
námskeið er þetta námskeið töluvert erfið-
ara og verður aðeins meira púl og er nafnið
til komið vegna þess. Tilgangurinn er samt
að láta æfingarnar vinna með líkamanum
og reynt að stíla á að vinna með sína eig-
in þyngd. Áður en námskeiðið hefst hitti ég
hvern og einn og við förum yfir hans vænt-
ingar og markmið gagnvart námskeiðinu.
Einnig fer ég yfir hvernig jóga geti hjálpað
til við að ná því sem fólk sækist eftir,“ seg-
ir Guðmundur sem er nýkominn heim frá
Bandaríkjunum. „Ég var að læra í einni
stærstu heilsuakademíu Bandaríkjanna,
Kripalu Center. Ég byrjaði á að fara á eins
konar leiðtoganámskeið, þar sem ég lærði
mikið um líkamann og heilbrigðan lífsstíl.
Ég fór út síðasta haust og upphaflega ætlaði
ég aðeins að vera í fjóra mánuði og koma
heim um jólin. Mér leist svo vel á þennan
skóla að ég ákvað að halda áfram og fór þá
að læra jógakennarann og fékk próf í tæl-
ensku nuddi,“ segir Guðmundur. Nánari
upplýsingar um námskeiðið er hægt að fá
hjá Guðmundi í síma 692 2072.
Á morgun tekur reykinga-
bannið gildi og eru eflaust
margir Íslendingar ákveðn-
ir í að hætta að reykja í kjöl-
farið. Valgeir Skagfjörð er
einn þeirra sem býður upp
á námskeið sem hjálpar því
að losna við nikótínþörfina
fyrir fullt og allt.
Allt spurning
um hugArfAr
Sólarvörnin
mikilvæg
Nú fara margir að huga að sumarfrí-
inu með fjölskyldunni og finnst
okkur íslendingum fátt betra en að
skella okkur í sumarfrí á sólarströnd
og leyfa sólinni að sleikja okkur svo
við verðum sólbrún og sæt í kjölfarið.
Það sem er hins vegar mikilvægt að
gæta vel að er að hafa sólarvörnina
alltaf við höndina og vera dugleg að
bera á okkur sjálf og alls ekki gleyma
börnunum. Börn sem sólbrenna eiga
meiri hættu á að fá húðkrabbamein
síðar á lífsleiðinni en þau sem ekki
hafa sólbrunnið og fer tilfellum
húðkrabbameins á íslandi stöðugt
fjölgandi. að draga úr þeim tíma sem
varið er í sólbaði og nota sólarvörn
eru bestu forvarnaraðgerðirnar gegn
húðkrabba.
Valgeir
Skagfjörð Segir
reykingabannið
löngu tímabært.
Guðmundur
Már Lagði
stund á
jóganám í
Bandaríkjun-
um.
.