Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200736 Sport DV HELDUR RÄIKKÖNEN UPPTEKNUM HÆTTI? © GRAPHIC NEWS Þýski-kappaksturinn Nürburgring Castrol-S 1. beygja 9. beygja 15. beygja 8. beygja Mercedes Arena Coca- Cola NGK chicaneHatzenbach Bogen Bit Michelin Audi-S Dunlop Kehre Ford Rásmark Mikilvægar beygjur Gír / hraði Tímatökusvæði 10. umferð: 22. júlí Lengd brautar: 5,148 km Keppnisfyrirkomulag: 60 hringir – 308,863 km 01 2 3 6 273 6 289 3 128 1 75 2 104 6 297 3 177 5 265 6 281 3 177 1 89 2 128 5 266 2 94 5 258 0 100 Nürburgring-brautin þykir ein sú erfiðasta í Formúlu 1 mótaröðinni. Ferrari hefur verið á mikilli siglingu og liðið er farið að narta í hælana á McLaren. Það má því búast við hörkukeppni um helgina. Tíundi kappakstur tímabilsins í Formúlu 1 fer fram á Nürburgring- brautinni í Þýskalandi um helgina. Brautin þykir ein sú erfiðasta af þeim öllum í akstri. Árið 1961 varð breski ökuþórinn Phil Hill fyrsti maðurinn til að aka hringinn á Nürburgring á skemmri tíma en níu mínútum þegar hann ók hringinn á átta mínútum og 55,2 sekúndum á Ferrari-bíl sínum. Síð- an þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, bæði hvað varðar breyting- ar á brautinni og þróun ökutækja. Michael Schumacher á besta tíma sem náðst hefur á brautinni. Árið 2004 ók hann hringinn á einni mín- útu og 29,468 sekúndum. Schumacher á sér töluverða sögu á brautinni. Auk þess að eiga besta tíma sem náðst hefur lenti hann í slysi á Nürburgring árið 1997 þegar Ralf bróðir hans ók á hann. Áreksturinn hafði mikil áhrif á titilbaráttu hans við Jacques Ville- neuve það árið. Fyrirhugað er að breyta nafni á beygju sem heitir nú Audi S í Schumacher S á þessu ári. Bilið minnkar Finninn Kimi Räikkönen hefur verið í miklu stuði í síðustu tveimur keppnum þar sem hann hefur hrós- að sigri í þeim báðum, á Magny- Cours í Frakklandi og á Silver- stone á Englandi. Räikkönen er nú kominn upp fyrir Felipe Massa, félaga sinn hjá Ferrari, í keppni ökumanna. Hann er nú farinn að blanda sér alvarlega í baráttuna um heimsmeistaratitil ökumanna og sigur um helgina myndi hleypa enn meiri spennu í þá keppni. Lewis Hamilton er enn efstur í keppni ökumanna þrátt fyrir að hafa aðeins náð þriðja sæti í tveim- ur síðustu keppnum. Hann er samt sem áður eini ökumaður heims- meistarakeppninnar sem ávallt hefur náð á verðlaunapall. DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON blaðamaður skrifar: dagur@dv.is © GRAPHIC NEWS Staðan í heimsmeistarakeppni Formúlu 1 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 = 14 = 16 = Keppni bílasmiða Lewis Hamilton Fernando Alonso Kimi Räikkönen Felipe Massa Nick Heidfeld Robert Kubica Giancarlo Fisichella Heikki Kovalainen Alexander Wurz Jarno Trulli Nico Rosberg David Coulthard Takuma Sato Mark Webber Ralf Schumacher Jenson Button Sebastian Vettel McLaren McLaren Ferrari Ferrari BMW Sauber BMW Sauber Renault Renault Williams Toyota Williams Red Bull Super Aguri Red Bull Toyota Honda BMW Sauber 70 58 52 51 33 22 17 14 8 7 5 4 4 2 2 1 1 Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 McLaren-Mercedes Ferrari BMW Sauber Renault Williams-Toyota Toyota Red Bull-Renault Super Aguri-Honda Honda Toro Rosso-Ferrari Spyker-Ferrari 128 103 56 31 13 9 6 4 1 0 0 Straðan fyrir þýska-kappasksturinn - allir aðrir ökumenn eru með núll stig. UMMÆLI ÖKUMANNA FYRIR NÜRBURGRING Kimi Räikkönen – Ferrari „Ég hef alltaf haft gaman af þessari braut, af því að hún er með mjög krefjandi beygjum. Vonandi náum við þrennunni. Líkt og á Magny-Cours og á Silverstone hafði ég aldrei náð góðum árangri þar áður. Það er kominn tími til að ná árangri hér. Síðari hluti tímabilsins er hafinn og það má sjá hvernig gæfan hefur snúist okkur í hag. Auðvitað vil ég halda áfram á þeirri braut og halda áfram að vinna og í lok tímabilsins standa uppi sem sigurvegari.“ Felipe Massa – Ferrari „Ég býst við að þessi keppni verði mjög jöfn. Ég náði þriðja sæti á þessari braut í fyrra og það var í fyrsta sinn sem ég komst á verðlaunapall. Vonandi náum við aftur á verðlauna - pall að þessu sinni en í betra sæti. Ég á góðar minningar frá keppninni í fyrra, en við viljum alltaf gera betur.“ Fernando Alonso – McLaren „Við tókum góða æfingu á Spa-brautinni í vikunni þar sem allir í liðinu lögðu sig fram. Keppnin er mjög hörð þetta árið og við verðum allir að leggja okkur hart fram til að ná því besta fram í bílnum, sérstaklega á Nürburgring-brautinni. Þetta er ekki braut sem hægt er að treysta á einhvern einn eiginleika bílsins og það er erfitt að ná hámarksárangri hér. Lega brautarinnar og krappar beygjur gera það að verkum að þú þarft að hafa jafnvægi í akstri hvað varðar hraða. Ég mun því vinna mikið með mínu tækniliði til að ná góðum árangri.“ Lewis Hamilton – McLaren „Þrátt fyrir að hafa lent í erfiðleikum á Silverstone-brautinni náðum við í mikilvæg stig og nú hlakka ég mikið til að keppa á Nürburgring. Ég átti góða helgi þar á síðasta ári (í GP2) þar sem ég náði mínum fyrsta tvöfalda sigri á því ári og ég naut þess að aka brautina. Árið 2005 vann ég einnig keppni þar í Formúlu 3. Bíllinn minn þá var Mercedes-Benz og stuðningur áhorfenda var frábær. Það verður frábært að keppa fyrir framan þá aftur, núna fyrir hönd McLaren í Formúlu 1-bíl. Þessi braut er líklega með fleiri hægar beygjur en nokkur önnur. Það þarf því að ná sér vel af stað aftur eftir þær.“ Nick Heidfeld – BMW Sauber „Ég hlakka mikið til keppninnar á Nürburgring. Þar hafa flestir mínir stuðningsmenn mætt og þökk sé góðum árangri á þessu ári verður mætingin eflaust góð. Það er góð tilfinning að hafa slíkan stuðning og einn eða fleiri fjölskyldumeðlimir munu koma á brautina. Ég tel mig þekkja brautina nokkuð vel. Frammistaða okkar hefur verið mjög hvetjandi. Það er að sjálfsögðu skemmtilegra að vita til þess að maður getur náð í stig og gott sæti. Ef tímatakan fer betur hjá mér nú en í síðustu keppni á Silverstone ætti ég einnig að geta barist um sigur í keppninni.“ Robert Kubica – BMW Sauber „Ég er klár á því að það verður mikill fjöldi áhorfenda og margir sem munu styðja okkar lið. Ég verð að viðurkenna að mér finnst brautin ekkert stórkostleg. Ég þekki brautina nokkuð vel. Ég tel að þetta verði góð helgi og kannski mun mitt viðhorf til brautarinnar breytast eftir keppnina.“ Fagna þeir um helgina? McLaren-félagarnir Fernando Alonso og Lewis Hamilton sjást hér fagna eftir kappaksturinn á Silverstone-brautinni. Finninn fljúgandi Kimi Räikkönen hefur hrósað sigri á tveimur síðustu mótum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.