Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 62
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200762 Síðast en ekki síst DV SANDKORN ■ Pétur Gunnarsson blogg- ari hefur undanfarið fjallað um hugsanleg kaup Bókmenntafé- lags Máls og menningar á Eddu útgáfu, sem að mestu er í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Hann fullyrðir að kaupin muni ganga í gegn um næstu mán- aðamót og muni bóka- útgáfa Eddu færast yfir til Máls og menningar. Það sem eftir standi hjá Eddu verði bókaklúbb- arnir. Pétur segir hins vegar ekki frá því að einn þeirra manna sem hafður er með í ráðum hjá Máli og menningu sé Halldór Guðmundsson, bókmennta- fræðingur og ritstjóri Skírnis, sem jafnframt er fyrrverandi forstjóri Eddu útgáfu. Spurning- ar hafa því vaknað hvort hann muni koma aftur til starfa - þá hjá Máli og menningu. ■ Nýjustu fregnir herma að Kristján Hjálmarsson sonur Hjálmars Árnasonar fyrrver- andi alþingismanns sé tekinn við af Óskari Hrafni Þorvalds- syni sem ritstjóri Sirkus-blaðs- ins. Kristján hefur verið með annan fótinn á Frétta- blaðinu frá stofnun þess og hef- ur töluverða reynslu af því að skrifa efni í svip- uðum dúr og Sirkus-blaðið er. Óskar mun taka við sem ritstjóri Vísir.is þegar hann snýr aftur úr sumarfríi. ■ Nýjasta afurð Apple, iPhone, sem beðið hefur verið með mik- illi eftirvæntingu virðist eitthvað vera að klikka. Í fyrstu var kvartað mikið undan snertilyklaborði símans sem er partur af skjánum en ekki utanáliggjandi eins og venj an er. Nú eru að koma upp öllu alvarlegri vandamál með símann. Í Duke-há- skólanum í Banda- ríkjunum hefur það vandamál verið að koma upp að iPhone yfirfyll- ir þráðlaust net skólans með beiðnum um svokallað Mac adress. Beiðnirnar eru allt að 30.000 á sekúndu og loka allt að 30 aðgangspunktum í tenging- unni í einu. En sem er hefur þetta vandamál aðeins komið upp hjá Duke en Apple hefur lítið sagt um málið hingað til. Hvernig tilfinning er það að vera hætt í Nylon? „Hún er bara góð. Þetta er ákvörð- un sem ég er búin að velta fyrir mér lengi. Þetta var æðislegur tími og ég vil takast á við eitthvað nýtt. Það er mikill skilningur hjá Einari og stelpunum og við erum og verðum áfram bestu vinkonur. Við höfum alltaf talað um að ef einhver okk- ar vilji breyta til að þá verði 100% skilningur þar á. Við erum búnar að færa miklar fórnir undanfarin ár og það standa allir á bak við mig.“ Finnur þú ekkert fyrir tóma- rúmi eftir að þú hættir? „Heldur betur ekki. Akkúrat öfugt. Það er svo margt spennandi að ger- ast og margar dyr standa opnar. Ég er bara æðislega þakklát fyrir þetta tækifæri og þá reynslu sem ég hef öðlast á undanförnum árum.“ Hvað tekur núna við? „Veistu, ég er búin að ákveða að halda því fyrir mig í bili. Ég get þó sagt að ég ætla ekki í skóla. Maður- inn minn er að fara í skóla í haust en ég ætla að gera eitthvað allt ann- að og nýtt. Mig langar aðeins að fara úr sviðsljósinu og njóta lífsins á annan hátt.“ Innilega til hamingju með brúðkaupið þitt sem var um síðustu helgi. Hélduð þið hjónin veislu? „Takk fyrir það. Já, við héldum helj- arinnar 170 manna veislu, það var ofboðslega gaman og dansað fram eftir öllu. Nylon-stelpurnar sungu fyrir okkur í athöfninni og það var alveg æðislega fallegt hjá þeim.“ Héldu stelpurnar ræðu? „Já, þær héldu ræðu og Einar líka. Hann kom okkur heldur betur á óvart. Í lok ræðunnar sagði hann að þau Áslaugu langaði að gera eitthvað persónulegt fyrir okkur. Í þeim töluðu orðum kom Garð- ar Thor Cortes óvænt og söng fyrir okkur tvö lög. Þetta var svo fallegt að tárin streymdu niður kinnarnar á okkur og veislugestum. Þetta var alveg geggjað.“ Ég verð að fá að spyrja þig Emilía, eruð þið farin að huga að barneignum? „Hehe, það eru allir að spyrja mig að þessu en ég get fullvissað þig um að svo er ekki. Við Pálmi erum ný- gift og ætlum að njóta lífsins meðan við erum ung. Við ætlum að njóta hvort annars áður en við fáum þriðja aðilann í fjölskylduna.“ Myndir þú taka þátt í Nylon- endurkomu ef það stæði til, svona eins og Spice Girls? „Ég veit það ekki. Eins og staðan er núna er ég mjög sátt að vera að fara að takast á við eitthvað annað og spennandi. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér en ég hef ekkert velt því fyrir mér.“ Hvað ætlarðu að gera næstu daga? „Í þessum töluðu orðum erum við Pálmi á kafi í flutningum. Við erum að byggja okkur í Kópavoginum og erum að undirbúa að flytja þang- að. Annars erum við að fara í brúð- kaupsferð um helgina svo það er nóg um að vera.“ MAÐUR DAGSINS VILL TAKAST Á VIÐ EITTHVAÐ NÝTT Emilía Björk Óskarsdóttir stendur svo sannarlega á tímamótum. Hún hefur sagt skilið við Nylon-söng- flokkinn og er auk þess nýbúin að giftast kærasta sínum til fjögurra ára. Emilía talar um brúðkaupið og framtíðina. DAGBÓKIN MÍN Árni Johnsen Jæjaþá. Nú styttist í Þjóðhá-tíð og ekki seinna vænna að fara að undirbúa sig. Ég er því byrjaður á stífum matar- og lífstílskúr, Þjóðhátíðarkúrnum 2007. Hann er þannig að ég byrja daginn á því að sneiða reykt- ar lundabringur ofan á nokkrar hverabrauðsneiðar. Þessu skola ég svo niður með hálfu glasi af ylvolgu ufsalýsi. Þá sýg ég tvö létt- stropuð fýlsegg. Að þessu loknu fylli ég baðkerið af sjó (sem ég ber í fötum neðan úr fjöru) og ligg í sjó- baði í um stundarfjórðung, en þá dembi ég mér í ískalt steypibað. Þegar ég er búinn að æfa mig á gítarinn í eins og tíu mínútur, fæ ég mér dálítið miðmorgunsnarl. Gjarnan grafnar lundabringur á skarfakálsbeði sem ég skola niður með ískaldri mysu. Þá tekur við stíf gítaræfingalota sem getur staðið í allt að hálftíma! Ég lærði einmitt nýtt grip um daginn. Mig minnir að það heiti Eff. Það heitir allavega í höfuðið á einhverjum bókstaf. Þetta grip er ég búinn að æfa þrot- laust síðan í maí og held ég sé að ná því. Nú, þá er bara kominn hádegis- matur. Snöggsteiktar lundabringur með kartöflum úr Þykkvabænum og hömsum. Með þessu drekk ég svo rjúkandi heitt vatn úr kranan- um - það er svo gott fyrir röddina. Kannski má segja að það sé leynd- ardómurinn á bak við mína björtu og íðilfögru tenórrödd? Í síðdegiskaffinu fæ ég mér svo léttsúrsað lundabringupaté og flatkökur. Æfi mig á gítarinn. Syng þjóðsönginn og eitthvað beisikk - Krummavísur til dæmis, og byrja svo að undirbúa kvöldmatinn. Það fer nú alveg eftir því í hvernig skapi ég er, hvað ég fæ mér - en það eru mjög miklar líkur á því að það innihaldi lundabringur. Eða læri. Þegar ég hef verið á þessum kúr í nokkra mánuði er ég fær í flest- an sjó og þess albúinn að standa í brekkunni einn ganginn enn og syngja fyrir heimsbyggðina. Eða Heimaeyna öllu heldur. Kæra dagbók Þjóðhátíðar- kúrinn SÉÐ MEÐ AUGUM Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +16 3 +12 3 +16 3 +16 3 +14 5 +13 2 +144 +12 2 +13 3 +13 3 +14 2 +13 2 +18 4 +14 4 +13 3 Kærkomnar breytingar? „Vafalítið munu íbúar á vestanverðu landinu taka vætunni fagnandi, en í raun verður úrkoman ekki mikil í magni talið. Mest munar þó um þá rigningu sem spáð er í síðari hluta föstudagsins, en á laugardag og sunnudag verður að heita má þurrt vestan- og suðvestanlands ef spár ganga eftir, þó svo að skýjað verði að mestu,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. „Einhverrar vætu verður vart á laugardag á Norðurlandi og einnig fyrir miðbik Suðurlands og á hálendinu. Sums staðar gæti meira að segja bleytt vel í um leið og úrkomuskil ganga austur yfir landið. Það er hins vegar Austurland sem virðist ætla að standa upp úr hvað varðar vænlegasta ferðaveðrið þessa helgina. Þar verður að heita má þurrt alla helgina, þónokkurt sólskin og þar einna hlýjast eða 17 til 20 stiga hiti yfir daginn. Ekki er heldur hægt að segja ennað en sæmilega hlýtt verði á landinu, líka þar sem sólar gætir lítt eða alls ekki. Þá er að sjá að hægviðrasamt verði á landinu öllu. Hálfgerð áttleysa, þó suðvestan- stæður ef hægt er að tala um einhverja vindátt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.