Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 30
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200730 Sport DV J ón Arnór Stefánsson er víðförull körfuknattleiks- maður þrátt fyrir ungan aldur. Jón er tuttugu og fimm ára en hefur þeg- ar spilað körfuknattleik í fimm löndum utan Ís- lands. Leiðin hefur leg- ið frá NBA-deildinni yfir til Evrópu þar sem hann hefur búið og spilað í Þýskalandi, Rússlandi, á Ítalíu og Spáni. DV náði tali af Jóni og fór yfir fer- ilinn með honum. Jón vakti snemma athygli fyrir vasklega framgöngu á velli. Hann fór snemma til útlanda að freista gæfunnar og fór í framhaldsskóla í Bandaríkjunum. Það var hins vegar stutt gam- an og Jón kom aftur heim. Hann var valinn efnilegasti leikmaður íslensku deildarinnar árið 2001. Árið eftir var hann valinn besti leik- maðurinn einungis tvítugur að aldri og því lá leiðin næst út í atvinnumennsku og hélt hann fyrst til Þýskalands. „Tíminn úti í Þýskalandi var mjög mikilvæg- ur fyrir mig. Ég spilaði í efstu deild þar og þjálf- arinn treysti á mig. Þá fékk ég sjálfstraust og það hjálpaði mér að komast á hærri stall sem leikmaður. Mér gekk vel að aðlagast lífinu þar því ég var vanur að búa einn frá því í Bandaríkj- unum,“ segir Jón. Var vísað úr landi „Þegar ég var 15–16 ára fór ég í skóla í Bandaríkjunum og þá kvaddi ég mömmu og pabba. Það var mjög erfiður tími en ég vandist að reiða mig á sjálfan mig á þessum tíma. Ástæðan fyrir því að ég fór í high school (framhaldsskóla) í Bandaríkjunum er sú að ég ætlaði mér að komast í NBA í gegnum college (háskóla) en til að komast í college í Bandaríkj- unum þurfti ég að fá skólastyrk. Það endaði allt með ósköpum því pappírar sem voru sendir heim voru falsaðir og þjálfar- inn minn stóð í einhverjum vafasömum mál- um. Það leiddi til þess að mér var hent út úr landinu og ég var á svörtum lista og mátti ekki koma inn í landið í einhver tvö ár. Við vorum meira að segja yfirheyrðir, ég og pabbi, en það kom ekkert út úr því og mitt nafn var hreins- að. Ég var skíthræddur um að það yrði erfitt að komast inn í landið síðar, en það reyndist ekk- ert mál,“ segir Jón. NBA Árið 2003 varð Jón annar íslenski leikmaður- inn til þess að komast að hjá liði í NBA-deildinni á eftir Pétri Guðmundssyni sem spilaði með La- kers og Spurs. Dallas Mavericks varð fyrir valinu en það var geysisterkt lið á þessum tíma og þeir sem spiluðu með liðinu meðal bestu leikmanna heims. Þeirra á meðal var leikstjórnandinn Ste- ve Nash en mikill vinskapur tókst með þeim fé- lögum þegar Jón var þar. Jón stóð sig vel á undir- búningstímabili og í sumardeildinni en fékk hins vegar aldrei tækifæri hjá Don Nelson þjálfara liðsins og yfirgaf liðið eftir tímabilið árið 2004. „Það var náttúrlega draumi líkast að komast fyrst inn í NBA því þangað hafði maður stefnt. Þetta var alveg svakalega mikil reynsla fyrst og fremst. Til að byrja með var ég ferskur og tilbú- inn að leggja mikið á mig þó ég fengi ekkert að spila. Maður var að æfa sjálfur, helmingi meira en aðrir, en ég fékk aldrei tækifæri. Ég var líka ei- lítið óþolinmóður og var þreyttur á því að sitja á bekknum. Síðan kom nýtt tímabil og það var alls ekkert víst að ég fengi eitthvað að spila þá og ég vildi ekki taka þá áhættu. Því ákvað ég að fara,“ segir Jón. „Eftir á að hyggja var ég of ungur og svo var Dallas Mavericks of gott lið fyrir mig. Þarna var til dæmis Steve Nash í minni stöðu og fleiri mjög góðir leikmenn. Sennilega hefði verið betra að fara í verra lið, eins og Bulls eða eitthvað. Þá var Don gamli Nelson þjálfari og hann talaði lít- ið við okkur leikmennina. Aðstoðarþjálfararnir voru meira í því að peppa mann upp og hvetja mann áfram. Æfingarnar í NBA voru öðru vísi en ég á að venjast því það er svo til ekkert æft á tímabilinu sjálfu vegna leikjafjölda. Því er mest farið í taktísk atriði fyrir næstu leiki á æfingum og engin færi til að sanna sig á æfingum. Ég varð því alltaf að vera einn að æfa og að lokum varð ég hreinlega að komast í burtu,“ segir Jón. „Eftir að ég fór frá Dallas spilaði ég í NBA- sumardeild og þar gekk mér vel. Eftir hana kom fullt af fyrirspurnum frá öðrum liðum í deild- inni. En ég var enn samningsbundinn Dallas og því varð ekkert úr því. Þegar ég svo losnaði frá samningi við Dallas mátti ég ekki semja við neitt annað lið í deildinni og því fór ég til Evrópu. Þar hefur mér líkað vel að vera. Ég hef lítið haldið sambandi við Steve Nash enda er ég alveg ótrú- lega lélegur í því að halda sambandi við menn,“ segir Jón. Rússland Eftir veruna í Bandaríkjunum fór Jón til Dynamo St. Petersburg í Rússlandi árið 2004 og dvaldi þar í eitt ár. „Ég fór til Rússlands og það var mjög góður tími. Deildin þar er mjög sterk og miklir peningar settir í körfuboltann. Þar eru margir toppleikmenn frá Evrópu og CSKA Moskva er alltaf að verða Evrópumeist- ari og það ætti að gefa mönnum tilfinningu fyr- ir því hvað þetta er sterk deild. Þar fékk ég aftur að spila mikið, sérstaklega í Evrópukeppninni. En vegna leiðinlegra reglna í Rússlandi þurftu alltaf að vera tveir Rússar inni á vellinum í einu, annars var dæmd tæknivilla. Það voru margir útlendingar hjá liðinu og því var erfitt fyrir þjálfarann að veita ölllum tíma inni á vellinum,“ segir Jón. Jón spilaði mikið í Evrópukeppninni sem liðið vann og segir Jón það hafa verið ótrú- lega góðan tíma. „Þetta var fyrsti titillinn í Evr- ópu og tilfinningin var ótrúlega góð eftir að við höfðum lagt Dynamo Kiev í undanúrslitum og annað rússneskt lið í úrslitaleiknum sjálfum,“ segir Jón. „Mér gekk vel að aðlagast lífinu í Rússlandi. Hver leikmaður hafði sinn einkabílstjóra sem talaði ensku og hjálpaði mér að túlka það sem aðrir voru að segja. Það hjálpaði mér mikið því ef ég hefði þurft að standa einn í þessu hefði ég aldrei komist inn í lífið þarna. Rússarnir voru indælir, þeir eru nokkuð líkir okkur Íslendingum að því leyti að þeir eru lok- aðir og oft að glíma við skammdegisþunglyndi. Síðan þegar þeir opna sig er ekki hægt að eign- ast traustari vini. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim,“ segir hann. Á þessum tíma komst Jón í Evrópuúrvalið sem keppti gegn heimsliðinu og var það mik- ill heiður. Í leiknum spilaði Jón Arnór heilmikið og stóð sig vel. Skoraði 10 stig og átti tvær stoð- sendingar auk þess að taka þrjú fráköst og gefa eina stoðsendingu. Úr kuldanum í Rússlandi til hitans í Napólí Eftir eitt ár var hann orðinn þreyttur á ver- unni í Rússlandi. Þrátt fyrir það á hann góðar minningar þaðan, þó heillaði ekki að dvelja þar annan langan vetur, en kuldinn á þessum slóðum er mikill. Þegar tækifæri gafst á að fara í heitara loftslag stökk hann á það og hélt til liðs við Napólí á Ítalíu. „Það var svolítið vafasamt að fara til Napól- íborgar. Mamma var ekki sátt við það því hún hafði ferðast mikið um landið og vissi að borg- in var þekkt glæpaborg. En það sem vakti fyrir mér var að ég vissi að ég myndi koma til með að spila mikið í sterkri deild og því ákvað ég að slá til. Ég sé heldur betur ekki eftir því og átti frá- bært tímabil þar sem ég spilaði heilan helling. Á Ítalíu eru fleiri sterk lið en í Rússlandi þar sem eru nokkur mjög góð lið en hin eru slök. Eins voru átján lið í deildinni sem er meira en í Rússlandi og því fleiri leikir til að spila. Um- gjörðin á Ítalíu var að vísu svolítið skrítin og þeir voru stundum seinir að borga launin. Þannig er þetta bara á Suður-Ítalíu og mér fannst þetta eiginlega bara fyndið eftir að ég vandist þessu og líkaði veran vel,“ segir Jón. Á FLAKKI FRÁ 15 ÁRA ALDRI Jón Arnór Stefánsson er besti körfuknattleiksmaður Íslands. Mikla athygli vakti hérlendis þegar hann komst að hjá Dallas Mavericks í NBA-deildinni. Hann spilar nú á Ítalíu eftir að hafa spilað í fimm löndum við góðan orðstír. DV MYND STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.