Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 38
MENNING FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200738 Menning DV KK og Maggi í langferð KK og Maggi Eiríks lögðu í gær upp í tónleikaferð þar sem þeir leika lög af ferðalagaplötum sínum, en þær eru nú orðnar þrjár talsins. Ferðin hófst með tónleikum á Borg í Grímsnesi í gærkvöldi. Í kvöld leika þeir í Duushúsum í Keflavík og annað kvöld í Bíóhöllinni á Akranesi. Ferðinni lýkur á sunnudagseftir- miðdaginn með stórtónleikum í Fjölskyldu- og húsdýragarðin- um í Reykjavík. Næstkomandi fimmtudag leggja þeir félagar svo aftur í langferð. Þá verður ferðinni heitið á Ísafjörð, Akur- eyri og Sauðárkrók. Kvartett Snorra Á áttundu tónleikum sum- artónleikaraðar veitingahúss- ins Jómfrúarinnar við Lækj- argötu, laugardaginn 21. júlí, kemur fram kvartett trompet- leikarans Snorra Sigurðarson- ar. Aðrir hljóðfæraleikarar eru Eðvarð Lárusson á gítar, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Þorvaldur Þór Þorvaldsson á trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 15 og standa til kl. 17. Leikið verður utandyra á Jómfrúar- torginu ef veður leyfir, en ann- ars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis. Kátir dagar á Þórshöfn Hátíðin Kátir dagar fer fram á Þórshöfn um helgina. Á meðal viðburða þar eru útimarkaður, brunaslöngubolti, kassabílarallí, myndlistarsýningar og dansleikir, að ógleymdri heimsfrumsýningu á tveimur stuttmyndum. Þá verður spákona á svæðinu fyrir þá sem vilja vita hvað framtíðin ber í skauti sér. Nánari upplýsingar er að finna á langanesbyggd.is. Nú stendur yfir Carnival á Café Oliver við Laugaveg. Carnival við Laugaveg „Tilefnið er í rauninni ekkert annað en að gleðja kúnnana okk- ar og láta þá hafa eitt- hvað fyrir stafni þessa helgi, þegar lítið er um að vera í bænum,“ segir Arnar Þór Jónsson hjá Café Oliver. Þar stend- ur nú yfir fjögurra daga hátíð und- ir yfirskriftinni Carnival, þar sem fyrirhugaður er fjöldi viðburða; allt frá eldgleypum og götuleikhúsi til sígaunatónlistar og magadans. Arnar á von á góðri stemningu og mikilli aðsókn. „Við fengum hingað 10-12 þúsund gesti í fyrra og eigum von á öðru eins,“ segir hann. Dag- skrá hátíðarinnar fer fram allan daginn og fram eftir nóttu - bæði inni og úti, en á Oliver er útisvæði sem nýtist vel til skemmtanahalds. „Við erum með útiaðstöðu fyrir um 100 manns í sæti, en ef það rign- ir verður brugðist við því og dag- skráin flutt inn,“ segir Arnar. Hann segir að um 40 atriði verði í boði á hátíðinni. „Það má ganga út frá því að eitthvað gerist á tveggja klukku- tíma fresti þessa daga.“ Hljóm- sveitin Tepokinn er í nokkru aðal- hlutverki á hátíðinni en sveitin fær til liðs við sig tónlistarmenn eftir þörfum og bregður sér þá í hlut- verk sígaunahljómsveitar, spilar kúbanska tónlist og tangó. Arnar segir að fyrir utan Carnivalið sé lít- ið um að vera í borginni um helg- ina. „Ég held að Oliver eigi eftir að eiga þessa helgi eins og hún leggur sig,“ segir hann. „Sagan er mjög alþjóðleg og sækir augljóslega á sömu mið og Da Vinci-lykillinn,“ segir Óttar Martin Norðfjörð rithöfundur sem þessa dagana er að leggja lokahönd á nýja skáldsögu, Hníf Abrahams, sem kemur út með haustinu. „Hún er í prófarkalestri og fer vonandi í prentun á næstu vikum. Það eru nú þegar nokkrir búnir að lesa hana og eru allir mjög ánægðir með hana.“ Óttar hefur vakið töluverða at- hygli og umtal fyrir fyrri verk sín. Þar ber líklega fyrst að nefna fyrsta bindi ævisögu Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar, Hannes - Nóttin er blá, mamma, sem kom út í fyrra og var á meðal söluhæstu ævisagnanna þá vertíðina. Verk- ið er nokkuð óvenjulegt þar sem það er einungis fjórar blaðsíður og byggt á heimasíðu Hannesar. Haustið áður sendi Óttar frá sér skáldsöguna Barnagælur þar sem lesendur fengu innsýn í huga ís- lensks barnaníðings og vakti sterk viðbrögð hjá sumum. Bókin fór samt ekki mjög hátt í umræðunni, hvort sem það stafar af því að þjóð- in hafi ekki verið tilbúin í umræðu um þennan málaflokk út frá þeim vinkli, eða aðrar ástæður hafi leg- ið þar að baki. Fyrr á þessu ári kom svo út teiknimyndasagan Jón Ás- geir og afmælisveislan sem fjallar öðrum þræði um Baugsmálið og „persónur“ þess. Áður hafði Óttar sent frá sér nokkrar ljóðabækur. Erfitt að tengja við Ísland Að sögn Óttars fjallar Hnífur Abrahams í grófum dráttum um ís- lam-kristni deiluna sem er í gangi í dag og rekur mjög gamalt leynd- armál sem tengist þessum trúar- brögðum. „Hún gerist í New York í nútímanum. Aðalpersónan er írskur prófessor og rithöfundur en aðstoðarmaður hans er íslensk- ur strákur sem hefur verið að læra hjá honum í Dublin,“ segir Óttar. „Upphaflega var hún svakalega al- þjóðleg því ég gat einhvern veginn hvergi komið tengingu við Ísland inn í þetta umfjöllunarefni. Í fyrsta lagi varð ég að staðsetja söguna einhvers staðar annars staðar en á Íslandi. Samsæri í tengslum við íslam og kristni gengur bara ekk- ert upp hérna. Við erum svo fjar- læg þessu og því hefði þetta verið ótrúverðugt. Ég ákvað því að stað- setja söguna í New York, enda er hún orðin svo mikill holdgervingur þessara átaka eftir 11. september. Svo brá ég á það ráð að hafa aðstoð- armanninn Íslending sem meikar alveg sens þar sem það eru mikil samskipti á milli Íslands og Írlands og Íslendingar sækja háskólanám til Dublin. Prófessorinn og aðstoð- armaðurinn eru svo á ráðstefnu í New York og detta þannig inn í plottið.“ Komst að leyndarmáli „Svona týpur af bókmenntum hafa náttúrlega verið svolítið vin- sælar síðustu ár og maður hlýtur að pæla í því hvort það gæti verið gam- an að skrifa svona bók, að taka þátt í þessari bylgju,“ segir Óttar. „Ég var svo með þessa hugmynd um Abra- ham sem er faðir múslima, gyðinga og kristinna. Mér fannst það mjög áhugavert konsept að hann skyldi vera faðir þessara þrennra trúar- bragða sem deila endalaust í dag. Ég fór því að lesa mér til um Abraham og komst að skemmtilegu leyndar- máli í tengslum við hann og merki- legasta atburðinn í lífi hans þegar hann ætlaði að fórna öðrum syni sínum að beiðni guðs. Við það að lesa mér til um þetta komst ég að því að það er áhugavert „tvist“ á þessu öllu og áður en ég vissi af kviknaði á sögunni, hún varð lifandi.“ Og Óttar segist hafa komist að ýmsu sem sé ekki á vitorði margra á Vesturlöndum - kannski helst þeirra sem eru skólaðir í trúar- bragðafræðum. „Þetta er eitthvað sem mjög fáir, held ég, í Vesturheimi vita en aftur á móti allir múslimar. Munurinn er bara hvernig þetta er kennt hérna og í arabalöndunum. Það er einmitt mjög fyndið að ein af þeim bókum sem ég las heitir Hug- myndir sem breyttu heiminum eða eitthvað í þá veru. Þar er minnst á þetta fyrirbæri en maðurinn sem Djangó og Snap Happy Í kvöld verður djangó-veisla á Græna hattinum á Akureyri en þá troða upp Hrafnaspark frá Akureyri og Mímósa frá Reykjavík ásamt gestum. Ann- að kvöld leikur svo ástralska djasshljómsveitin Snap Happy á Græna hattinum, en sveitin er um þessar mundir á tónleika- ferð um Norðurlöndin. Snap Happy var stofnuð snemma árs 2006. Í hljómsveitinni eru félagar úr The Hoodangers, The Man Who Knew Too Much, The Red Eyes og The Cat Empire, sem eru frá Melbourne. Café Oliver Þéttskipuð menningardagskrá er þessa dagana á Oliver HÁTÍÐ Óttar Martin Norðfjörð rithöfundur fer ekki alltaf troðnar slóðir. Þau verk sem hann hefur sent frá sér á undanförnum árum hafa sum vakið töluverða at- hygli og ekki ólíklegt að sú verði raunin með nýjustu bók hans, Hníf Abrahams, sem hann undirbjó í tvö ár áður en skrifin hófust. Bókin er væntanleg í haust líkt og annað bindi ævisögu Óttars um Hannes Hólmstein Gissurarson. BÓKMENNTIR Uppljóstrar leyndarmáli í hámenningarreyfara Óttar Martin Norðfjörð rithöfundur „Ein af þeim bókum sem ég las heitir Hugmyndir sem breyttu heiminum eða eitthvað í þá veru. Þar er minnst á þetta fyrirbæri en maðurinn sem skrifaði þá bók vissi greinilega ekki þetta leyndarmál sem ég veit og skrifar því algjöra vitleysu.“ Dv mynd Stefán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.