Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 39
Arnaldur Arnarson á Gljúfrasteini
Arnaldur Arnarson spilar á áttundu stofutónleikum Gljúfrasteins í sumar nú á
sunnudaginn. Efnisskrá Arnaldar er fjölbreytt en þar má meðal annars finna
prelúdíu fyrir lútu eftir Bach og verk eftir kúbverska tónskáldið og gítarleikar-
ann Leo Brouwer. Líkt og áður hefjast tónleikarnir kl. 16 og aðgangseyrir er 500
krónur.
DV Menning FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 39
HÁTÍÐ
skrifaði þá bók vissi greinilega ekki
þetta leyndarmál sem ég veit og
skrifar því algjöra vitleysu. Svo lesa
þetta allir og halda að sé satt,“ segir
Óttar sem viðurkennir að hann tali
mjög undir rós. Hann er hins vegar
ófáanlegur til að láta meira uppi um
þetta „leyndarmál“, enda yrði það
ekki til góða fyrir bókina.
Margt í gangi með
erlendan markað
Óttar fékk hugmyndina að Hnífi
Abrahams haustið 2004 og fór þá að
lesa. „Ég tók um það bil tvö ár í að
grúska í þessum fræðum. Bókina
skrifaði ég svo á hálfu ári í Sevilla á
Spáni í fyrra sem er frábær borg til
að skrifa þessa bók í því Sevilla er
einmitt þekkt fyrir samkrull menn-
ingarheima kristinna og múslima.
Múslimar réðu henni í margar ald-
ir en frá því um 1500 og til dagsins
í dag hafa kaþólikkar verið þar við
völd,“ segir Óttar en þess má geta að
hann á spænska kærustu.
Það er hið unga forlag, Sögur
útgáfa, sem gefur bókina út en að
sögn Óttars var JPV líka spennt fyrir
henni. „Ég var hins vegar búinn að
skrifa undir samning hjá Sögum út-
gáfu þegar JPV fór að sýna bókinni
áhuga. Ég gat því ekki skorast und-
an því, en ég er líka mjög sáttur því
þessir tveir strákar sem eru með
Sögur útgáfu eru mjög kröftugir,“
segir Óttar og bætir við að forlagið
sé í miklum vexti. „Og það er heil-
mikið í gangi núna með að koma
bókinni til útlanda líka. Það verður
byrjað bráðum á því að þýða hana
yfir á ensku og svo er verið að leita
alls kyns leiða til að koma henni til
ólíkra landa.“
Vill koma á óvart
Eins og áður segir hefur Óttar,
sem er 27 ára, farið um víðan völl á
sínum stutta rithöfundarferli því eft-
ir hann liggja ljóðabækur, skáldsög-
ur, ævisögur og teiknimyndasaga.
Hvað veldur? „Mér finnst gaman að
fara nýjar slóðir. Ég verð fljótt leiður
á hlutum og verð leiður á að endur-
taka sjálfan mig. Ég gæti ekki gefið
út ljóðabók ár eftir ár. Mér finnst líka
gaman að koma sjálfum mér og öðr-
um á óvart, hoppa á milli forma og
tegunda og vera ekki fyrirsjáanleg-
ur. Ég verð reyndar að viðurkenna
að ég hef sjaldan skemmt mér jafn-
vel og þegar ég var bæði að lesa mér
til og skrifa Hníf Abrahams. Ég er því
svolítið hræddur um að ég sé jafn-
vel búinn að festast aðeins í þessari
tegund því næsta bók sem ég er að
fara að skrifa er ekki ósvipuð,“ segir
Óttar en þá bók hyggst hann skrifa
í Barcelona í haust. Hann kemur þó
heim í nóvember til að fylgja eft-
ir nýju bókinni, að ógleymdu öðru
bindi ævisögu Hannesar Hólm-
steins sem eins og sakir standa ber
heitið Hólmsteinn - Holaðu mig litli
dropi, holaðu mig.
kristjanh@dv.is
Tónleikar í Vinaminni
Kristján Orri Sigurleifsson kontrabassaleikari og Guðrún
Dalía Salómonsdóttir píanóleikari halda tónleika í
Vinaminni, safnaðarheimili Akraneskirkju, í kvöld.
Kristján og Guðrún hafa spilað nokkrum sinnum saman
áður, meðal annars á Gljúfrasteini um síðustu helgi.
Verð á tónleikana er 1.000 kr. en þeir hefjast kl. 20.
LungA í kvöld
Á Seyðisfirði stendur nú
sem hæst Listahátíð ungs
fólks á Austurlandi, LungA. Í
kvöld fara fram föstudagstón-
leikar hátíðarinnar - en stærri
tónleikar verða einnig haldnir
annað kvöld. Á tónleikunum í
kvöld koma fram hljómsveit-
irnar Miri, Foreign Monkeys,
Tony the pony og Lada sport.
Sérstakir gestir verða Skátar.
LungA er haldin árlega og eru
þá haldnar listasmiðjur auk
margs konar sýningahalds og
viðburða.
Stærsti áhrifa-
valdur Bachs
Á Sumartónleikum í Skál-
holtskirkju um helgina verður
haldið sérstaklega upp á 300
ára ártíð tónskáldsins Dietr-
ichs Buxtehude. Hann átti einn
stærsta þátt í að leggja grunn
að fullkomnun barokktónlist-
arstílsins í Þýskalandi og er
jafnframt talinn stærsti áhrifa-
valdur J. S. Bachs. Dagskráin
hófst í gær en á morgun heldur
Margaret Irwin-Brandon fyr-
irlestur um Buxtehude og svo
verða haldnir tónleikar tileink-
aðir tónskáldinu með Bach-
sveitinni í Skálholti og söng-
hópnum Grímu. Fyrirlesturinn
hefst klukkan 14 og tónleikarn-
ir kl. 15.
Einar og KK
á Rás1
Á laugardögum kl. 18.30 er
á dagskrá Rásar 1 þátturinn Á
vængjum yfir flóann, í umsjón
Einars Kárasonar rithöfundar
og tónlistarmannsins KK. Einar
skrifaði ævisögu KK fyrir nokkr-
um árum auk þess sem þeir
koma fram í sýningunni Svona
eru menn, sem fjallar um sama
efni. Í þáttunum ræða þeir
félagar um allt sem í hugann
kemur, atburði liðinna daga og
segja sögur úr fortíð og nútíð.
Tónlistin er vitaskuld áber-
andi í þáttunum - en KK mætir
vopnaður gítar í hljóðstofu og
því viðbúið að umsjónarmenn
bresti í söng.
„Ég geri ráð fyrir að þetta verði
með stærstu hátíðunum hingað til. Í
fyrra komu um 1.000
manns þannig að
íbúafjöldinn sexfald-
aðist,“ segir Hjördís Ýrr Skúladóttir
sem er í forsvari fyrir Skeljahátíðinni
í Hrísey sem haldin verður í fimmta
sinn um helgina. Þetta árið er hátíðin
haldin sameiginlega með Fjölskyldu-
hátíðinni, sem sett var á laggirnar
í eynni fyrir tíu árum. Hjördís segir
veðurspána að þessu sinni lofa nokk-
uð góðu.
Á meðal þess sem fólk getur gert
sér til skemmtunar á hátíðinni er að
taka þátt í Íslandsmótinu í skelja-
kappáti. Að sögn Hjördísar fer hún
þannig fram að hver keppandi fær
ákveðinn fjölda skelja sem hann þarf
að klára á sem stystum tíma. Einn
dómari er svo á hvern keppanda.
„Dómarinn tekur bæði tímann og
mælir snyrtimennsku því hún skipt-
ir líka máli. Keppendur fá stig fyrir
það hvernig skeljunum er raðað upp
og dómarinn metur hvort keppand-
inn hagar sér eins og almennilegur
snyrtipinni þegar hann er að borða
skeljarnar,“ segir Hjördís.
Hátíðin sjálf fer fram á morgun en
örlítið forskot er tekið á sæluna í dag
með óvissuferðum fyrir börn og full-
orðna og útgáfutónleikum Hvann-
dalsbræðra. Á morgun verður meðal
annars söngvarakeppni fyrir börnin,
haldið verður í fjársjóðsleit og boðið
upp á vitaferðir. Um kvöldið verður
síðan grillað, sunginn brekkusöngur
við varðeld og endað svo með flug-
eldasýningu.
Nánari upplýsingar um hátíðina
Skeljahátíðin í Hrísey verður haldin í fimmta sinn um helgina:
Snyrtilegt kappát og fjársjóðsleit Grillað á teini Um 1.000 manns mættu á
hátíðina í fyrra.
Uppljóstrar leyndarmáli í hámenningarreyfara
Dv mynd Stefán