Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Qupperneq 4
Lögreglan í Kópavogi þurfti í
fyrrakvöld að grípa til þess ráðs að
loka fyrir umferð ökutækja á milli
Digranesvegar og Dalsmára. Vegkafl-
inn sem um ræðir er vestan megin
við verslunarhúsið að Smáratorgi en
um götuna aka þúsundir bíla á hverj-
um sólarhring. Að sögn Rúnars Sig-
urðssonar, varðstjóra lögreglunnar í
Kópavogi, var ástæða lokunarinnar
sú að frágangur verktaka sem þar er
við störf var ekki fullnægjandi en sex
til sjö metra djúp hola er nokkrum
metrum frá veginum.
Mikill fjöldi kvartana barst frá veg-
farendum sem áttu leið um og ákvað
lögreglan að grípa til þess ráðs að
loka veginum þangað til verktakinn
hefði bætt öryggi svæðisins. „Við vor-
um búnir að biðja hann um að ganga
almennilega frá þessu því þarna var
mikil slysahætta. Það virðist ekki
hafa komist til skila,“ segir Rúnar. „Ef
einhver hefði misst stjórn á bílnum
sínum á þessu svæði þá hefði getað
farið mjög illa því holan sem er við
veginn er mjög djúp og þverhnípt.
Það voru ekki eingöngu ökumenn
sem voru í hættu því gangandi veg-
farendur voru einnig í mikilli hættu.
Vegna þeirrar miklu slysahættu sem
var á svæðinu ákváðum við að loka
veginum.“
Að sögn Rúnars var ástæðan fyr-
ir þessum lélega frágangi sú að ekki
voru fáanlegir viðeigandi stein-
klumpar sem gjarnan eru notaðir í
vegaframkvæmdum. Ekki tókst að
útvega þessa klumpa nógu fljótt og
var því gatan lokuð í tæpan sólar-
hring. Verktakinn sem var við vinnu
hafði eingöngu sett gúmmíkeilur
sem þóttu ekki fullnægjandi. Í gær-
morgun var hins vegar farið í það að
útvega steinsteypta klumpa sem var
komið fyrir um miðjan dag í gær og
gatan því opnuð á nýjan leik seinni
partinn.
Lokunin á vegarkaflanum olli
nokkrum vandræðum fyrir ökumenn
í gærmorgun og var mikil umferð hjá
Smáralindinni á háannatíma. Allt fór
þó vel að lokum og varð lokunin ekki
til teljandi vandræða. einar@dv.is
föstudagur 20. júlí 20074 Fréttir DV
Slapp vel
úr bílveltu
Ökumaður slapp meira og
minna ómeiddur þegar bíll sem
hann keyrði valt á Reykjanes-
braut til móts við Vogaveg. Atvik-
ið átti sér stað rétt fyrir klukkan
tvö aðfaranótt fimmtudags.
Ökumaðurinn var einn í bíln-
um. Hann var fluttur á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja til skoðun-
ar hjá lækni og fékk að fara heim
að lokinni skoðun.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Mikið veitt af
kolmunna og síld
Íslensk skip rúmlega 34 þús-
und tonn af kolmunna í síðasta
mánuði. Þessi afli var veiddur að
mestu á íslensku hafsvæði eða
um 27 þúsund tonn og rúmlega
sjö þúsund tonn á færeysku haf-
svæði.
Góð veiði var á norsk-ís-
lenskri síld í júní og veiddu ís-
lensk skip rúmlega 30 þúsund
tonn. Þessi afli var að langmestu
leyti veiddur á íslensku hafsvæði
eða rúmlega 29 þúsund tonn
og afgangurinn var veiddur á
færeysku hafsvæði. Úthafskarfa-
aflinn var rúmlega 10 þúsund
tonn og var hann veiddur á al-
þjóðlegu hafsvæði.
Átján ökumenn
voru myndaðir
Myndavélarbíll lögreglunnar
á Akureyri myndaði og átján öku-
menn sem óku of hratt á Borgar-
braut og Drottningabraut á Akur-
eyri í gær. Flelstir ökumannana
óku á 70 og 80 kílómetra hraða.
Að sögn lögreglunar á Ak-
ureyri sést ökumaðurinn sem
ekur bílnum greinilega á þessum
myndum og farþeginn sést einn-
ig skýrt. Lögreglan segir enn-
fremur að myndirnar séu aldrei
skyggðar svo að farþegi eða öku-
maður sjáist ekki og því getur
sá sem bílinn á auðveldlega séð
hver ekur honum og hver farþegi
bílsins er. Undanfarið hafa vakn-
að efasemdir að þetta standist
kröfur um persónuvernd.
Mál Oddfríðar Helgadóttur og fjöl-
skyldu hennar er síður en svo eins-
dæmi segir Sigurður Helgi Guðjóns-
son, formaður Húseigendafélagsins.
Oddfríður sagði frá því í DV í gær að
sex manna fjölskylda hennar væri á
hrakhólum vegna vanefnda verk-
taka. Samkvæmt kaupsamningi átti
hún að fá hús í Dalahverfi í Vogun-
um afhent í ágúst. Óöryggi hefur ein-
kennt líf fjölskyldunnar undanfarið
ár. Trésmiðja Snorra hefur enn ekki
afhent húsið.
„Maður hefur séð fjölskyldur
sundrast,“ segir Sigurður um álagið
sem fylgir drætti á afhendingu hús-
næðis.
Væntingar breytast í martröð
Sigurður segir að dráttur á afhend-
ingu húsnæðis geti haft gífurleg áhrif
á fjölskyldur. „Væntingarnar eru mikl-
ar í byrjun og allir hlakka til að flytja
í nýtt hús. Langar tafir valda mikl-
um vonbrigðum og að lokum verð-
ur þetta að martröð.“ Almennilegir
menn leysa úr málunum skjólstæð-
inga sína, segir Sigurður. „Þeir láta
þá ekki éta það sem úti frýs. Svona
hlutir eiga ekki að gerast.“
Hann segir mál sem þessi
allt annað en fátíð. „Einhverra
hluta vegna hafa gallar í bygging-
um fengið meiri athygli en drátt-
ur á afhendingu. Það er þó hann
sem leggst meira á fólk og fer verr
með það.“ Sigurður bendir á að
réttur kaupanda til að fá afhenta
nýja eign er mjög ríkur. Lagalega
séð eigi hann að standa eins vel
og hugsast getur. „En þó að rétt-
urinn sé þeirra megin getur þessi
afhendingardráttur farið með fjöl-
skyldur langleiðina í gröfina. Álag-
ið er mikið.“
Sigurður segist þekkja vel til
mála sem þessara. „Lýsingin er yf-
irleitt mjög svipuð. Verktakar fara sér
of hratt, taka að sér of mörg verkefni
og komast ekki yfir að sinna þeim öll-
um almennilega.“ Hann segir þetta
vandamál verða því algengara þeim
mun meira sem byggt sé. „Þegar
spennan og hraðinn er orðinn eins
mikill og raun ber vitni fara að koma
upp vandamál.“
Fasteignasalar líka ábyrgir
Í samtali við DV í gær segir Odd-
fríður að fyrir um mánuði hafi for-
svarsmenn Trésmiðju Snorra boðað
til fundar þar sem þeir vildu fara yfir
kaupsamninginn. Þá hafi þeir sagt að
vegna þess hversu mikil bygginga-
vísitalan hafi hækkað frá því að skrif-
að var undir samninginn myndu þeir
stórtapa á að byggja hús fjölskyldunn-
ar fyrir umsamið verð. Því vildu þeir
rifta samningnum og gera nýjan þar
sem Oddfríður og fjölskylda hennar
myndu borga 2,5 milljónum króna
meira en lagt var upp með.
Sigurður gagnrýnir þessi vinnu-
brögð harðlega. „Samningum verð-
ur ekki rift nema með samþykki
beggja aðila eða ef annar þeirra
hefur brotið verulega af sér. Það
má líkja þessu við ofbeldissam-
band. Maðurinn sem lemur kon-
una sína biður ekki um skilnað á
grundvelli barsmíðanna.“ Hann
bendir einnig á að þeim sem
starfa í byggingaiðnaðinum sé
fullkomlega ljóst að byggingavísi-
talan er breytileg.
Sigurður segir að fasteigna-
salar eigi að standa vörð um rétt-
indi fólks. „Þegar menn eru tengd-
ir vegna hagsmuna beggja aðila
breytir það hins vegar viðhorfum
fólks.“ Hann segir fjölskyldur oft
lítils megnunar gegn stórum verk-
tökum. „Það er afar mikilvægt að
fasteignasalar standi sig í stykkinu.
Verktakar vita að fjölskyldur hafa gert
ráðstafanir í tengslum við húsakaup-
in og geta nýtt sér neyð þeirra. Fyrir-
tæki sem eru í miklum viðskiptum við
fasteignasala geta sett þá í vanda.“
Við vinnslu fréttarinnar náðist
ekki í Snorra Hjaltasonar hjá Tré-
smiðju Snorra. Ekki náðist heldur í
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóra Voga,
eða Birgi Örn Ólafsson, forseta bæjar-
stjórnar, til að fá staðfestingu á fjölda
þeirra lóða sem trésmiðjan hefur
fengið úthlutað til bygginga.
Formaður Húseigendafélagsins segir að þó lagalegur réttur húskaupenda eigi að vera
tryggður geti álagið við drátt á afhendingu valdið gífulegri streitu og álagi. Hann gagn-
rýnir vinnubrögð Trésmiðju Snorra í samskiptum við Oddnýju Helgadóttur.
ÁLAGIÐ FER MEÐ FÓLK
Lögreglan þurfti að grípa til þess ráðs að loka fyrir umferð vegna lélegs frágangs:
Kæruleysi verktakans
Stórhættulegt Eins og
sjá má er holan mjög djúp
og stutt frá veginum.
Þrjú prósent
án atvinnu
Þrjú prósent voru án at-
vinnu í apríl, maí og júní sam-
kvæmt Hagstofunni. Það er
þrefalt meira en skráð atvinnu-
leysi hjá Vinnumálastofnun
Sigurður P. Sigmundsson,
hjá Vinnumálastofnun
segir mælingarnar ólíkar.
„Hagstofan er með úrtak og
spyr um stöðu fólks. Er það í
vinnu eða ekki í vinnu? Það
þýðir að námsmaður sem er
ekki byrjaður í vinnu telur
sig vera atvinnulausan á því
augnabliki.“
fréttir
Krabba-
meins-
sjúklingar
bíða
fjölskyldan
sundruð
eftir
húsa-
kaupin
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
fimmtudagur 19. júlí 2007 dagblaðið vísir 107. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
Dansar
regn-
dans á
fjöllum
keypti hús í byggingu og afhending hefur dregist mánuðum saman:
>>Landsmenn leggja margir
hverjir land undir fót um
helgina. DV ræddi við fólk sem
hefur ólíkar hugmyndir um
hvernig verja skal helginni.
Einn viðmælandi eltir sólina,
annar fer í sumarbústað og sá
þriðji snýr heim úr brúðkaups-
ferðinni.
Dauðinn
fylgir
f amförum
>>Hátt í 30 þúsund
kínversk börn deyja árlega
vegna mengaðs vatns.
>>Sumarfrí starfs-
manna verða til
þess að krabba-
meinssjúklingar
þurfa að bíða viku
til tíu dögum lengur
eftir geislameðferð.
– sex manna fjölskylda þarf nú að hafast
við á þremur stöðum eftir að verktaki
skilaði nýbyggingu ekki á tilsettum
tíma. töfin er að verða eitt ár. sjá bls. 2
fréttir
Öruggt hjá FH
>> Íslandsmeistarar FH áttu ekki í
teljandi erfiðleikum gegn færeyska
liðinu HB í gær og unnu 4-1 sigur.
Þetta var fyrri leikur liðanna í
forkeppni Meistaradeildarinnar. Í DV-
Sport er fjallað ítarlega um leikinn og
einnig um leik Íslands og Spánar í
Evrópukeppni U-19 landsliða kvenna.
Erla HlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Fimmtudaginn 19. júlí
„Það er afar mikilvægt að fast-
eignasalar standi sig í stykk-
inu. Verktakar vita að fjöl-
skyldur hafa gert ráðstafanir
í tengslum við húsakaupin og
geta nýtt sér neyð þeirra.“
Sigurður Helgi guðjónsson formaður Húseig-
endafélagsins segir fjölskyldur oft mega sín lítils í
baráttunni við stórtæka verktaka. Hann bendir á að
fasteignasalar beri ábyrgð gagnvart kaupanda.