Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Síða 25
Britney og Kevin saman á ný Óhætt er að segja að hjónin fyrrver- andi, Kevin Federline og Britney Spears hafi staðið í ströngu undanfarin misseri. Britney, sem á tvo unga drengi með Kevin, hefur verið ein taugahrúga síðustu mánuði, rakað á sér höfuðið og flakkað inn og út af meðferð- arheimilum. Turtildúfurnar, sem skildu í nóvember 2006 virðast nú vera að stinga saman nefjum á nýjan leik, en þau hafa sést saman undanfarið. Vinkona Britney segir hana aldrei hafa brosað jafn breitt og eftir frí með Kevin á dögunum og nú virðist allt benda til að þau ætli að reyna að koma sambandinu í samt lag á nýjan leik. Grasið er ekki alltaf grænna hinumegin. Fangelsi fyrir slagsmál Ofur pródúserinn Timbaland þurfti að dúsa í klukkutíma bakvið lás og slá í Þýska- landi á mánudaginn var eftir að hafa lent í slagsmálum á bar. Tuttugu og níu ára gamall Króati var lagður inn á spítala vegna brákaðra rifbeina og fleiri eymsla. Upptök slagsmálanna eru sögð vera þau að Timbaland hafi sýnt kærustu mannsins heldur mikla athygli sem endaði í rifrildi. Króatinn mun þá hafa látið niðrandi ummæli falla um litarhaft tónlistarmannsins sem brást illa við. Slagsmálin áttu sér stað fyrir utan barinn þar sem meðlimir úr fylgdarliði Timbaland slógust í hópinn. Timberlake strítt Popparinn Justin Timberlake segir farir sínar ekki sléttar. Þegar hann var í grunnskóla þótti hann skrýtinn og var þess vegna utanveltu. Hann hafði brennandi áhuga á tónlist og var strítt ótæpilega, að eigin sögn. „Annað hvort hafðir þú áhuga á fótbolta, eða þú varst talinn hallærislegur,“ segir Justin, sem þykir öllu merkilegri pappír í dag. „Í Tennessee snérist allt um fótbolta og mér var strítt, því það þótti ekki merkilegt að hafa áhuga á tónlist. Mér var þó sem betur fer ekki strítt of mikið,“ segir bitur Justin sem sendir fyrrum skólafélögum sínum tóninn. „Ef ég ætti að segja eitthvað við þetta fólk núna væri það: „étt‘an sjálfur““. Bandaríska leikkonan Megan Fox sem fer með eitt aðalhlut- verkanna í myndinni Transformers eftir Michael Bay er ein sú heitasta í bransanum í dag. Sumir vilja meina að Meg- an sé hin nýja Angelina Jolie og að risastjarna sé fædd. MEGAN FOXER KOMIN TIL AÐ VERA HVOR BER ÞAÐ BETUR? DV Sviðsljós MiðViKUdAGUr 13. JúnÍ 2007 25 Jay-Z passar vel upp á nýjustu stjörnuna sína Rihönnu: Söngkonan rihanna er ein vinsælasta poppstjarna Bandaríkjanna um þessar mundir. útgáfufyrirtækið def Jam gefur stúlkuna út, en Jay-Z sem er forstjóri def Jam passar víst mikið upp á hana og gætir þess að réttir herramenn nálgist hana. rihanna er aðeins 19 ára gömul og var uppgötvuð fyrir slysni í heimalandi sínu Barbados. Lengi vel voru sögur þess efnis að Jay- Z væri farinn að smala framhjá Beyoncé með rihönnu, en reyndist það ekki rétt. Í nýlegu viðtali segir rihanna frá því að hún hafi ekki haft hugmynd um að Jay-Z væri að vernda hana jafn mikið og raun ber vitni. „Ég komst að því í gegnum sameiginlegan vin að ef einhverjir strákar hafa áhuga á mér þá verða þeir að tala við Jay áður en þeir tala við mig,“ segir söngkonan. Hún er þó ekki óánægð með föðurlega takta rapparans og segist heldur vera þakklát því að hann passi upp á hana í úfnum sjó skemmtibransans. „Hann passar upp á mig og hefur auðvitað mína hagsmuni að leiðarljósi. Ef einhverjir góðir gæjar spyrja um mig þá hleypir hann þeim í gegn, en hvað varðar hina, þá fæ ég ekki einu sinni að vita af þeim,“ segir söngkonan ennfremur. Þurfa að biðla til Jay-Z til að nálgast Rihönnu Megan Fox Hefur stundað leiklist síðan hún var fimm ára. Nýja Angelina Jolie? Margir líkja fegurð Megan við Angelinu Jolie sem er talin ein fallegasta kona í heimi. Ung og upprenn- andi Megan leikur Mikaelu Banes í myndinni. Transformers Vélmennið Bumblebee sést hér í ba kgrunni á kynningu fyrir myndin a. Gerir sig sæta fyrir unnustann Megan er trúlofuð Brian Austin Green úr Beverly Hills 90210 . Jay-Z Hleypir ekki hvað lúða sem er nálægt söngkonunni. Rihanna Treystir dómgreind Jay-Z og segir hann vilja sér allt það besta. Í hörðum heimi tískunnar þar sem fræga fólkið er stanslaust undir smásjánni varðandi klæðnað gerist það oft að sama flíkin er valin. Þá er þetta oft spurning um hvor var í henni á undan eða hvor ber hana betur. Hvað finnst þér? Ugly Betty stjarnan skellti sér í verslunar- ferð í new York nýlega í þessum kjól frá nanette Lepore. Longoria skartaði honum í vor í þættinum hjá Mörthu Stewart. nýkrýnd ungfrú Alheimur frá Japan klæddist þessum glæsilega Gucci kjól í keppninni en Oprah mætti í honum í óskarspartí í febrúar. Berry klæddist þessum Madison Marcus-kjól í lok maí þegar hún stökk út í búð en nicole skellti sér í ræktina nokkrum vikum seinna í eins kjól. Kanadíska söngkonan klæddist þessum Lanvin-kjól í óskarspartíi Vanity Fair í febrúar meðan Grey‘s Anatomy leikkonan mætti í honum á Chrysalis Butterfly-ballið. Celine Dion eða Ellen Pompeo America Ferrera eða Eva Longoria Ungfrú Alheimur eða Oprah Nicole Richie eða Halle Berry

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.