Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2007, Blaðsíða 25
Britney og Kevin
saman á ný
Óhætt er að segja að hjónin fyrrver-
andi, Kevin Federline og Britney Spears
hafi staðið í ströngu undanfarin misseri.
Britney, sem á tvo
unga drengi með
Kevin, hefur verið ein
taugahrúga síðustu
mánuði, rakað á sér
höfuðið og flakkað
inn og út af meðferð-
arheimilum.
Turtildúfurnar, sem
skildu í nóvember
2006 virðast nú vera
að stinga saman
nefjum á nýjan leik,
en þau hafa sést
saman undanfarið.
Vinkona Britney segir hana aldrei hafa
brosað jafn breitt og eftir frí með Kevin
á dögunum og nú virðist allt benda til
að þau ætli að reyna að koma
sambandinu í samt lag á nýjan leik.
Grasið er ekki alltaf grænna hinumegin.
Fangelsi fyrir
slagsmál
Ofur pródúserinn Timbaland þurfti að
dúsa í klukkutíma bakvið lás og slá í
Þýska- landi á mánudaginn var eftir
að hafa lent í slagsmálum á
bar. Tuttugu og níu ára
gamall Króati var
lagður inn á spítala
vegna brákaðra rifbeina
og fleiri eymsla. Upptök
slagsmálanna eru sögð
vera þau að Timbaland
hafi sýnt kærustu
mannsins heldur mikla
athygli sem endaði í rifrildi.
Króatinn mun þá hafa látið
niðrandi ummæli falla um
litarhaft tónlistarmannsins
sem brást illa við. Slagsmálin
áttu sér stað fyrir utan barinn
þar sem meðlimir úr fylgdarliði
Timbaland slógust í hópinn.
Timberlake
strítt
Popparinn Justin Timberlake segir farir
sínar ekki sléttar.
Þegar hann var í
grunnskóla þótti
hann skrýtinn og var
þess vegna
utanveltu. Hann
hafði brennandi
áhuga á tónlist og
var strítt ótæpilega,
að eigin sögn.
„Annað hvort hafðir
þú áhuga á fótbolta,
eða þú varst talinn
hallærislegur,“ segir
Justin, sem þykir öllu
merkilegri pappír í dag. „Í Tennessee
snérist allt um fótbolta og mér var strítt,
því það þótti ekki merkilegt að hafa
áhuga á tónlist. Mér var þó sem betur
fer ekki strítt of mikið,“ segir bitur Justin
sem sendir fyrrum skólafélögum sínum
tóninn. „Ef ég ætti að segja eitthvað við
þetta fólk núna væri það: „étt‘an sjálfur““.
Bandaríska leikkonan Megan Fox sem fer með eitt aðalhlut-
verkanna í myndinni Transformers eftir Michael Bay er ein
sú heitasta í bransanum í dag. Sumir vilja meina að Meg-
an sé hin nýja Angelina Jolie og að risastjarna sé fædd.
MEGAN
FOXER KOMIN
TIL AÐ
VERA
HVOR BER
ÞAÐ BETUR?
DV Sviðsljós MiðViKUdAGUr 13. JúnÍ 2007 25
Jay-Z passar vel
upp á nýjustu
stjörnuna sína
Rihönnu:
Söngkonan rihanna er ein vinsælasta poppstjarna Bandaríkjanna um
þessar mundir. útgáfufyrirtækið def Jam gefur stúlkuna út, en Jay-Z sem er
forstjóri def Jam passar víst mikið upp á hana og gætir þess að réttir
herramenn nálgist hana. rihanna er aðeins 19 ára gömul og var uppgötvuð
fyrir slysni í heimalandi sínu Barbados. Lengi vel voru sögur þess efnis að
Jay- Z væri farinn að smala framhjá Beyoncé með rihönnu, en reyndist það
ekki rétt. Í nýlegu viðtali segir rihanna frá því að hún hafi ekki haft hugmynd
um að Jay-Z væri að vernda hana jafn mikið og raun ber vitni. „Ég komst að
því í gegnum sameiginlegan vin að ef einhverjir strákar hafa áhuga á mér þá
verða þeir að tala við Jay áður en þeir tala við mig,“ segir söngkonan. Hún er
þó ekki óánægð með föðurlega takta rapparans og segist heldur vera þakklát
því að hann passi upp á hana í úfnum sjó skemmtibransans. „Hann passar upp
á mig og hefur auðvitað mína hagsmuni að leiðarljósi. Ef einhverjir góðir gæjar
spyrja um mig þá hleypir hann þeim í gegn, en hvað varðar hina, þá fæ ég ekki
einu sinni að vita af þeim,“ segir söngkonan ennfremur.
Þurfa að biðla
til Jay-Z til að
nálgast Rihönnu
Megan Fox
Hefur
stundað
leiklist síðan
hún var
fimm ára.
Nýja Angelina
Jolie? Margir líkja
fegurð Megan við
Angelinu Jolie sem er
talin ein fallegasta
kona í heimi.
Ung og
upprenn-
andi Megan
leikur
Mikaelu
Banes í
myndinni.
Transformers Vélmennið
Bumblebee sést hér í ba
kgrunni
á kynningu fyrir myndin
a.
Gerir sig sæta fyrir
unnustann Megan
er trúlofuð Brian
Austin Green úr
Beverly Hills 90210
.
Jay-Z Hleypir ekki hvað lúða sem er
nálægt söngkonunni.
Rihanna Treystir dómgreind Jay-Z og segir hann vilja sér allt það besta.
Í hörðum heimi tískunnar þar sem
fræga fólkið er stanslaust undir
smásjánni varðandi klæðnað gerist
það oft að sama flíkin er valin. Þá er
þetta oft
spurning um
hvor var í henni
á undan eða
hvor ber hana
betur. Hvað
finnst þér?
Ugly Betty
stjarnan
skellti sér í
verslunar-
ferð í new
York nýlega
í þessum
kjól frá
nanette
Lepore.
Longoria
skartaði
honum í
vor í þættinum hjá Mörthu Stewart.
nýkrýnd
ungfrú
Alheimur frá
Japan klæddist
þessum
glæsilega
Gucci kjól í
keppninni en Oprah mætti í honum í
óskarspartí í febrúar.
Berry
klæddist
þessum
Madison
Marcus-kjól
í lok maí
þegar hún
stökk út í
búð en nicole skellti sér í ræktina
nokkrum vikum seinna í eins kjól.
Kanadíska söngkonan klæddist
þessum Lanvin-kjól í óskarspartíi
Vanity Fair í febrúar meðan Grey‘s
Anatomy leikkonan mætti í honum
á Chrysalis Butterfly-ballið.
Celine
Dion
eða
Ellen Pompeo
America Ferrera
eða Eva Longoria
Ungfrú Alheimur
eða
Oprah
Nicole Richie eða
Halle
Berry