Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Blaðsíða 16
miðvikudagur 13. júní 200716 Sport DV
Úrslit í gær
visa-bikar karla
Fjölnir - Njarðvík 2-1
Höttur - Fjarðabyggð 0-2
ÍR - Grindavík 1-3
Leiknir R. - Selfoss 3-1
Víkingur Ó. - Haukar 1-1
- Framlenging var í gangi þegar blaðið
fór í prentun.
Þróttur R. - Ýmir 6-1
vísa-bikar kvenna
Fylkir - Keflavík 1-1
- Framlenging var í gangi þegar blaðið
fór í prentun.
ÍBV - Afturelding 0-2
sænska úrvalsdeildin
Djurgarden - Gautaborg 2-1
- Sölvi Geir Ottesen kom inn á sem
varamaður á 73. mínútu í lið Djurgar-
den.
- Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn
í vörn Gautaborgar en Hjálmari Jóns-
syni var skipt af velli á 46. mínútu.
Kalmar - Helsingborg 2-0
Staðan
Lið L U J T M S
1 Djurgard. 9 5 1 3 15:8 16
2 Malmö 9 4 4 1 12:6 16
3 Kalmar 9 5 1 3 13:8 16
4 Elfsborg 9 4 4 1 13:9 16
5 Halmstad 9 4 3 2 11:10 15
6 Gautaborg 9 4 2 3 14:10 14
7 Hammarb. 9 3 3 3 12:7 12
8 Gefle 9 3 3 3 9:11 12
9 AIK 9 3 2 4 8:12 11
10 Trelleb. 10 3 2 5 11:18 11
11 Helsingb. 9 3 1 5 11:12 10
12 GAIS 8 2 2 4 5:9 8
13 Örebro 9 1 5 3 7:13 8
14 Bromma. 9 1 3 5 8:16 6
íÞrÓttAMOlAr
Tevez hefur áhuga á InTer
argentínumaðurinn Carlos Tevez, leik-
maður West Ham, hefur látið hafa eftir
sér að hann hafi
áhuga á að ganga í
raðir inter frá
mílanó. „Ég veit að
inter hefur áhuga
á mér. Það væri
frábært að spila á
ítalíu, sérstaklega
með liði sem hefur
svona marga
argentínumenn
innanborðs. Það verða einhverjir fundir,
einhverjar umræður, en ég veit í raun
ekki hvað er staðfest,“ sagði Tevez
á ég að vera áfram
eða á ég að fara?
„Ef mér finnst félagið skorta metnað, þá
mun ég ekki vera hér mikið lengur. Ég
er 29 ára og ég á
ekki mörg ár eftir.“
Þessi orð lét didier
drogba falla og
lýsti yfir áhuga
sínum á að spila á
ítalíu eða Spáni.
„Það er kominn
tími til að taka
róttæka ákvörðun.
Á ég að vera áfram
eða á ég að fara? Það freistar mín að
kanna aðra heima og kynnast
fótboltalífi utan Englands. Það væri
synd ef ég myndi aldrei spila með liðum
sem mig dreymir um að spila með. Það
væri mjög pirrandi. Spánn og ítalía
heilla mig mikið og þrátt fyrir að ég sé
langt frá því að yfirgefa Chelsea, þá veit
maður aldrei hvað gerist,“ sagði drogba.
umboðsmaður hóTar lögsókn
jerome anderson, umboðsmaður
Thierry Henry, hefur hótað að kæra
franska
fótboltablaðið
France Football,
en blaðið hélt því
fram á dögunum
að Henry væri
búinn að
samþykkja þriggja
ára samning við
Barcelona. „Enginn
fundur átti sér stað
á milli jerome anderson og Barcelona í
Frakk-landi né annars staðar og jerome
anderson mun leita lögfræðiaðstoðar
gegn France Football,“ sagði í
yfirlýsingu frá umboðsmanninum.
Henry skrifað undir fjögurra ára
samning við arsenal á síðasta ári. © GRAPHIC NEWS
Hamilton á spjöld sögunnar
Lewis Hamilton komst í hóp stórmenna þegar hann vann jómfrúarsigur sinn í
Formúlu 1 í sinni sjöttu keppni. Hamilton hefur náð besta árangri nýliða
en hann hefur komist á verðlaunapall í öllum keppnum tímabilsins.
Heimildir: FORIX
E. G. Farina ÍTA
J. M. Fangio ARG
E. Fittipaldi BRA
J. Villeneuve KAN
L. Hamilton BRE
J. Ickx BEL
J. Stewart BRE
B. McLaren BRE
A. Ascari ÍTA
C. A. Brooks BRE
M. Andretti BAN
J. Scheckter S-Af
D. Hill BRE
J. P. Montoya KÓL
A. Senna BRA
J. Clark BRE
J. Brabham ÁST
M. Schumacher ÞÝS
2
1
Fjöldi kappakstra fram að fyrsta sigri
Sigurvegarar fyrstu
tvegga kappakstranna
1950
Unnu aldrei
heimsmeistaratitil
4
4
6
7
8
9
9
9
10
12
13
16
15
17
17
18
Hinn 22 ára gamli breski ökuþór
Lewis Hamilton hefur heldur betur
slegið í gegn í Formúlu 1 kappakstr-
inum á sínu fyrsta tímabili. Hann
hefur náð á verðlaunapall á öllum
mótum tímabilsins og hefur þegar
skráð nafn sitt á spjöld sögunnar.
Í sinni fyrstu keppni endaði hann
í þriðja sæti og varð þar með þrett-
ándi ökumaðurinn til að ná á verð-
launapall í sinni fyrstu keppni. Í
þremur næstu mótum endaði hann
öðru sæti og náði þar með forystu í
keppni ökumanna. Hamilton varð
þar með yngsti ökumaður sögunnar
til að ná þeim áfanga.
Kappaksturinn í Mónakó var
um margt umdeildur en þar sigr-
aði Fernando Alonso, félagi Hamil-
ton hjá McLaren, og Hamilton varð í
öðru sæti. McLaren var sakað um að
stjórna úrslitunum en var síðar sýkn-
að af þeim ásökunum.
Hamilton vann sinn fyrsta sigur
í Formúlu 1 um síðustu helgi þegar
keppt var í Kanada. Með sigrinum varð
hann þriðji yngsti ökumaður sögunn-
ar til að vinna kappakstur í Formúlu 1.
Hamilton er fyrsti ökumaðurinn til að
vinna kappakstur á sínu fyrsta tímabili
frá því að Juan Pablo Montoya gerði
það árið 2001. Hann er nú með átta
stiga forskot í keppni ökumanna en
Alonso er í öðru sæti.
„Fólk ætti ekki að gera lítið úr því
sem hann hefur afrekað á skömm-
um tíma. Já, hann er hjá góðu liði,
og já, hann er með góðan bíl, en
það þarf eitthvað sérstakt til að vera
efstur og standa sig vel í keppni eft-
ir keppni,“ sagði Damon Hill, sem
er síðasti breski ökumaðurinn sem
vann heimsmeistaratitil.
dagur@dv.is
Nýstirnið lewis hamilton:
Magnaður árangur
arnór atlason æfir nú með íslenska landsliðinu fyrir leikinn gegn Serbum sem háður
verður 17. júní. Aðeins 200 miðar eru óseldir og nokkuð ljóst að það verður uppselt.
Handknattleikssamband Íslands
hélt í hádeginu í gær blaðamanna-
fund fyrir seinni leik Íslendinga gegn
Serbum í umspili fyrir EM í Noregi.
Leikurinn fer fram á Þjóðhátíðardag
Íslendinga, 17. júní í Laugardals-
höll kl. 20. Arnór Atlason, leikmaður
FCK í Kaupmannahöfn, sem hefur
verið meiddur æfir nú með íslenska
liðinu og verður það skoðað þeg-
ar nær dregur leiknum hvort hann
verði leikfær á sunnudag. Að öðru
leyti verða engar breytingar gerðar
á hópnum sem leikur gegn Serbum
um næstu helgi. Liðið undirbýr sig
nú af kappi fyrir einvígið og ljóst að
íslensku landsliðsmennirnir ætla að
selja sig dýrt í leiknum.
Fyrri leikur liðanna fór 30-29
Serbum í hag og þurfa Íslendingar
því að sigra með að minnsta kosti
tveggja marka mun í síðari leiknum
til að komast á lokamót EM. Alfreð
Gíslason landsliðsþjálfari segir að
Ísland eigi ágæta möguleika í leikn-
um. „Það fer töluvert eftir því hvort
liðið byrji leikinn vel, ef Serbarnir
byrja vel þá fá þeir trúna og við gæt-
um lent í vandræðum. Við þurfum
nauðsynlega á fullu húsi að halda og
svipaðri stemningu og var fyrir ári
síðan gegn Svíum. Sá leikur var al-
gjörlega ógleymanlegur fyrir okkur
og í raun bara eins og verðlaun fyrir
allt keppnistímabilið að fá að upplifa
svona stemningu,“ sagði Alfreð í við-
tali við DV eftir fundinn.
Róbert Gunnarsson, línumað-
ur landsliðsins, segir að leikurinn
í Serbíu hafi verið ógleymanlegur.
„Hitinn og hávaðinn var ótrúlegur
og lætin í áhorfendum rosaleg. Loft-
ræstinginn í salnum var engin og því
var nánast ólíft inn í salnum og mjög
erfitt að spila leikinn þess vegna,“
sagði Róbert.
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, tilkynnti á fund-
inum að einungis 200 miðar væru
eftir á leikinn og nokkuð ljóst að
miðarnir klárast á allra næstu dög-
um. Það fer því hver að verða síðast-
ur að tryggja sér miða á leikinn en
miðasala fer fram á heimasíðunni
midi.is. Umgjörð leiksins verður ekki
síðri en í leiknum gegn Svíum sam-
kvæmt forráðamönnum sambands-
ins. Starfsmenn HSÍ vinna dag og
nótt í því að gera leikinn eins vel úr
garði og mögulegt er og má búast við
nokkrum óvæntum atriðum í um-
gjörð leiksins á sunnudag.
Kári Garðarsson
landslið íslands:
markmenn:
Björgvin gústavsson Fram
Birkir ívar guðmundsson Lubecke
Hreiðar guðmundsson akureyri
aðrir leikmenn:
vignir Svavarsson Skjern
Logi geirsson Lemgo
Bjarni Fritzson Cretail
Sigfús Sigurðsson ademar Leon
Ásgeir Hallgrímsson Lemgo
markús máni michalesson valur
guðjón valur Sigurðsson gummersbach
Snorri guðjónsson minden
Ólafur Stefánsson Ciudad real
alexander Petersson grosswallstadt
Sverre jakobsson gummersbach
róbert gunnarsson gummersbach
Hannes jón jónsson Elverum
arnór atlason FCk
sErBArNir KOMA
alfreð Landsliðsþjálfarinn segir ísland eiga ágæta möguleika í leiknum á sunnudag.
róbert Línumaðurinn knái, róbert
gunnarsson, var íhugull á blaðamanna-
fundinum.
háborðið Á blaðamannafund-
inum hjá HSí í gær var farið yfir
leikina gegn Serbum.