Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 24
Hverjum datt í hug sú fárán-lega hugmynd að fólk þyrfti að fá leyfi til að mótmæla? Mér er spurn vegna þess að um leið og viðkomandi datt í hug að gefa út leyfi til mót- mæla datt hon- um í hug að hægt væri að banna mót- mæli. Reyndar gekk hann dálítið lengra. Þegar fólk þarf að sækja um leyfi til að mótmæla felur það í sér að mótmæli eru bönnuð. Sumir fréttamenn hafa jafnvel séð ástæðu til að taka fram að mótmælendur hafi ekki haft leyfi fyrir mótmæl- unum. Aðrir hafa sagt að lögregl- an hafi ÞURFT að hafa afskipti af mótmælendum á Snorrabraut. Svo kallar fólk þetta lýðræðisríki. Þegar Axlar-Björn tekur sig til og mótmælir ofríki stjórn-valda - nú eða aðgerðum eða áformum einhverra annarra - dett- ur honum ekki í hug að sækja um leyfi til þess. Hann þrammar einfaldlega út og byrjar að mót- mæla. Reyndar verð- ur að viðurkennast að Axlar-Björn hefur ekki verið ýkja duglegur við þetta í seinni tíð. Hvernig stendur líka á því að stjórnvöld ættu að geta leyft eða bannað mótmæli gegn sjálfum sér? Er fólk kannski búið að gleyma því þegar lögreglan fjarlægði mótmælendur með valdi af Austurvelli á 17. júní fyrir nokkrum árum, sennilega 2003? Þá gerðust nokkrir andstæðingar innrásarinnar í Írak svo djarfir að taka upp mótmæla- skilti meðan Davíð Oddsson, þáverandi forsæt- isráðherra, hélt þjóðhátíðarræðu sína. Lögreglumenn voru fljótir til og kröfðust þess að mótmælendur létu skiltin falla. Því neituðu þeir og þá báru lög- reglumenn þá á brott. Síðan sagði lögreglan að ekki mætti mótmæla þarna þar sem þetta væri hátíðar- svæði. Þeir mættu hins vegar vera annars staðar, úr sjónfæri. Með öðrum orðum: „Þú mátt mótmæla ef enginn sér til.“ Erum við líka búin að gleyma viðbrögðunum þegar Jiang Zemin kom hingað fyrir nokkr- um árum? Maðurinn sem bar hvað mesta ábyrgð á fjöldamorðunum á Torgi hins himneska friðar. Lög- reglan var vissulega vel á verði þegar hann kom. Það var þó að vísu ekki til að handsama mann með fjölda mannslífa á sam- viskunni heldur til að koma í veg fyrir að hann þyrfti að horfa upp á gulklætt fólk. Þá fékk lögreglan meira að segja lista frá kínverskum stjórnvöldum um fólk sem þau vildu ekki að kæmi til landsins meðan á heimsókn fjöldamorðingjans, afsak- ið hins virðulega gests, stóð. Svo hélt lögreglan mótmæl- endum í burtu eftir megni og tókst meira að segja að keyra á einn eða tvo þeirra - en væntanlega alveg óvart, löggan ætlaði bara að bakka bílnum svo mótmælendur sæj- ust ekki. Staðreyndin er því miður sú að þegar kemur að mótmælum búum við að sumu leyti í hálfpartinn fas- ísku lögregluríki. föstudagur 20. júlí 200724 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðalnúMer 512 7000, ritstjórn 512 7010, ÁskriftarsíMi 512 7005, auglýsingar 512 70 40. Hver leyfir mótmæli? axlar-björn Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Enginn ber ábyrgðina þegar almannafé er sólundað. Bein í nefinu leiðari Yfirlæknir réttargeðdeildarinnar á Sogni má ekki skrifa út lyfseðla fyrir ákveðnum lyfjum. Landlæknir segir lækninn hinn ágætasta mann en hann hafi ekki bein í nefinu og hafi látið undan þrýstingi fíkla og ávísað til þeirra lyfjum sem hann mátti ekki gera og hefði ekki átt að gera. Það er sjaldgæft að landlæknir grípi til þess að svipta lækna réttindum til að skrifa út lyfseðla. Það er ekki gert að ástæðulausu. Yfir- læknirinn á Sogni hefur ekki bein í nefinu, segir landlæknir. Landlæknir telur sviptingu verða lækninum til góðs, fíklar hætti að sækja á hann og þar með reyni ekkert á beinlausa nefið. Í DV í dag er sagt frá furðufjárfestingu í Þorlákshöfn þar sem hvert asnasparkið á eftir öðru hefur ráðið för með þeim afleiðingum að hundruð milljóna hafa tapast og draumar og væntingar manna snúist upp í mar- tröð. Fjárfestingarnar komu mest úr opinberum sjóðum. Þeim sem var treyst fyrir almannafé var ekki treystandi. Þeir höfðu ekki bein í nefinu. Læknirinn var sviptur leyfi þar sem hann hafði ekki bein í nefinu, en beinleysið hefur ekki áhrif á þá eða þau sem sitja í skjóli pólitísks valds. Þegar það er skjólveggurinn er nóg að hafa merg í beininu. Enginn ber ábyrgðina þegar almannafé er sólundað. Dæmalaus saga draumaverksmiðj- unnar í Þorlákshöfn er grátbrosleg og reyndar er með ólíkindum að annað eins hafi verið látið við- gangast. Vonir voru kveiktar hjá bændum og fleir- um en þar sem helstu gerendurnir höfðu skjól af stjórnmálum varð ekki neitt úr neinu og pening- arnir töpuðust. Orkuveita Reykjavíkur á nóg af peningum og saknar þess ekki þótt tapist milljón- ir á milljónir ofan. Svo mikið er til af peningum að ekki er enn spurt hvort ráðamennirnir hafi bein eða merg í nefinu. Hægt er um vik að ná inn töp- uðum peningum. Engin er samkeppnin og auðvelt er að hækka gjaldskrárnar. Rökstuðningur fyrir hækkunum hefur verið sóttur í gott veður. Svona einfalt er þetta nú. Á sama tíma keppast aðrir stjórnmálamenn við að verjast því að orkufyrirtæki verði einkavædd. Það er á sama tíma og óráðsía opinberra fyrirtækja blasir við. Engum til góðs og skilur ekkert eftir nema kerfi þar sem hægt er að koma þeim fyrir sem hafa þjónað í stjórnmálum eða stjórnmálamönnum. Einka- fyrirtæki eða almenningsfyrirtæki geta ekki leyft sér aðra eins þvælu og hörverksmiðjuna í Þorlákshöfn. Nánast allt er betra en þetta. Dómstóll götunnar Á Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu? „Ég styð að við göngum í sambandið. Ég hef ekki kynnt mér þetta til hlítar en held að það væri okkur til bóta.“ Kolbrún Jónsdóttir, 63 ára, vinnur í prentsmiðju. „Ég hef ekki myndað mér neina skoðun á þessu. Þetta hefur verið í fréttunum en maður hefur kannski annað um að hugsa.“ Andrea Rós Víglundsdóttir, 18 ára nemi. „já. Ég held að það hefði jákvæð áhrif á verðlagið hér ef við værum í evrópu- sambandinu.“ Helena Kjartansdóttir, 18 ára nemi. „já. Mig langar í skóla í englandi og hef séð að skólagjöldin eru þrisvar sinnum hærri fyrir þá sem eru fyrir utan evrópusambandið. Því held ég að við myndum græða á að ganga í það.“ Thelma Björnsdóttir, 19 ára nemi. sanDkorn n Morgunblaðið og Blaðið virðast vera farin að samnýta starfsmenn sína í meiri mæli en áður. Í blöðunum í gær má finna fréttir af ferðalagi Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur utanríkis- ráðherra til Ísraels og Palestínu. Þórð- ur Snær Júlíusson er skráður fyrir umfjölluninni í Blaðinu. Stutt frétt Morgunblaðsins er ekki merkt höfundi, mynd sem henni fylgir er hins vegar ræki- lega merkt Þórði Snæ, blaða- manni Blaðsins, og spurning hvort hann eigi bara myndina í Mogganum eða fréttina líka. Sé svo hefur hann skrifað frétt- ina fyrir tvö blöð. n Félagarnir í Þingvallanefnd, Össur Skarphéðinsson og Bjarni Harðarson, hafa deilt um framtíð Hótels Valhall- ar síðustu daga. Öss- ur telur að endurbyggja þyrfti húsið ef það á að standa en Bjarni tel- ur minna mál að gera við það. Össur gefur lítið fyrir málflutning Bjarna eins og lesa má á bloggi hans þar sem Össur segir Bjarna skipta oftar og hraðar um skoðanir en aðra dauðlega menn. „Það tók hann heilar fjórar vikur að gjörbreyta afstöðu sinni til kvótaniðurskurðarins. Hugs- anlega verður hann því búinn að skipta um skoðun á Valhöll áður en ég lýk þessum pistli.“ n Jón H.B. Snorrason náði nokkurri frægð sem yfirmað- ur efnahagsbrotalögreglunnar. Hann gaf út ákæru á Baugs- menn í fjörutíu liðum og vann að rannsókn annarra flókinna hvítflibbabrota. Eftir tilfærsl- ur innan lögreglunnar starfar Jón nú sem saksóknari hjá lögregl- unni á höf- uð-borgar- svæðinu. Í síðasta Lögbirtinga- blaði birti Jón manni einum ákæru, ekki í fjörutíu liðum að vísu. Þar krefst hann refsingar yfir ökumanni fyrir að hafa tekið U-beygju þar sem slíkt er ekki heimilt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.